Bændablaðið - 13.11.2001, Blaðsíða 4
4
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. nóvember 2001
HELODIP
Gluggað í nýtl kynbótamat
í nýjustu niðurstöðum úr kyn-
bótamati í hrossarækt má m.a. sjá
hvaða hross em líkleg til þess að
eiga rétt til þess að koma fram með
afkvæmum á Landsmóti hesta-
manna á Vindheimamelum á
næsta sumri. Reglumar segja eftir-
farandi:
1. verðlaun fyrir afkvæmi
Stóðhestar þurfa að ná a.m.k.
120 stigum eigi þeir 15 til 29
dæmd afkvæmi en séu afkvæmin
30 eða fleiri þá duga 115 stig.
Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi
Stóðhestar: Þurfa að ná 120
stigum hið minnsta og eiga 50 eða
fleiri dæmd afkvæmi.
Hryssur: Þurfa að ná 120
stigum og eiga a.m.k. 5 dáemd
afkvæmi.
Ef litið er á stóðhesta sem
koma til greina til heiðursverð-
launa þá ber fyrst að nefha Odd frá
Selfossi. Hann kom reyndar ffam á
Fjórðungsmóti Vesturlands sl.
sumar en á áfram rétt til að koma
ffarn á landsmóti með afkvæmum.
Þetta er eini hesturinn sem hefúr
þegar náð lágmörkunum og ekki
hefúr verið sýndur áður til þessa
verðlaunastigs á landsmóti.
Reyndar er Baldur ffá Bakka
einnig kominn yfir lágmarkið en
hann er farinn úr landi og kemur
því ekki ffam. Aðrir hestar sem eru
mjög nálægt takmarkinu eru
Gustur ffá Hóli II, Kraflar frá
Miðsitju og Þorri ffá Þúfú.
í flokki stóðhesta með 15-49
dæmd afkvæmi eru nokkrir at-
hygliverðir nýjir hestar. Þama
koma inn þeir Galsi ffá
Sauðárkróki, Kormákur frá Flugu-
mýri II og Andvari ffá Ey sem allir
ná þessu lágmarki. Hestar með
meiri afkvæmafjölda á bak við sig
og ná stigafjölda eru Logi ffá
Skarði, Tvistur frá Krithóli og
Platón ffá Sauðárkróki. Þessir
hestar gætu því, ef fer sem horfír,
átt þátttökurétt með afkvæmum til
1. verðlauna á landsmóti að ári en
einnig gætu skotið upp kollinum
fleiri hestar að aflokinni dóma-
vertíð næsta vor.
Hvað hryssumar varðar þá má
fastlega reikna með því að Þrenna
ffá Hólum feti í fótspor móður
sinnar og komi ffam með
afkvæmum til heiðursverðlauna
næsta sumar en hún situr efst á
hryssulistanum eins og hún hefúr
gert um nokkurt skeið. Þrennu
vantar einungis eitt afkvæmi í dóm
til að uppfylla skilyrðin. Svipaða
sögu má reyndar segja um systur
hennar Þóm sem hæglega gæti líka
komið ffam og sýnir vel hver
styrkur þessa ættboga er. Erfiðara
er að spá í mögulegar nýjar hryssur
því afkvæmafjöldinn er þama mun
minni og margt getur gerst á einu
vom auk þess sem misjafnlega
stendur á til afkvæmasýninga. Þó
má geta sér til um að Kolskör ffá
Gunnarsholti og Vakning ffá
Ketilsstöðum séu líklegar.
Það er því deginum ljósara að
það er ekkert lát á nýjum affeks-
hrossum í íslenskri fu-qssarækt -
framfarir em stöðugar. Áhugafólk
um hrossarækt getur því farið að
skipuleggja mikla skemmtiför á
Vindheimamela næsta sumar.
Athugið að allar upplýsingar
um kynbótamatið má nálgast í
gagnabanka og á vef Bændasam-
takanna www.worldfengur.com og
www.bondi.is./ÁS
ii h
RT1
m'ip
rofl
rn is
ÚTSÖLUSTAÐ8R:
ÖLL HELSTU MJÓLKURBÚ LANDSiNS
Matreiðslu
RJOMI
Hann er bara 15%!
