Bændablaðið - 08.04.1997, Side 9
Þriðjudagur 8. apríl 1997
Bœndablaðið
9
Andrés Jóhannesson, yfirkjötmatsmaður
Kjötmadð er aðeins
einn þáttur aí mörgum
Samkvæmt íslenskri reglugerð um
slátrun, mat og meðferð sláturafurða
ber að framkvæma mjög ítarlegt mat
á gæðum alls kjöts við slátrun. Allt til
þessa hefur þurft að styðjast að
nokkrum hluta við sjónmat þegar
gæðamat hefur farið fram og hlýtur
slíkt mat ætíð að vera einstaklings-
bundið og ekki nægilega nákvæmt.
Til að bregðast við auknum kröfum
um ítarlegar mælingar á sam-
setningu kjöts hefur Andrés Jó-
hannesson, yfirkjötsmaður, hannað
búnað til þykktarmælingar fitu á
skrokkum sláturdýra. Búnaðurinn
mælir fitu holds frá yfirborði að beini
og er í aðalatriðum gerður úr mæli-
hluta, haldara og skrásetningar-
einingu. Mælitækið verður með raf-
eindabúaði sem tengja má við tölvu
sem skráir niðurstöður mælinga jafn-
óðum og þær fara fram. Þótt ná-
kvæmt mat á kjötafurðum sé ein af
undirstöðum framleiðslumála þarf að
huga að mörgu fleiru þegar um
slátrun, og frágang afurða er að
ræða. í tilefni af tilkomu hins nýja
mælis ræddi Andrés kjötmálin
nokkuð við Bændablaðið.
Á undanfömum árum hafa komið fram
ýmis tæki og búnaður til þess að auðvelda
fitumælingar á kjöti. Norðmenn hafa lengi
notað sérsmíðað áhald er líkist hnífi þar
sem búið er að snúa 90° upp á fremsta
hluta hnífsblaðsins. Enda blaðsins er
stungið á milli. riQa, snúið um 90° og
dregið til baka að innra borði rifbeinsins
og er þá unnt að lesa holdþykktina af
mælikvarðanum. Þessi mæliaðferð þykir
hins vegar ekki nægilega nákvæm auk
þess sem hún veldur nokkrum skemmdum
á kjötinu. Einnig má geta tækis sem
Gunnar Malmfors, einn helsti sérfræð-
ingur Svía á sviði kjötrannsókna, vinnur
að. Hið nýja mælitæki Andrésar Jó-
hannessonar er annað mælitækið sem
hann hannar því um nokkurra ára bil hefur
verið í notkun mælir sem einnig er frá
hans hendi. Að sögn Andrésar hefur þessi
mælir reynst vel en ekki verið nægilega
hraðvirkur og ekki unnt að tengja hann
við tölvu til sjálfvirkrar skráningar á
niðurstöðum.
Nýjar kjötmats-
reglur næsta haust
Nú vinnur starfshópur á vegum Land-
samtaka sauðljárbænda og Landsamtaka
sláturleyfishafa að því að móta nýjar og
samræmdar reglur við kjötmat með hlið-
sjón af reglum Evrópusambandsins sem
áformað er að taki gildi á næsta hausti.
Andrés Jóhannesson segir að með þeim
verði veruleg breyting á matinu. Kjöt-
matskerfi Evrópusambandsins byggist á
tvöföldu mati þar sem annars vegar sé
byggt á vaxtarlagi og holdfyllingu en hins
vegar á fitustigi kjötsins. Kjötmatið bygg-
ist síðan algerlega á faglegum forsendum
og verður að öllu leyti óháð verðlagningu
einstakra flokka.
Verður að lengja
sláturtímann
Andrés segir að meðferð á nautgripa-
og svínakjöti hafi breyst verulega til
batnaðar á undanförnum árum en því
miður hafi minni breytingar orðið á með-
ferð kindakjötsins. SauðQárslátrunin sé
föst í gömlum hefðum sem sem erfitt sé
að fá menn til að breyta. Vegna þess að
slátra þurfi féinu á mjög skömmum tíma
gefist ekki nægilegt tóm til þess að ganga
frá kjötinu á viðeigandi hátt. Það sé að
mestu leyti geymt í heilum skrokkum og
taki því meira pláss í geymslum en annars
þyrfti að vera. Andrés segir vel mögulegt
að lengja sláturtíma sauðfjár. Menn megi
ekki binda sig við ákveðna gangnadaga
sem ekki megi breyta. Hin skamma slátur-
tíð leiði af sér ákveðinn vertíðarbrag sem
komi niður á vinnubrögðum og í raun allri
hugsun um hvað sé verið að gera.
