Bændablaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 15

Bændablaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 27. febrúar 2001 BÆNDABLAÐIÐ 15 að norrænir víkingar í Danmörku fláðu dýrin lifandi... ítalskur ráðherra hélt því líka fram að í minkabúrum þyrfti að vera lítið baðkar... Að lokum má nefna norska sjónvarpsmenn sem tóku upp um 60 klukkustundir af efni í loðdýrabúum í Noregi. Þeir bjuggu til tíu mínútna þátt sem sýndi aðeins það versta sem hægt var að finna. Myndin gaf alranga mynd af ástandi mála í Noregi en hún var vatn á myllu þeirra sem eru andsnúnir atvinnuvegnum. Bara pláss fyrir þá sem eru bestir... I öllum löndum Evrópu er förgun úrgangs að verða vandamál. Búið er að setja reglur um notkun tanka undir minka- og refasaur í Dan- mörku svo dæmi sé tekið en Norð- menn eiga tankvæðinguna eftir. „I loðdýrarækt er bara pláss fyrir þá sem eru bestir. Ekki fyrir hina,“ sagði gestur á uppboðinu í Kaupmannahöfn. Líklega er nokkuð til í þessum orðum. Markaðurinn er harður húsbóndi. Gífurleg samkeppni leiðir til þess að loðdýrabændur leita stöðugt leiða til að verða betri. Miðað við að tvöhundruð krónur danskar fáist fyrir minkaskinn er talið að 65 krónur fari í fóður, 25 í skinna- verkun, 40 í aðkeypta vinnu og 25 krónur fari í ýmsan kostnað. Fram- leiðslukostnaður á undan íjár- magnsliðum og eigin vinnu er því um 150krónurdanskar. Forsvaismenn uppboðshússins sögðust ekki líta á íslenska fram- Ieiðendur sem keppinauta - þvert á móti. „Við viljum veita ykkur alla þá aðstoð sem við getum,“ sagði forstjóri uppboðshússins. „Hér getið þið fengið tæknilegar og fag- legar upplýsingar." Hann bætti því við að af hálfu uppboðshússins væru gæði ætíð lögð til grundvallar. Danskir loðdýrabændur eru ekki skyldugir til að leggja afurðir sínar inn hjá uppboðshúsinu. Það sagði forstjórinn að væri gert í þeim til- gangi að starfsmenn uppboðs- hússins yrðu að láta gæði, vöru- þróun, tækniaðstoð og. leið- beiningar - og ekki síst gott verð - seiða til sín bændur. Norðmenn feta í fótspor Dana - m.a. í gæðastjómun en fram kom hjá Norðmönnum að áhersla er lögð á að greina rekstur hvers bónda og finna styrkleika og veikleika í búskapnum. Auðvitað leiðir þetta til betri búskaparhátta en á Islandi má e.t.v. finna hliðstæðu í markmiðstengdum búrekstrar- áætlunum og í Sunnuverkefninu. Við höldum áfram umfjöllun um ferðina til Danmerkur í næsta blaði, en þá kemur grein eftir Hjálmar Arnason, alþingismann. Gleðilegt að Danir hafa áhuga á að styðja íslenska loðdýrarækt „Auðvitað hljótum við að velta fyrir okkur hvaða möguleika við eigum til þess að taka meiri þátt í starfsemi DPA. Það er reyndar mjög gleðilegt að Danir hafa mikinn áhuga á því að fá okkur með í auknum mæli. Þannig bjóða þeir fram alla aðstoð á sviði tækni og faglegra upplýsinga. Sömu- leiðis getum við notað sölu- og markaðskerfi Dana en segja má að í raun geti íslenskir bændur komið að þessu á sama grunni og þeir dönsku. Þetta tilboð DPA er ekki alveg nýtt af nálinni en spurningin er fyrst og fremst sú hvort ís- lendingar geti framleitt á sama verði og Danir. Fleiri spurningar sækja einnig að; hvernig og þá hvort styðja eigi loðdýrarækt