Bændablaðið - 13.03.2001, Page 25
Þriðjudagur 13. mars 2001
BÆNDABLAÐIÐ
25
BIOFACH 2001
Vðrnsýning og viðskipta-
þing með lífrænar afurðir
BIOFACH 2001 var haldirt dagana 15.-18. febrúar sl. Hún er stærsta
sýning heims á Iífrænum afurðum og er haldin árlega, síðustu árin í
Nurnberg í Þýskalandi. Sýningin endurspeglar þá miklu grósku sem
er um þessar mundir í lífrænni framleiðslu. Flestir sýningaraðilar
voru frá Þýskalandi og Italíu, en einnig voru talsvert margir frá
Austurríki, Frakklandi, Hollandi, Spáni og Sviss. Alls sýndu fyr-
irtæki og stofnanir frá 55 löndum úr öllum heimsálfum á sýningunni.
LandbúnaQarverðlaun
veítt í fimmta skipti
Gróska í lífrœnni framleiðslu
Miðað við margar fyrri sýningar
var BIOFACH 2001 mun viðam-
eiri að stærð og fjölbreytni, vöru-
þróun og þekkingu sem boðin er
fram. Þar mátti sjá allt það nýjasta
í tífrænum matvælum, snyrti-
vörum, heilsuvörum, fatnaði og
jafnvel húsgögnum sem framleidd
eru með lífrænum aðferðum eða
byggð eru á sjálfbærum náttúru-
nytjum. Þá var unnt að kynnast
margþættri þjónustustarfsemi sem
tengist lífrænni framleiðslu, t.d.
hagsmunasamtökum, ráðgjafafyr-
irtækjum, vottunarstofum og
rannsóknarstöðvum sem sérhæfa
sig á þessu sviði. Jafnhliða
sýningunni voru málstofur um
ýmsa þætti markaðarins, t.d. var
málstofa um nýjustu rannsóknir á
höfrurn og hollustu þeirra, önnur
um nýútkomna reglugerð um
lífræna ræktun í Bandaríkjunum,
þriðja um samskipti einkageirans
og hins opinbera í vottunar- og
staðlamálum o.s.frv.
Bretland „land ársins“
Mikil eftirvænting og bjartsýni
einkenndi BIOFACH 2001 og
andrúmsloft var hlaðið jákvæðri
spennu, enda er lífræn framleiðsla
í gífurlegri sókn um þessar mundir
í mörgum löndum Evrópu. Þá var
það engin tilviljun að Bretland var
„land ársins" á BIOFACH 2001.
Á Vesturlöndum má vart finna
meiri vaxtarhraða í lífrænni
ræktun en einmitt á Bretlandi.
Land sem er vottað lífrænt er enn
mjög lítill hluti heildar landnotk-
unar, en eykst árlega um 40-60%,
og matvælamarkaðurinn hefur
vaxið um 40% sl. tvö til þrjú ár.
Vöruþróun - Lífrœnn eldisfiskur
Áberandi var hve vöruþróun í
lífrænni framleiðslu er ör, enda
vel þekkt að innan þessa geira
koma oft hlutfallslega fleiri
vörunýjungar fram á hverju ári en
í hefðbundinni framleiðslu. Sér-
stök sýningardeild vakti athygli á
170 vörutegundum sem hafa bæst
í hópinn á síðasta ári. Meðal nýrra
afurða sem vöktu hvað mesta at-
hygli var vottaður lífrænn eldis-
fiskur, framleiddur af þýsku fyrir-
tæki, en lífrænt fiskeldi er nú hafið
í nokkrum löndum Evrópu. Þess
má geta að á fundi Landssam-
bands fiskeldis- og hafbeit-
aistöðva sem haldinn var í
Reykjavík 23. febrúar sl. voru
kynntar nýjar reglur um vottun á
lífrænu fiskeldi sem LFH, Hóla-
Fundað nm janOnækl
á AMrlandi eyslra
Fundir um jarðrækt verða
haldnir á Norðurlandi eystra
fimmtudaginn 22. mars. f
Ydölum verður fundur kl.
