Neytendablaðið - 01.10.2004, Side 20
Með nýrri tækni hefur kostnaður við af-
söltun á sjó minnkað til muna. Margar
þjóðir nota nýja tækni til að framleiða
drykkjarvatn í stórum stíl.
Sjór sem drykkjarvatn
Fyrir flesta er þetta fjarlæg hugmynd.
FHún er þó ekki fjarlægri en svo að um
150,000 manns drekka sjó daglega í Al-
geirsborg, höfuðstað Alsírs.
Danska fyrirtækið Grundfoss setti upp
dælurnar í afsöltunarstöðinni en þær eru
þannig gerðar að kostnaður við afsöltun
á sjó hefur snarminnkað síðustu árin.
Öfug ósmósa (gegnflæði) nefnist tækn-
in sem er notuð og verður meðalverð á
1000 lítrum af afsöltuðum sjó frá hálfum
að einum dollara þegar þessi tækni er
nýtt.
Það er orkuverðið í hverju landi fyrir sig
sem stjórnar því hvað neytendur þurfa
að borga fyrir lítrann þar sem orkunotk-
unin er í raun um 75% af kostnaði við
afsöltunina.
Drykkjarvatn framleitt með öfugri
ósmósu er alveg hreint frá náttúruleg-
um og efnafræðilegum sjónarhóli og
laust við bakteríur. Þó inniheldur það
örlítið salt en ekki meira en 500 ppm
sem þýðir að það er innan alþjóðlegra
heilbrigðismarka sem WHO, Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin, setur sem skilyrði
fyrir drykkjarvatn.
Ameríkanar stefna á afsöltun
Verðlækkunin á afsöltuðu drykkjarvatni
hefur þau áhrif að þetta er ekki eingöngu
valkostur fyrir olíuríkin í Austurlöndum
nær og nú eru um 20 afsöltunarstöðvar í
bígerð í Kaliforníu, fyrir utan þær 12 sem
eru þegar í fylkinu. Auk þess munu Texas
og Flórída ætla að taka upp þessa tækni.
Bandarísk rannsókn hefur sýnt fram á
að lækkun kostnaðar við framleiðslu
drykkjarvatns með afsöltun muni auka
árlega eftirspurn eftir afsöltuðu vatni í
magn sem samsvarar virði 2 milljarða
dollara árið 2007, sem þýðir í grófum
dráttum um 200 afsöltunarkerfi af sömu
stærðargráðu og það alsírska. Ennþá er
samt þörf fyrir áframhaldandi tækniþró-
un ef afsöltun á að vera valkostur í allra
fátækustu löndum heims. Það vantar
einföld og lítil kerfi á viðráðanlegu verði
sem geta þjónað dreifðari byggðum og
eyjaþjóðum. En að því er stefnt og meðal
annarsveitirEvrópusambandiðrannsókn-
arstyrki á þessu sviði.
Þýtt og endursagt úr MiljöDanmark (tbl. 2, 2004)
Pakkasósur: Fáum
svo sannarlega mikið af aukaefnum fyrir peningana
Danska neytendablaðið Tænk+Test
gerði gæðakönnun á pakkasósum og
niðurstöðurnar voru áhugaverðar.
19 bearnaisesósutegundir voru skoðaðar
og innihéldu þær samtals 124 mismun-
andi efni. Hefðbundin bearnaisesósa er
þó aðeins búin til úr eggjum, estragoni
og smjöri. Af þessum 124 efnum áttu
einungis 19 eitthvað sameiginlegt með
hráefnunum í upprunalegu uppskrift-
inni. í bearnaisesósunni sem átti metið
hvað varðar fjölda efna voru 26 mismun-
andi efni. Meira en helmingur allra be-
arnaisesósanna í könnuninni innihéldu
ekki einu sinni þau þrjú hráefni sem eru í
upprunalegu uppskriftinni.
Sanne Lund hjá dönsku neytendastofn-
uninni sem vann að könnuninni segir að
í flestum tilfellum sé ekki hægt að tala
um að verið sé að kaupa bearnaisesósu
út úr búð heldur öllu heldur sósu með
bearnaisesósubragði. Og allur sá fjöldi
aukaefna sem finna má í tilbúnum sósum
getur valdið ofnæmissjúklingum vand-
ræðum. Ekki er heldur hlaupið að því að
sjá á innihaldslýsingu hvaða aukaefni eru
í sósunni þar sem þau ganga undir ýms-
um nöfnum.
Þegar sósurnar voru lagðar í dóm varð-
andi bragðgæði kom í Ijós að Danir eru
tiltölulega ánægðir með pakkasósur og
sú bearnaisesósa sem komst næst upp-
runalegu uppskriftinni fékk lægstu ein-
kunnina. Það var þó tekið fram að þeir
sem tóku þátt í bragðkönnuninni væru
vanir að borða pakkasósur og hefðu
niðurstöðurnar getað orðið öðruvísi ef
þátttakendurnir borðuðu oft heimatilbún-
ar sósur.
Bearnaise-sósa
Úr uppskriftabæklingi Osta- og smjörsöl-
unnar „Smjör er lykillinn".
4 eggjarauður
2 msk bearnaisedropar
1/4 tsk súpukraftur
1/2 tsk salt
1/4 tsk pipar
250 g smjör
steinselja, söxuð smátt
Þeytið saman eggjarauður, súpukraft,
bearnaisedropa, salt og pipar. Bræðið
smjörið og hellið því í mjórri bunu út í
eggjahræruna. Þeytið á meðan. Hættið
að þeyta um leið og sósan verður slétt og
kremuð. Verði sósan of þykk má |aynna
hana meðörlitlu kjötsoði. Ef hita þarf sós-
una er best að gera það yfir vatnsbaði.
20 NEYTENDABLAÐID 3. TBL. 2004