Njóttu þess að borða góðan mat. Prófaðu fituminni
rjóma en þó með ekta rjómabragði!
Hann er kjörinn til notkunar hversdags við matargerð,
með eftirréttum og út í kaffi en hann hentar ekki til
þeytingar.
Hann er aðeins 15% og hitaeiningarnar eru helmingi
færri en í venjulegum rjóma!
"mr
MJÓLKURSAMSALAN
j..n .. /.i-'mhii 'mvmé?
• ,'jjiiiii.i i
yistvœn a
árangursrík
Ferðaþjónustubændur
Iáta ekki deigan síga
Sigla inn í nýja öld undir
merkjum samstarfs og samvinnu
Nú er að ljúka úttekt sem
Ferðaþjónusta bænda og
Hólaskóli gerðu á ferða-
þjónustubæjum. Úttektin var
styrkt af Framleiðnisjóði. Þetta
verk hefur nú þegar orðið til
þess að búið er að leggja drög að
nýjum gisti- og afþreyingar-
flokki sem lýtur þeim stöðlum
sem gerðir hafa verið. Ástæðan
fyrir nýja flokknum er mikil og
stöðug þróun þjónustu og
gistingar sem ferðafólk getur
fengið í sveitum landsins. Til
þess að búa bændur enn betur
undir framtíðina, og kynna drög
að nýja flokknum, hafa Fb og
Hólaskóli ákveðið að efna til
námskeiðs sem ber heitið "Sam-
starf og samvinna - lykill að
sókn á nýrri öld". Námskeiðið
verður hinn 22. nóvember í
Síðumúla 11, Reykjavík. Þarna
verður fjallað um svæðisbundna
hópvinnu og umhverfisvæna
ferðaþjónustu.
Sævar sagði að Fb hefði
skapað ferðaþjónustu í dreifbýli
ákveðna sérstöðu og margt bendi
til að þeim muni fjölga sem fara
um sveitir landsins og notfæri sér
þjónustu félaga í Fb. Mikilvægt sé
að bændur styrki sérstöðu sína
með samstarfi í sinni víðtækustu
mynd. Á umræddu námskeið
verður einmitt lagður grunnur að
svona samstarfi."Umhverfísmálin
verða til umræðu en ferðamenn
framtíðarinnar munu gera ríkar
kröfur til bænda í þeim efnurn,"
sagði Sævar. "Hreint og tært
umhverfí, vel umgengið land og
virðing fyrir náttúrunni eru þau
atriði sem eru grundvöllurinn fyrir
tilveru bænda. Á þessu er góður
skilningur meðal ferðaþjónstu-
bænda - sem og bænda sem stunda
hefðbundnar búgreinar."
Elín Berglind Viktorsdóttir,
kennari á Hólum, sagði að á nám-
skeiðinu yrðu myndaðir sex hópar
og unnið út frá hugmyndum þátt-
takenda um vandamál og drauma í
þessari tegund ferðamennsku.
Síðar í vetur verða haldnir vinnu-
fundir með hverjum svæðishópi
þar sem leitað verður lausna á
þeim þáttum sem fram munu koma
á námskeiðinu. Sérstök áhersla
verður lögð á vöruþróunarverkefni
varðandi náttúrutengda afþreyingu
annars vegar og hins vegar skipu-
lagningu ferða þar sem íslenskri
matarmenningu er gert hærra undir
höfði en nú er raunin. Þá er
æskilegt að geta fléttað þessi tvö
vöruþróunarverkefni saman.
Árangur þessarar vinnu á að skila
sér í nýrri tegund markaðsvöru
sem mun verða auglýst í
ferðabæklingi Ferðaþjónustu
bænda 2003 en auk þess munu
verða gefnir út sérstakir svæðis-
bundnir kynningarbæklingar.
Bændablaöið
Áskriftarsíminn er
5630300
HELODIP
SPENADÝFAN