13:30 og á Fosshótel KEAkl.
20:30. Umræðuefnið verður
jarðrækt í víðum skilningi,
ræktunarskipulag,
endurvinnsla túna, sáðskipti
og fleira. Frummælendur
verða Áslaug Helgadóttir,
sviðsstjóri jarðræktarsviðs
RALA og Jónatan
Hermannsson, tilraunastjóri á
Korpu
skóli og fleiri aðilar hafa unnið í
samstarfi við vottunarstofuna Tún.
Ákjósaitlegur vettvangur til
viðskiptasambanda
Fulltrúi vottunarstofunnar Túns,
sem vottar lífrænar afurðir á Is-
landi, sótti sýninguna en ekki er
vitað til þess að aðrir íslenskir
aðilar hafí gert það. Er það sér-
staklega tilfinnanlegt ef íslensk
fyrirtæki láta þessa miklu sköpun
og gerjun framhjá sér fara. BIOF-
ACH er ákjósanlegur vettvangur
til að stofna til viðskiptasambanda
og kynnast því nýjasta í fram-
leiðslu sem uppfyllir ströngustu
kröfur í umhverfismálum og
höfðar til upplýstra og kröfuharðra
neytenda. Upplýsingar um sýning-
una má fá á heimasíðu www.biof-
ach.de.
Guitnar Gunnarsson,
Vottunarstofunni Túni.
Það var við setningu Búnaðar-
þings 1997 að þáverandi land-
búnaðarráðherra, Guðmundur
Bjarnason veitti í fyrsta skipti
landbúnaðarverðlaunin. Guðni
Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra, veitti þessi verðlaun í
fímmta skipti við upphaf nýlok-
ins búnaðarþings. Samtals eru
verðlaunahafarnir orðnir 11 og
dreifðir um allt.
Að þessu sinni fengu land-
búnaðarverðlaunin þau Kristín
Bára Ólafsdóttir og Leifur
Þórarinsson, ábúendur í Keldu-
dal í Skagafirði fyrir farsælan al-
hliða ræktunarbúskap.
Nú er búskapur í Keldudal
kominn að mestu á hendur yngri
hjónanna Guðrúnar Lárusdóttur og
Þórarins Leifssonar sem halda
merkinu á lofti í hvívetna.
Hinn verðlaunahafinn að þessu
sinni er Félagsbúið á Odd-
geirshólum í Hraungerðis-
hreppi. Oddgeirshólar í Hraun-
gerðishreppi í Flóa, landnámsjörð
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, ásamt verðlaunahöfum,
Kristínu Báru Ólafsdóttur, Leifi
Þórarinssyni og Magnúsi
Guðmundssyni.
og góðbýli að fornu og nýju eru
löngu þekktir og nafn þeirra jafnan
bundið við frábæran árangur í
sauðfjárrækt. Þar bjuggu lengi á
nýliðinni öld í félagsbúi, bræðurnir
Guðmundur, Ólafur og Jóhann
Árnasynir og þeirra skyldulið. Þá
var grunnurinn lagður og skjótum
árangri náð, sem enn hefur verið
bættur af núverandi ábúendum.
Félagsbú á Oddgeirshólum
reka nú bræðurnir Magnús og
Steinþór Guðmundssynir og Þur-
íður Einarsdóttir kona Steinþórs.
„Þeirn búendum á Odd-
geirshólum; Þuríði Einarsdóttur,
Steinþóri Guðmundssyni og
Magnúsi Guðmundssyni eru veitt
landbúnaðarverðlaun fyrir
frábæran árangur í búfjárrækt
byggðan á þeim góða grunni sem
þau tóku við,“ sagði Guðni
Ágústsson.