á Is- landi,“ sagði Ari Teitsson for- maður Bændasamtakanna. Ari sagði athyglisvert að fá tækifæri til að sannreyna það hve Danir væru miklir rekstrarmenn. „Þeir horfa mjög nákvæmlega í allan kostnað og það er auðvitað ástæðan fyrir því að þeir stóðu betur af sér síðustu kreppu en aðrir loðdýrabændur. I raun og veru veltur framtíð loðdýraræktar á ís- landi á því hvað okkur tekst að læra af Dönurn. Hvar hægt sé að draga úr kostnaði og hvernig megi framleiða skinnin ódýrt. Þegar því skrefi er náð er rétt að svara spurningunni um hvort það sé í raun og veru skynsamlegt að styrkja loðdýrarækt á íslandi í ljósi umhverfis- og byggðamála eins og Norðmenn gera,“ sagði Ari. Ari gerði byggðastyrki Norð- manna að umtalsefni og sagði að markmið með þeim væru tvenns- konar. Annars vegar að halda byggð á svæðum og hins vegar að nýta loðdýrarækt til að eyða úr- gangi frá laxeldi og sláturhúsum. „Það er Ijóst að Norðmenn telja það þjóðhagslega hagkvæmt að nýta úrganginn á þennan hátt,“ sagði Ari og benti á að í Noregi væri víða illmögulegt að grafa úr- ganginn í jörð. - I þeim upplýsingum sem við höfum fengið kemur fram að lík- lega búi fáar þjóðir við jafn ferskt og gott hráefni í loðdýrafóður. „Já, það hefur lengi verið vitað en söfnunarkostnaður er mun hærri á Islandi. Norðmenn hafa reynt að leysa þetta með beinum stuðningi sem nemur um þremur til fjórum krónum á hvert fóðurkíló. Danir á hinn bóginn taka málið öðrum tökum. Danskur landbúnaður er geysilega umfangsmikill og þeir hafa litið svo á að þeir hefðu enga möguleika á að styðja sinn landbúnað. Það er kannski svipuð staða og við erum í varðandi fiskinn, þ.e.a.s. að svona stóran atvinnuveg er ekki svigrúm til þess að styðja." - Ymsir þeirra sem ræddu við íslenska hópinn höfðu orð á að dýraverndunarsamtök hefðu oft farið offari. ,Já, um langt skeið hafa dýra- og umhverfissamtök gagnrýnt íoð- dýrarækt. Danir virðast ekki hafa umtalsverðar áhyggjur en þeir hafa ætíð reynt að vera á undan um- hverfissinnum í því að bæta að- búnað loðdýra. Danskur loð- dýraiðnaður hefur sett sínar eigin reglur sem eru í raun og veru strangari en reglur ESB. I Dan- mörku og Noregi ríkir almennt skilningur á því að loðdýraræktin er ekki óvinveitt dýrum. Danir hafa t.d. lagt áherslu á opna um- ræðu og að bændur séu ófeimnir við að sýna almenningi að þeir búi vel að sínum dýrum. Þetta er vísasta leiðin til að eyða tortryggni og neikvæðri umræðu en Danir eru líka praktískir og mjög raunhæft hugsandi á öllum sviðum." - Framtíðin? „A Islandi er fáanlegt gott hrá- efni í verulegum mæli. Við hljót- um því að spyrja okkur hvort við getum ekki gert meira og betur en við gerum nú um stundir." „Þessi ferð skilar miklu en hér fengu nienn að sjá það svart á hvítu hvað loðdýrarækt er umfangsmikil atvinnugrein. Vonandi finnunt við leið til þess að við getum tekið þátt í leiknum,“ sagði Jón Sigurðsson, loðdýrabóndi og varafomaður SIL. Hver er framtíð loðdýrarcektar á íslattdi? „Eg tel að hún sé björt. Við höfum öll skilyrði hér heima en það þarf að hlúa betur að henni. Greinin er mjög skuldsctt núna og virðist ekki komast upp úr skuldunum. Það er okkar stærsta vandamál.