Foringinn - 01.01.1963, Qupperneq 9
á þeirra vegum næsta sumar og er íslenzkum skátum boðið að senda þátttak-
endur á hvert þeirra, sem áhugi kann að vera fyrir. Þeir, sem hafa áhuga, geta
fengið nánari upplýsingar hjá skrifstofu B.Í.S. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir
1. apríl.
12 umsóknir bárust á sínum tíma um boð bandarísku kvcnskátanna um að
senda tvær stúlkur á dróttskátaaldri til Bandaríkjanna næsta sumar. Hafa þessar
tvær stúlkur verið valdar, og eru það þær Guðrún Kristinsdóttir, Kvenskátafélagi
Eeykjavíkur og Guðrún Arnadóttir, Kvenskátafélaginu Valkyrjan, Akureyri.
Ef einhver skátasveit eða dróttskátasveit hefur áhuga á að eignast brezka
vinasveit, sem kemur í heimsókn til Islands næsta sumar, þá látið vita strax
til skrifstofu B.Í.S.
DRÓTTSKÁTAR Frh. frá bls. 3:
Þá hefst starfið sjálft. Hver nefnd
vinnur að undirbúningi þeirra liða,
sem færa má undir hennar starfssvið.
Síðan framkvæmir öll sveitin hvern
lið áætlunarinnar, hvort sem það er
útilega, heimsókn í sjúkrahús eða jazz-
hljómleikar.
Dróttskátarnir læra að vinna saman
í nefndunum, en fullorðinn foringi (yf-
ir 21 árs) er yfir sveitinni. í hverri
nefnd starfa ráðgjafar, sem eru annað-
hvort rekkar, svannar, foreldri eða
einhver maður eða kona, sem stendur
utan við hreyfinguna, en hefur þekk-
ingu, reynslu og áhuga á viðkomandi
verkefni.
Þetta starfsfyrirkomulag er mjög
gott að mörgu leyti. Það kennir drótt-
skátunum að taka ákvarðanir, gera
áætlanir og vinna eftir þeim. Það
kennir þeim að taka tillit hver til ann-
ars, og síðast en ekki s'zt skapar þetta
kerfi kjarna, sem síðar verður uppi-
staða skátahreyfingarinnar. Þaðan
munu koma dugandi foringjar, svann-
ar og rekkar. Ó. P.
HVAÐ ÆTLI FORELDRARNIR
SEGI? Frh. frá bls. 6:
að hafa eitthvert hlutverk á fundin-
um!
5. Sem síðasta lið vil ég svo nefna, að
foringinn getur farið heim til for-
eldranna og rætt við þá og mælzt til,
að þeir komi á fundinn. Slíkt per-
sónulegt samband er mikils virði og
hefur víðíækari áhrif en annars nást
á einum fundi.
Ef þið notið nú öll þessi ráð, þegar
þið boðið næsta fund, þá trúi ég varla
öðru en sæmilega verði mætt hjá ykk-
ur! I þeirri von mun ég ræða við ykk-
ur nánar um uppbyggingu og tilgang
foreldrafundanna í næsta blaði, ef
rúmið leyfir.
I. Á.
FORINGINN 9