Ræða ráðherra er birt í heild á
heimasíðu BI (bondi.is)
Afkvæmadómur nauta Irá 1994
Það hefur áður komið fram á
síðum Bændablaðsins að í hópi
nauta frá 1994 eru margir mjög
góðir kynbótagripir. Nú liggur
fyrir afkvæmadómur á þessum
nautum. Samtals voru 22 naut í
þessum hópi. Af þeim fengu
sautján notkunardóm og verða
fjórtán þeirra í almennri notkun
á næsta ári. Fimm af nautunum
voru talin óhæf til frekari nota.
Hér á eftir verður gerð örstutt
grein fyrir þeim nautum sem valin
hafa verið til áframhaldandi notk-
unar.
Sokki 94003 er frá Eyði-
Sandvík í Sandvíkurhreppi undan
Lista 86002 og Stjörnu 229 sem
var Tvistsdóttir. Þetta naut gefur
einstaklega mjólkurlagnar kýr, fær
131 í kynbótamat um mjólkur-
magn sem er hærra en nokkuð
annað naut. Fituhlutfall mjólkur er
mjög lágt en próteinhlutfall í
mjólk á meðaltali. Júgurgerð er
gölluð hjá þessum kúm þannig að
of margar þeirra eru síðjúgra.
Mjaltir og skap í góðu meðallagi.
Heildareinkunn 113.
Klaki 94005 er frá Urriðafossi
í Villingaholtshreppi, sonur
Hólms 81018 og Kotu 167 sem
var Tvistsdóttir. Klaki er umfram
allt próteinnaut, gefur dætur með
hátt próteinhlutfall í mjólk. Mjólk-
urmagn í tæpu meðaltali. Sterk-
byggðar kýr en sumar full stríð-
lyndar í skapi. Heildareinkunn
102.
Völsungur 94006 er frá Eyja-
dalsá í Bárðardal, undan Þræði
86013 og Bröndu 29 sem var
Tvistsdóttir. Þetta naut gefur mjög
mjólkurlagnar kýr með há efna-
hlutföll í mjólk. Þessar kýr fá
einnig mjög góðan dóm um rnjalt-
ir og skap. Að skrokkbyggingu
eru þetta fremur veigalitlar kýr.
Völsungur verður notaður sem
nautsfaðir. Heildareinkunn 118.
Hamar 94009 er frá Voð-
múlastöðum í Austur-Landeyjum
undan Bassa 86021 og Sleggju
185, sem var undan Kóngi 81027.
Hann gefur í meðallagi mjólkur-
lagnar kýr með gott próteinhlutfall
í mjólk. Fallegar kýr með góðan
dóm um mjaltir og skap. Heilda-
reinkunn 105.
Pinkill 94013 er frá Hvammi í
Eyjafjarðarsveit, undan Bassa
86021 og Sídu 277 sem var
Tvistsdóttir. Hér fara stórar,
stundum aðeins grófbyggðar kýr
með mikla getu til að mjólka og
hátt próteinhlutfall í mjólk. Kyn-
bótamat um frumutölu neikvætt
og einnig dómur um mjaltir en
mjög góður dómur um skap.
Heildareinkunn 113.
Vestri 94015 kemur frá Mó-
bergi á Rauðasandi, sonur Bassa
86021 og Snældu 52 sem var
Tvistsdóttir. Þetta naut gefur í
meðallagi mjólkur-
lagnar kýr
með
Kaðall 94017 var fæddur í
Miklagarði í Saurbæ, undan Þræði
86013 og Ljósu 100 sem var dóttir
Daða 87003. Dætur hans eru mikl-
ar mjólkurkýr með há efnahlutföll
í mjólk. Góð júgur- og spenagerð
og mjög góður dómur um mjaltir
og skap. Kaðall á að notast sem
nautsfaðir. Heildareinkunn 121 og
um leið besta naut í árganginum
með hæstu heildareinkunn hjá
íslensku nauti.
Búri 94019 er frá Búrfelli í
Miðfirði, sonur Bassa 86021 og
Augnfráar 100 sem var
Tvistsdóttir. Undan þessu nauti
koma mjólkurlagnar kýr með
próteinhlutfall í tæpu meðallagi.
