Bændablaðið - 13.11.2001, Qupperneq 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. nóvember 2001
Sláturhúsarisi í Danmörku:
Verfiup eitt stærsta
sláturfélag í heimi
Tvö stærstu sláturfélög Danmerkur, Danish Crown og Steff-
Houlberg, hafa ákveðið að sameinast. Ef félagsmenn þeirra sam-
þykkja sameininguna og samkeppnistofnun framkvæmdastjórnar
ESB leggur blessun sína yfir hana verður nýja sláturfélagið meðal tíu
stærstu sláturfélaga í heimi. Ef aðeins er litið á svínaslátrunina
verður það þriðja stærsta sláturfyrirtækið í heimi og að minnsta
kosti Iang stærsta sláturfélag Evrópu.
Fækkað úr 50 í 2
Fyrir 30 árum voru rekin 50
sláturhús eða félög víðs vegar í
Danmörku. Nú eru hins vegar
aðeins þrjú eftir og ef sameiningin
nú gengur eftir verða sláturfélögin
aðeins tvö. Sameining sláturhúsa
tók þó kipp þegar Danish Crown
var stofnað 1990 með sameiningu
þriggja sláturfélaga og seinna voru
fleiri sláturfélög innlimuð í
félagið. Danish Crown er nú lang-
stærsta félagið og slátrar árlega
tæplega 16 milljónum gripa sem er
um 78 prósenta markaðshlutdeild.
Svínaslátrun er að sjálfsögðu um-
fangsmest. Félagið er með 20
sláturhús á sínum snærum og
starfsmenn eru um 13 þúsund.
Höfuðbækistöðvamar eru í
Randers á Jótlandi.
Steff-Houlberg er næststærsta
félagið með 16 prósenta hlutdeild
og slátrar árlega rúmlega þremur
milljónum gripa. Það rekur tvö
sláturhús og starfsmenn eru um
2.700. Höfuðbækistöðvar þess eru
í Ringsted á Sjálandi.
Þriðja félagið er svo Tican sem
er staðsett í Thisted og sem verður
annað af tveimur sláturfélögum
Danmerkur ef sameining hinna
tveggja verður samþykkt. Tican er
lítið félag miðað við hin. Rekur
eitt sláturhús og er með 6 prósent
af markaðinum. Starfsmenn eru
um 700 talsins.
Styrkir samkeppnisstöðuna
Meginrökin fýrir sameiningun
er að styrkja samkeppnisstöðu
danskra sláturfélaga og kjötfram-
leiðenda á heimsmarkaði. Tals-
menn fyrirtækjanna benda á að 85
til 90 prósent af framleiðslunni fari
til útflutnings. Samkeppnin sé
gríðarlega hörð og þess vegna
mikilvægt að dönsk sláturfélög
sláist á heimsmarkaði undir sama
hatti. Steff-Houlberg hefur
viðurkennt þetta. Félaginu var
reyndar boðið að sameinast Danish
Crown 1998 en tók ekki tilboðinu
þá. Nú segja talsmenn fyrir-
tækisins að þetta hafi verið röng
ákvörðun og að auki hefur
reksturinn ekki gengið vel síðustu
þrjú árin.
Ef velta fyrirtækja sem sam-
einast er yfir 450 milljörðum
króna í íslenskum krónum talið og
útflutningur þeirra er umtalsverður
til annarra landa innan Evrópu-
sambandsins, fer sameiningin fýrir
samkeppnisstofnun Evrópusam-
bandsins. Sameiginleg velta fyrir-
tækjanna tveggja sem nú vilja
sameinast var í fyrra um 530
milljarðar króna. Búist er við svari
frá ESB innan fjögurra mánuða.
Þegar Danish Crown sameinaðist
Vestjóska sláturfélaginu 1998 fór
Evrópusambandið fram á að
fyrirtækin seldi frá sér hluta af
slátruninni sem fer á heima-
markað. Stofnað var nýtt fyrirtæki
sem slátrar vikulega 5000 svínum.
Danish Crown munaði ekki mikið
um það því um var að ræða aðeins
um 1,5% af slátrun félagsins.
