Foringinn - 01.01.1963, Qupperneq 2
Frá ritstjóra
Nú eru tímamót, nýtt ár rennur upp, og gamla árið kveður. Um ára-
mót hugsum við ósjálfrátt til baka til þess, sem liðið er, og reynum að
draga fram bæði það, sem fór miður, og einnig það, sem vel fór. Mikils
virði er að geta lært af reynslunni, — að komast hjá því að gera
sömu vitleysurnar aftur og aftur.
Um þessi áramót hefur íslenzkt foringjablað í annað sinn göngu
sína. Þörf á sb'ku blaði hefur verið mikil, og ef til vill einna mest nú á
síðustu tímum.
Nú geta íslenzkir skátar litið björtum augum til framtíðarinnar. Þeir
hafa nú haldið veglegt 50 ára afmæli skátahreyfingarinnar á Islandi,
og öll líkindi eru tiþ að starfið verði ekki lakara á nýja árinu, Ferða-
árinu. Síðasta ár hefur einkennzt af gróskumiklu starfi og nú ganga
íslenzkir skátar hnarreistir fram „móti hækkandi sól“.
Mikil breyting hefur orðið á skilyrðum íslenzkra skátaforingja til
að starfa og afla sér viðunandi menntunar og undirbúnings.
En ennþá eru mörg lönd ónumin. Eftir er að skapa skilyrði fyrir
menntun ylfinga- og ljósálfaforingja, dróttskátaforingja, rekkaforingja
og foringja á ýmiss konar sérstarfssviðum, svo sem starfsemi vanheilla
skáta, sjóskáta og fleirum.
Þessu blaði er ætlað að leggja fram sinn skerf til þess, að hægt verði
í framtíðinni að skapa það skátastarf á íslandi, sem við öll vonum og
biðjum, að megi verða.
Við störfum fyrir æsku landsins. — Tökum á, leggi hver fram sinn
skerf, og þá mun skjótt rísa stór sól á himni íslenzkra skáta, ekki ein-
ungis okkur til styrks og sóma, heldur og skátahreyfingunni í heild og
stofnanda hennar, Baden-Poweh.
FORINGINN