Foringinn - 01.01.1963, Síða 5
Spor í rétta átt
Á undanförnum árum hefur oft verið rætt um það í stjórn RÍS, að
þörf væri á sérstöku málgagni fyrir íslen/ka skátaforingja. Liggja til
þess ýmsar ástæður og sú veigamest: að Skátablaðið getur ekki sérhæft
efni sitt og verður því að birta greinar, sögur, þætti og skátafræði fyrir
alla aldursflokka skátahreyfingarinnar. Undirritaður hefur á síðast-
liðnum tveimur árum gert nokkrar tilraunir til jaess að fá skátafélög
utan Reykjavíkur til þess að annast útgáfu foringjablaðs, en án árang-
urs. Nú hafa þau ánægjulegu tíðindi gerzt, að Gihvell-hringurinn hefur
boðizt lil þess að sjá um útgáfu „Foringjans". Vil ég leggja áherzlu á,
að stjórn BÍS metur mikils J^etta framtak og sjálfboðastarf Gilwell-skáta.
Það er von mín, að skátaforingjar leggi sinn skerf fram til þess, að
þetta nýja iöringjablað eigi sér langa lífdaga, — kaupi FORINGJANN
og útbreiði — og umfram allt færi sér í nyt greinar, upplýsingar og hag-
nýta fræðslu, sem birtist í blaðinu.
Reykjavík í des. 1902.
A rn björn Kristinsson,
útgáfustjóri.
en hinar héldu nú ekki, því að þær
voru vissar um, að þarna byggi vofa
útilegumannsins, og þær hefðu ekkert
að gera í klærnar á honum. Innan við
dyrnar héngu stór grýlukerti, all
ófrýnileg, og bak við þau var algert
myrkur og þögn . . .“
„. . . Komum við nú að læk einum
og hugðumst fá okkur vatn að drekka
til þess að renna niður súkkulaðinu.
„Bara einn sopa,“ rausaði Böggý alveg
eins og hún ætti lækinn! En við skeytt-
um því engu og drukkum eins og okk-
ur lysti og tókum einnig með okkur
stóran, stóran klaka og átum hann á
leiðinni. En Böggý var alltaf að
skamma okkur fyrir það. Svo fór
Böggý að rýna í landabréfið, og virtist
henni sem við værum komnar að Eld-
borg. En fljótlega snerist henni þó
hugur, því að Eldborg var mikið lengra
í burtu. Við tókum okkur stutta hvíld,
en þegar við vorum komnar langt í
burtu frá hvíldarstaðnum, uppgötvaði
Lydia, að hún væri búin að týna
myndavélinni, sem mamma hennar
hafði fengið í fermingargjöf. . ..“
FORINGINN 5