Sameiningunni er almennt vel
tekið innan landbúnaðarins.
Bændur sætta sig við hana og
óttast ekki að verð til þeirra lækki
eftir sameininguna. Sláturfélögin
er samvinnufélög og verða það
áfram eftir sameininguna sem
þýðir að bændur eiga hlut í
félaginu eins og áður. Starfsmenn
sláturhúsanna eru líka sáttir og
telja að þetta muni efla starfsemina
þegar til lengri tíma er litið. Hins
vegar er ljóst að einhveijum verður
þó sagt upp, en talsmenn
fyrirtækjanna eru ekki tilbúnir að
segja hve umfangsmiklar upp-
sagnimar verða. Höfuðbæki-
stöðvamar verða í Randers á
Jótlandi sem þýðir að skrifstofa
Steff-Houlberg verður lögð niður í
Ringsted. Starfsmönnum í
Ringsted verður því væntanlega
sagt upp og einnig má búast við
hagræðingu við sameininguna sem
hefur í för með sér uppsagnir.
Ekki ásœttaniegt
Fulltrúar neytenda eru hins
vegar ekki mjög bjartsýnir og
óttast einokun og fákeppni á kjöt-
markaði í Danmörku. " Það gefur
auga leið að félag með 95 prósent
af markaðinum er í einokunar-
aðstöðu og það er algjörlega
óásættanlegt," segir Jeppe Juul
formaður DAF neytendasam-
takanna. Talsmenn samkeppnis-
yfirvalda viðurkenna að um ein-
okunarstöðu geti verið að ræða.
Þeir segja hins vegar að
markaðurinn í Danmörku sé
aðgengilegur erlendunt kjötfram-
leiðendum og þess vegna sé
mögulegt að santþykkja sam-
eininguna. Jeppe Juul bendir hins
vegar á að danskir neytendur kjósi
í flestum tilvikum að kaupa kjöt
sem er framleitt undir dönsku
eftirliti. Það þýði að með
sameiningunni verði þeir nánast
neyddir til að kaupa mestallt kjöt
frá einum framleiðanda. Hann
segir að ef núverandi sam-
keppnislög geti ekki tryggt frjálsa
samkeppni verði hreinlega að
breyta þeim. Ef sameiningin verði
að veruleika muni neytenda-
samtökin hvetja danska stór-
markaði til að kaupa meira af kjöti
frá erlendum framleiðendum.
/APH Kaupmannahöfn.
LANDSTÓLP11«
- Fjós eru okkar fag -
• Tæknibúnaður í fjós:
> Flórristar - galvaniseraðar
> Stcinbitar - framleiddir eftir ströngum gæðastöðlum
> Loftræstikerfi - einföld og ódýr.
> Weelink fóðurkerfi - hámarks vinnusparnaður
> Innréttingar og básadýnur - dýravelferð í fyrirrúmi
> Flórsköfukerfi - vönduð framleiðsla á góðu verði
> Fóðurvagnar
> Fjósvélar / liðléttingar
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson
s: 437 0023 / 869 4275 s: 486 5656 / 898 9190
SkagBriliiigar é bæmlalunÉin
Á myndinni til hægri eru þeir Arnór Gunnarsson
Glaumbæ og Ragnar Gunnlaugsson Hátúni. En
hér fyrir neðan eru þeir Sigfús Steindórsson
hagyrðingur og fyrrv. bóndi í Steintúni og Magnús
Indriðason bóndi í Húsey í Vallhólmi. Þessir mætu
menn voru á bændafundum sem haldnir voru í
Skagafirði fyrir skömmu./BBL Örn.
KIA
250
240
230
220
210
200
190
180
170
160
150
Grís IA
300
200
100
0
Janúar2001 Júní 2001 Desember 2001
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
Janúar2001 Júní2001 Desember2001
UNIA
350
300
250
Janúar2001 Júni 2001 Desember2001
FOIA
260
Janúar2001 Júní 2001 Desember2001
Meðalverð í fyrstu viku nóv. 2001
FOIA
HRIA
Grís IA
UNIA
KIA
kr/kg
157
70
255
308
206