“ Peysur úr blöndu af minkahári og merinóull Rétt fyrir norðan Kaupmannahöfn er SAGA Design Center - eða hönnunarsetur SAGA sem er rekið af uppboðshúsum loðdýraskinna á Norðurlöndum. Markmið setursins er að koma með hugmyndir að nýjum vörum sem síðar eru fram- leiddar af frægum fyrirtækjum, en hönnunarsetrið tekur ekki beinan þátt í framleiðslu. Athyglisvert er að setrið býður til sín nýjum og óþekktum hönnuðum - yfirleitt ungu fólki - sem er að stíga sín fyrstu skref á hönnunarbraut. Einar Einarsson loðdýrarækt- arráðunautur sagði að þarna hefðu ýmsar vörur sem tæplega hefðu annars orðið til séð dagsins ljós. Hann tók sem dæmi að ungir hönnuðir hefðu gert tilraunir í litun skinna og einnig peysum sem prjónaðar eru úr blöndu af minka- hárum(30%) og ull af merinófé (70%). Einnig mátti sjá band sem var úr refahárum (50%) og ull (50%). „Þetta er náttúrlega alveg ótrúlegt," sagði Einar og bætti við: „Eg lít á þennan þráð nú eins og þeir sem sáu fyrstu lituðu skinnin fyrir tæpum tíu árum síðan. Þetta er eitthvað nýtt og þarna getur átt eftir að þróa einhverjar nýjar vörur - við vitum það ekki - og þetta er spennandi.“ „Mér finnst gaman að sjá hvað er mikið hugsað um markaðs- setningu á hönnunarsetrinu. Þetta er sérstaklega áhugavert fyrir bændur. Hafi þeir ekki áttað sig á styrk DPA og hönnunarsetursins hljóta þeir að sannfærast þarna,“ sagði Einar ráðunautur. „Það er gott að sjá hvernig aðrir gera hlutina enda er alltaf hægt að læra af öðrum,“ sagði Ólafur Friðriksson, dcildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu. A liðnu ári kom út umfangsmikil skýrsla um stöðu og horfur í loðdýrarækt og sagði Ólafur að ferðin út hafi styrkt þá trú hans að loðdýrarækt eigi rétt á sér á íslandi. „En menn þurfa að ná betri tökurn á kostnaði og einbeita sér að framleiðslu stærri og betri skinna,“ sagði Ólafur og bætti því við að með aukinni sainvinnu bænda og betri rannsóknum ættu Islendingar að geta náð því að vera jafnfætis Dönum. Það er ekki á hverjum degi sem menn fá tækifæri til að skoða uppboðshús DPA og margt vekur forvitni. Þarna er forstjórinn, Torben Nielsen, að ræða við hluta af hópnum um verðmæti lagersins sem er mikið eins og kemur fram í fyrirsögn. Lengst til vinstri eru þeir feðgar Einar E. ráðunautur og Einar Gíslason bóndi, þá Torben, Gestur Þorsteinsson útibússtjóri Búnaðarbankans á Sauðárkróki, Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri Lánasjóðsins, Ólafur Friðriksson deildarstjórh' landbúnaðarráðuneytinu, Hjálmar Árnason alþingismaður, Jón Sigurðsson varaformaður SÍL og Björn Halldórsson, formaður SÍL: UnÉlsverðir styrkir Sl loððýrsræklar íHloregi Odd Harald Nordsveen stjómarformaður í félagi norskra loðdýrabænda sagði að í Noregi væri litið á loðdýrarækt sem byggðamál. Heildarvelta greinarinnar þar er um þrír milljarðar íslenskra króna. Stjóm- völd vildu dreifa framleiðslunni þannig að þessi atvinnugrein væri stunduð jafnt við sjávarsíðuna og inn til dala. Norskir loð- dýrabændur geta sótt um fjárfestingarstyrk sem nemur 1,5 milljónum íslenskra króna þegar þeir heíja byggingu nýrra húsa fyrir loðdýr sín eða ráðast í endurbætur á eldri húsum. Einnig stendur þeim til boða