Bændablaðið - 13.03.2001, Qupperneq 20
20
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. mars 2001
Vegsvæðanefnd, sem starfað hefur nú í tæp þrjú ár, hefur sent frá
sér lokaskýrslu sem ber nafnið Þjóðvegir og búfé. í henni leggur
nefndin fram tillögur til úrbóta í 16 liðum. M.a. er gert ráð fyrir að
Vegagerðin og sveitarfélög geri sameiginlega úttekt á stöðunni m.t.t.
þess hvar slysin eru tíðust, hvar alvarlegustu slysin verða og hvar
lausaganga sé mest. Þar á að meta hvar þörf sé fyrir nýjar girðingar,
endurnýjun girðinga eða gerð lokaðra hólfa. Þá á að meta kostnað
vegna þessara aðgerða. Þessari úttekt á að verða Iokið fyrir 1. sept-
ember nk.
í framhaldi af því eiga
framkvæmdir að hefjast og skal
stefnt að því að ljúka þeim innan
þriggja ára. Uppsetning og viðhald
girðinga verður í umsjá Vega-
gerðarinnar og kostað af henni
með viðbótarframlagi frá ríkinu. í
framhaldi af þessu verða til tvenns
konar vegir til sveita. Annars vegar
eru friðaðir vegir sem eru þá varðir
annaðhvort með samfelldum
sérstökum veggirðingum eða með
sérstökum beitarhólfum fyrir búfé
fjarri vegi. Hins vegar eru opnir
vegir þar sem komið verður upp
leiðbeinandi umferðarmerkjum
fyrir ökumenn þar sem þeir mega
búast við búfé á vegum.
Nefndin leggur einnig til að
sveitarstjómir verði hvattar til að
koma á banni við lausagöngu
stórgripa og sauðfjár þar sem
aðstæður leyfa. Um þetta var
reyndar ekki samstaða í nefndinni
því að fulltrúi Félags íslenskra
bifreiðaeigenda vildi að þetta bann
yrði víðtækara en meirihluti nefnd-
arinnar mat það svo að aðstæður
leyfðu þetta ekki alls staðar. Einn-
ig er lagt til að Vegagerð og
lögregla hafi með höndum eftirlit
með búfé á vegsvæðum þar sem
girt er með veggirðingum og
lausaganga bönnuð. Sveitarfélög
annist hins vegar handsömun og
ráðstöfun lausagöngufénaðar og
búfjáreigendur beri kostnað af
þeirri handsömun.
Þá lagði vegsvæðanefndin
einnig fram tillögur um að trygg-
ingafélögin standi árlega að
fræðslu- og kynningarstarfsemi
um varúð í umferðinni gagnvart
búfé, að geftð verði út fræðsluefni
um búfé á vegsvæðum, að
búfjáreigendur verði hvattir til að
kaupa ábyrgðartryggingar sem
bæta tjón á vegsvæðum þar sem
lausaganga er bönnuð, bann verði
lögleitt gegn búrekstri á þjóðveg-
um í rökkri og dimmu og að við
hönnun og lagningu nýrra vega
verða gerðar tilraunir til að setja
undir göng eða „opnar rásir" við
helstu rennslisleiðir búfjár.
Níels Arni Lund, formaður
Vegsvæðanefndar, segist
sannfærður um að ef farið verður
eftir þessum reglum muni það
marka tímamót í umferðarmálum
og slysum muni fækka. „Það
verður að hafa í huga að núverandi
girðingar eru ekki til þess að friða
vegi fyrir búfé heldur til þess að
afmarka og loka af löndum."
Níels segir að ástandið eins og
það er núna sé algjörlega óviðun-
andi. „Þegar girt er meðfram
býlum sem búið er á en engin
girðing er meðfram næsta bæ þar
sem það er eyðibýli er lítill til-
gangur í girðingunni þar sem búfé
kemst auðveldlega á veginn með
því móti. Nú hefur vegalögum
reyndar verið breytt á þann hátt að
Vegagerðinni er heimilt að girða
meðfram vegum á eyðibýlum og
það er vissulega til bóta. Nefndin
væntir þess að tillögur þessar verði
stefnumótandi í framtíðinni og að
öryggi í umferðinni aukist
stórlega, bæði ökumönnum og
búfjáreigendum til hagsbóta."
Auk Níels Arna voru í þessari
vegsvæðanefnd Ólafur R.
Dýrmundsson frá Bænda-
samtökum íslands, Runólfur
Ólafsson frá Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda, Stefán Erlendsson
frá Vegagerðinni, Sandra Bald-
vinsdóttir frá dómsmálaráðuneyt-
inu og Valgarður Hilmarsson frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Vegna hagstæðra samninga við Case IH verksmiðjurnar getum við
boðið einstaklega vel búna 94 hestafla dráttarvél á verði sem
vart á sinn líka miðað við staðalbúnað.