Handlanga þarf
kjötið í geymslur
Til að auðvelda geymsluvandamálið
segir Andrés að reynt hafi verið að
stykkja kindakjötið og koma því fyrir í
400 til 500 kílóa kössum. Hann vitnar
meðal annars í Fjölrit RALA nr. 142 frá
árinu 1990 þar sem sagt er frá áhrifum til-
raunar sem gerð var með brytjun á dilka-
kjöti í sláturtíð haustið 1989 þegar brytjuð
voru allt að 500 tonn af lambakjöti í
Bændablaðsmynd/ÁÞ
Andrés Jóhannesson
þremur sláturhúsum. í dag er þessi aðferð
notuð að hluta við slátrun hjá Afurða-
sölunni í Borgarnesi. Tilraunin var gerð
undir eftirliti RALA og í niðurstöðum
hennar kemur fram að erfitt sé að fást við
þessa vinnu við núverandi aðstæður í
sláturhúsunum í sláturtíð. Til að unnt
verði að brytja kjötið þurfi að fækka þeim
lömbum sem slátrað er á hverjum degi.
Þær breytingar sem gera þyrfti á slátur-
húsum þurfi góðan undirbúning og kosti
nokkurra ljármuni. Því væri eðlilegt að
sérhæfa ákveðin hús til þess að stunda
brytjun í sláturtíð einkum þar sem
geymsluvandræðin eru mest. Andrés segir
niðurstöður þessarar rannsóknar lofa góðu
að öðru leyti en því að aðstöðu skorti.
Víða hátti þannig til að handlanga þurfi
kjötskrokka í geymslu og því verði að
nýta starfskraft, sem annars gæti farið í að
brytja kjöt, til þeirra verka.
Kjötmatsmálin
aðeins einn þáttur
Andrés segir sveitafólk lengi hafa
verið uppistöðuna í vinnu við sauðíjár-
slátrunina en vegna þess að fólki fækki
stöðugt í sveitum verði sífellt erfiðar að
manna sláturhúsin á haustin. Því verði að
treysta á óvant fólk í meira mæli sem
eðlilega leiði af sér minni afköst. Andrés
segir að slátrun sé í raun fag en á meðan
staðið sé að sauðíjárslátruninni með
núverandi hætti verði erfiðleikum bundið
að fá fagfólk til þessara starfa. Takmarka
verði fjölda sláturgripa á dag við það sem
unnt sé að ganga frá. Frágangurinn sé ekki
síður mikilvægur en slátrunin og ekki
hægt að ætlast til að hann sé unninn af
óvönu fólki. Andrés kveðst þeirrar skoð-
unar að vinnuaðferðir við sölu sauðfjár-
afurða hafi ekki verið bændum hagstæðar.
Bændur hafi ekki fengið nægilega til-
finningu fyrir markaðinum og það komi
bæði þeim sjálfum og afurðastöðvunum í
koll. Því þurfi að vinna að breyttu um-
hverfi. Lengja verði sláturtíðina. Huga
verði að betri frágangi og meiri full-
vinnslu afurða. Kjötmatsmálin séu vissu-
lega mikilvæg en aðeins eitt atriði af
mörgum sem huga verði að.
Skipulegga þarf
sláturtímann betur
Andrés Jóhannesson segir mikilvægt
að skipuleggja sláturtímann sem best og
nauðsynlegt að bændur viti með góðum
fyrirvara, helst einu ári, hvenær þeir geti
fengið pláss í sláturhúsi. Mikilvægt sé að
fá dilkana til slátrunar á þeim tíma sem
kjötið sé verðmætast. Andrés segir að
veðrátta hafi hingað til ráðið of miklu um
hvernær bændur vilji slátra. Dæmi séu um
að sláturhús hafi ekki fengið fé á meðan
tíð hafi verið góð en um leið og veður hafi
versnað hafi allir viljað koma - jafnvel
sama daginn. Hver maður hljóti að sjá að
slíkt skipulag geti ekki gengið. Því verði
að huga að þessum þáttum jafnhliða því
sem unnið verði að lengingu slátur-
tíðarinnar. Slíkt sé í þágu markaðarins og
þar með einnig í þágu bænda.
mmsmB nwLmmi
.g“'
Verð á rúlluplasti frá
okkur hefur aldrei verið
hagstæðara en eínmitt
um þessar mundir.
Gerið hagkvæm
innkaup og hafið
samband við okkur eða
umboðsmenn okkar um
land allt.
VELAVERf
Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Simi: 588 2600, fax: 588 2601
''s.
Vegna hagstæðra
samninga við Bonar
Polythene Fílms, einn
stærsta og þekktasta
framleiðanda á
rúllubaggaplasti, getum
við boðið eftirfarandi:
Silotite hvítt plast
500 mm x 1 800 m kr. 3.670
án vsk hver rúlla
Silotite hvítt plast
750 mm x 1500 m kr. 4.600
án vsk hver rúlla
Þessi verð gilda aðeins
fyrir pantanir sem
gerðar eru fyrir 1 O
apríl nk.
NIIEK TÆKIFÆKI Tll M EEM HMSTÆBINNKKBP!