Mjög góður dómur um frumutölu
(júgurhreysti). Góður dómur um
mjaltir og skap.
Heildarein-
kunn
109.
feikihátt
prótein í
mjólk. Glæsikýr að
ytra útliti með mjaltir í slöku
meðallagi en mjög skapgóðar.
Heildareinkunn 106.
Sveipur 94016 er fæddur í
Galtartungu á Fellsströnd, undan
Bassa 86021 og Mónu 44 sem var
dóttir Suðra 84023. Dætur þessa
nauts eru í tæpu meðallagi um
mjólkurmagn. Efnahlutföll í mjólk
feikilega há. Mjög góð júgur- og
spenagerð og hátt mat um
frumtölu (júgurhraustar). Mjaltir í
slöku meðallagi en skap gott.
Heildareinkunn 105.
^ Drómi
94025 var frá Rauf-
arfelli í Austur-Eyjafjallahreppi,
undan Þræði 86013 og Búbót 145
sem var undan óskráðu heima-
nauti. Hér fara mjög mjólkurlagn-
ar kýr með efnahlutföll mjólkur í
tæpu meðallagi. Þetta eru fremur
veigalitlar kýr að skrokkbyggingu.
Mat á mjöltum og skapi jákvætt.
Heildareinkunn 109.
Frískur 94026 var frá Bryðju-
holti í Hrunamannahreppi, undan
Bassa 86021 og Tusku 139 sem
var dóttir Þistils 84013. Dætur
hans eru góðar mjólkurkýr með há
hlutföll efna í mjólk. Sterk-
byggðar kýr. Góð júgur- og spena-
gerð og skap gott. Frískur skal
notast sem nautsfaðir. Heildarein-
kunn 110.
Punktur 94032 er frá Skip-
holti III í Hrunamannahreppi, und-
an Þræði 86013 og Spurningu 182
sem var Tvistsdóttir. Undan þessu
nauti eru mjög mjólkurlagnar kýr
með próteinhlutfall í tæpu meðal-
lagi. Góður dómur um frjósemi og
frumutölu. Ekki veigamiklar kýr
að skrokkgerð. Góður dómur um
skap. Punktur er valinn til nota
sem nautsfaðir. Heildareinkunn
117.
Galsi 94034 er frá Bjólu í
Djúpárhreppi undan Bassa 86021
og Stemmu 246 sem var undan
Erni 87023. Ágætlega mjólkur-
lagnar kýr með gott próteinhlutfall
í mjólk. Mjög góð spenagerð og
einnig góður dómur um skap.
Heildareinkunn 112.
Breiði 94037 er frá Gröf í
Breiðuvík, undan Andvara 87014
og Duggu 101 sem var
Tvistsdóttir. Hér fara mjög miklar
mjólkurkýr, en próteinhlutfall er
undir meðaltali. Kynbótamat um
frjósemi lágt. Spenar aðeins í
grófara lagi á stundum. Mjaltir og
skap í meðallagi. Heildareinkunn
109.
Eins og þessi upptalning sýnir
er vandalítið að fullyrða að aldrei
áður hefur komið fram jafnöflugur
hópur kynbótagripa í ræktunar-
starfi áður. Búast má við því að
þessi naut geti skilað íslenskum
kúastofni umtalsverðu á næstu
árum.
Rétt er að benda á að vegna
þess hve hér fer stór hópur úrvals-
gripa er mikil ástæða fyrir bændur
að dreifa notkun á rnörg af þessum
nautum og velja naut til notkunar
með tilliti til kosta og galla hjá
viðkomandi kúm.
Um leið skal lögð áhersla á að
hvergi má slaka á notkun á
óreyndum nautum sem eru í
prófun hverju sinni. Aðeins þann-
ig fæst góð reynsla á ný naut. Ef
rétt er unnið eiga ung naut að vera
þeim eldri betri, þó að eldri nautin
séu vel valin. Aðeins með traustri
prófun nauta á hverjum tírna fást
betri gripir á komandi árum. /JVJ/
J