Dráttarvélarnar eru frábærlega hannaðar
með lágu nefi og lágan þyngdarpunkt og
mikla sporvídd sem gerir vélina sérlega
örugga og stöðuga í brattlendi.
Mjög fullkominn stjórnbúnaður á beisliskerfi,
framdrifi og driflæsingum.
Örugg gangsetning í mestu kuldum og
sjálfvirkur öryggisbúnaður sem
drepur á vélinni við
hættuástand.
Sérstakur sjálfvirkur
ÖRYGGISBÚNAÐUR INNIFALINN
í STAÐALBÚNAÐI, SEM VER DRÁTTARVÉLINA
OG AFLÚRTENGD TÆKI FYRIR ÓÞARFA SLITI OG SKEMMDUM.
Framdrif:
"on" stilling - framdrif sítengt
"auto" stilling - framdrif aðeins tengt þegar ekið er hægar en 14 km/klst.
"off" stilling - framdrif ótengt
Mismunadrifslós:
"on " stilling - mismunadrifslásar í fram og afturöxlum sítengdir 100%
"auto" stilling - mismunadrifslásar í báðum öxlum tengdir þegar ekið er hægar en 14 km/klst.
Lásarnir aftengjast einnig ef stigið er á annan hvorn bremsupedalann
"off" stilling - framdrif ótengt
Aflúttak:
"on" stilling - aflúttak sítengt
"auto" stilling - aflúttak aftengist þegar beisli er lyft um 22 sm. frá neðstu dýptarstillingu
" off " stilling - aflúttak ótengt
VELAR&
ÞJéNUSTAuF
Þekktir fyrir þjónustu
Járnhálsi 2 ■ iio Reykjavík ■ SÍMi: 5-800-200 ■ Fax: 5-800-220 ■ www.velar.is
Óseyri 1a ■ 603 Akureyri ■ Sími: 461-4040 ■ Fax: 461-4044
Selfoss, pakkhús v/Tryggvatorg ■ 800 Selfoss ■ SÍMI: 482-1501 ■ Fax: 482-2819
Hella, pakkhús ■ 850 Hella ■ Sími: 487-5886 og 487-5887 ■ Fax: 487-5833
Staðalbúnaður Case IH CS94
• Öflug togmikil 4 strokka 4.4 lítra Sisu díselvél með
túrbínu sem skilar 94 hestöflum við 2100 sn/mín.
og 356Nm. togalli
• 4 gíra kassi 16x16 mcð rafstýrðum vökva milligír og
vendigír með "Multi Controler" stjórnbúnaði
• 40 km/klst ökuhraði
• 100% vökvalæsing á fram og afturdrifi
• 4 hraða aflúttak, 430, 540, 750, 1000
• Drifskaftsöryggi á þrítengibeisli
• Rafstýrt beisli með sjálfvirkri dýptar- og plógstillingu
• Beislisstýring aftan á afturbrettum, einnig í
vendigírsstöng
• 4900kg lyftigeta á beisli
• Opnir beislisendar
• Lyftukrókur
• Fjöðrun á beisli í flutningsstöðu
• Vökvakerfi með tveimur vökvadælum, 50 I/mín.
og 46 1/mín.
• 3 tvívirk vökvaúttök, (þar af eitt rafstýrt í
vendigírsstöng)
• Vagnbremsuúttak
•Vandað, rúmgott og hljóðlátt ökumannshús, 72dB
• Hæðarstillt veltistýri
• Ökumannssæti með loftpúðafjöðrun, snúningi og
sjálfvirkri þyngdarstillingu auk fram og afturfjöðrunar
• Farþegasæti
•Topplúga
• Utvarp og segulband
• Stafrænt mælaborð með snúningshraðamæli á vél
og aflúttaki
• 3 hraða miðstöð með ryksíu, einnig 3 hraða
ferskloftsvifta
• Púströr til hliðar við framrúðu
• Utdraganlegir baksýnisspeglar
•Afturrúðuþurrka
• 4 vinnuljós að aftan, tvö að framan auk ökuljósa
• Hjólbarðar að framan 440/65x24, að aftan 540/65x34
Michelin XM 108 Radial
Haí'ið samband \ ið sölumenn okkar og fáið
nánari upplýsingar um þetta einstaka tilboð.
Finungis er takmarkað magn véla á þessu
verði sem er aðeins kr. 2.990.()()()- án \ sk.
án skráningar, númers og flutnings
Alltaf SKREFI FRAMAR
www.velar.is