vaxtalaust lán með hagstæðum afborgunar- skilmálum til fimmtán ára að upphæð kr. fimm milljónir. Athygli vekur að þetta lán kom á síðasta veðrétt. Þessir tveir liðir mega nema um 40% af kostnaði við byggingar og jarðfastan vélbúnað. Gerð er krafa um 20% af eigin fé. Norsk loðdýrarœkt er aukabúgrein Þá kom fram hjá Odd að norsk stjórnvöld líti á loðdýrarækt sem aukabúgrein og því hafi ekki verið gerðar jafn miklar fram- leiðnikröfur til hennar og margra annarra búgreina. Til þess að loðdýrarækt hafi getað gegnt umræddu byggðahlutverki hafa stjómvöld veitt henni umtalsverðan stuðning en kostnaður við flutning á fóðri er greiddur niður. A síðasta ári nam þessi niðurgreiðsla 25 milljónum norskra króna, en ársnotkun á fóðri er um 60-90 þúsund tonn. Norðmenn gera ráð fyrir að árlega séu eknir 1,6 milljónir km með fóður í Noregi! Nánar tiltekið nemur heildarstyrkurinn um 350-380 milljónum eða sex til sjö krónum íslenskum á hvert kg af fóðri. Þess má geta að í Noregi er kjamfóður- skattur sem fyrst og fremst er hugsaður til að vernda norska kjamfóðurframleiðslu. Þar sem loðdýrarækt framleiðir fyrst og fremst til útflutnings fær hún kjarnfóðurskatt endurgreiddan. Einnig fá loðdýrabændur, a.m.k. á stundum. greiðslu vegna nýtingar sláturúrgangs. I Noregi eru fjórtán fóður- stöðvar. Norskir loðdýrabændur framleiða um 320 þúsund minkaskinn á ári og 400 þúsund refaskinn. Áætlanir eru uppi um að auka loðdýrarækt í Noregi en fyrir röskum áratug framleiddu þeir tvær milljónir minkaskinna. Tiltölulega lítil bú Alls em um 1000 bændur sem eitthvað kveður að í loðdýrarækt. Að jafnaði em um hundrað refalæður á norskum búum eða tæplega 400 minkalæður. Um 80% loðdýra- ræktar í Noregi er rekin sem aukabúgrein. Fagleg leiðbeiningaþjónusta er kostuð af greininni. Athygli vakti að norskir loðdýrabændur reka verðjöfnunarsjóð (sem sumir vildu nefna sveiflujöfnunarsjóð) sem er séreignar- sjóður. Bændur greiða í sjóðinn þegar vel árar og skinn em í háu verði. Hámarks- greiðsla pr. refaskinn em tvöhundruð krónur norskar. Skattlagningu á greiðslur bændanna er frestað en ef verðið er lágt fá þeir greitt úr sjóðnum og þá eru þær greiðslur taldar fram til skatts. Að hámarki fá bændur greiddar hundrað krónur norskar pr. refaskinn úr sjóðnum. Þá geta þeir tekið 20% af inneign út úr sjóðnum án þess að gera grein fyrir notkun og standi þeir í fjár- festingu geta þeir tekið 40% úr sjóðnum. Miklar kröfur til landbúnaðar Rétt er að geta þess að stjómvöld gera afar miklar kröfur til landbúnaðar í Noregi og nefna má að t.d. em reglur um bústærð og búsetu. Norðmenn fullyrða að ofangreind aðstoð sé þeim nauðsynleg og án hennar væri illmögulegt að stunda búskap. Öfugt við Norðmenn styrkja Danir ekki loðdýrarækt en í Danmörku líta stjórn- málamenn ekki á loðdýrarækt sem byggða- mál. Þess má geta að samkvæmt reglum ESB eiga finnskir loðdýrabændur á Vasa- svæðinu rétt á samskonar styrkjum og norska ríkið greiðir norskum loð- dýrabændum. Norðmenn fullyrtu að finnskir bændur fengju einhverja styrki frá ESB en vissu ekki hve háar fjárhæðir renna úr sjóðum í Brussel til Finnlands. ^ I »

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.