Bændablaðið - 13.11.2001, Síða 13

Bændablaðið - 13.11.2001, Síða 13
Þríðjudagur 13. nóvember 2001 BÆNDABLAÐIÐ 13 Guðni Bjarnason verktaki í landbúnaði: VerMakaiyrintækin verfla færri en slærri Guðni Bjarnason er einn af eigendum Félagsbúsins að Guðnastöðum í Árnessýslu sem tekur að sér verktakavinnu í landbúnaði og vinnur á mörgum sviðum. Guðni segir að verk- takavinna fari vaxandi og hafi aukist hin síðari ár. Hagstœðara og þœgilegra „Eg held að ástæður fyrir þess- ari þróun séu þær að menn sjá að það er hagstæðara að leita til verk- taka heldur en liggja með peninga bundna í stórum og dýrum tækjum, sem notuð eru stuttan tíma á ári. Auk þess sem það er miklu þægilegra fyrir menn að leita til verktaka. Sumir halda að það séu fyrst og fremst stóru búin sem hafi hag af verktakavinnu en það þarf ekkert endilega að vera svo. Allir sjá að það er afar dýrt fyrir lítil bú að vera með rnikla vélaútgerð og auðvitað er það fyrst og ffemst þessi dýra útgerð sem varð til þess að verktakavinna í landbúnaði varð til. Og á því leikur enginn vafí að hún er komin til að vera," segir Guðni Bjamason. -Það er vel þekkt og hefur verið nokkuð lengi að einhver hópur bænda slái sér saman um kaup á stómm og dýmm vélum eins og til að mynda komþreski- vélum eða rúllubaggavélum, svo dæmi sé tekið. Heldurðu að slík samvinna geti ekki verið jafn hagstæð og að kaupa verktaka- vinnu? „Það getur auðvitað verið hagstætt fyrir bændur að stofna til slíkrar samvinnu. Og þessar vélar em orðnar svo afkastamiklar að þótt eigendumir séu nokkrir þá þurfa þeir aldrei að bíða sér til skaða eftir vélinni. En það sem oft gerist, þegar menn slá sér saman um svona vélakaup, er að þeim er ekki haldið nógu vel við. Bilanir koma upp, kannski á versta tíma, og menn verða þá að leita nýrra leiða. Verktakar aftur á móti verða að fylgjast vel með sínum vélum og halda þeim við þannig að þær séu alltaf í lagi, annars gengur dæmið ekki upp hjá þeim." Færrí fyrírtœki en stœrri -Áttu von á því að þróunin í verktakavinnu í landbúnaði verði á þá leið að fyrirtækin verði fá en stór? „Ég hygg að það gæti alveg farið þannig og raunar tel ég mikl- ar líkur á að svo verði. Ef við hér á Guðnastöðum bættum við okkur nokkmm vélum þá hygg ég að við gætum gert þetta að okkar aðal- vinnu og þannig er með fleiri. Þá væri um leið hafin sú þróun að verktakafyrirtækin yrðu stærri en færri." -Við höfum aðallega verið að tala um jarðvinnslu, hey- og kom- uppskem. En tökum dæmi af leitum og réttum. Margir fjárbændur eru einyrkjar og þurfa að fá sér menn í leitir. Kæmi verk- takavinna til greina þar? „Ég hef nú bara ekkert hugsað út í þetta mál en það má vel vera að gmndvöllur sé fyrir verktaka- vinnu við leitir og réttir. Og ég spyr á móti, hvers vegna ekki?" -Hvað takið þið fyrir að rúlla og plasta hey og hvemig verðleggið þið slíka vinnu? „Við tökum ákveðið gjald fyrir baggann. Það fer dálítið eftir því hvað menn em með marga bagga hvert verðið er. Við getum tekið sem dæmi ef við emm beðnir að ganga frá 100 böggum þá kostar það 450 krónur á baggann. En ef um eitt þúsund bagga væri að ræða myndi verðið verða 430 krónur á baggann og það er í rauninni lágmarksverð. Inn í þessu verði er gamið sem bundið er með en ekki plastið, sem er dýrt eða um 250 krónur á bagga. Og því miður er þetta plast ekki endumýjanlegt í neitt ennþá, segir Guðni Bjama- son." Haraldur Benediktsson verktaki í landbúnaði: ViO gætum jatnvel tekið að akkur mjalfip Það hefur færst í vöxt hin síðari ár að verktakar taki að sér hin ýmsu verk á bændabýlum Iands- ins. Það hefur þekkst í áratugi að bændur fengju menn á gröfum eða jarðýtum til að vinna fyrir sig jarðvinnu en nú er verktakavinnan komin í hey- skapinn, sáningu korns og þre- skingu og margt fleira. Haraldur Benediktsson, frá Vestri Rein við Akranes, rekur ásamt mörgum öðmm verktaka- fyrirtækið Búhöld ehf, sem tekur að sér margs konar verk fyrir bændur. Hann segir að verktaka- vinna á öðmm sviðum en jarðvinnslu hafí byrjað þegar rúllu- baggavélamar fóm að koma til landsins á ámnum upp úr 1980. Komin til að vera „Það er alveg ljóst að verk- takavinnan í landbúnaði fer vaxandi og færist yfir á æ fleiri verkþætti í landbúnaði. Eins og ég sagði byrjaði þetta með því að menn létu rúlla og plasta fyrir sig hey. Síðan hafa bændur farið út í að láta verktaka sá fyrir sig og bera á tún bæði búfjáráburð og tilbúinn áburð. Þannig hefur þetta þróast og aukist og er enn að aukast þannig að það er alveg ljóst að verktaka- vinna í landbúnaði er komin til að vera," segir Haraldur. Jafnvel mjaltir Hann var spurður hvort hann teldi bændur spara sér peninga með því að nýta sér verktaka- vinnuna? „Ég er alveg sannfærður um að þeir gera það. Ég get nefnt sem dæmi að ef menn ætla að kaupa sér komþreskivél þurfa þeir að vera með kom á um 80 hektumm til þess að það borgi sig að liggja með peninga í slíkri vél. í raun og vem er svo mikil fjárfesting í tækjum til að bagga eða rúlla og plasta hey að það borgar sig fyrir flesta að notfæra sér þjónustu verktakanna. Ég á von á því að verktakavinnan aukist við þá þróun að búum fækkar og þau stækka. Ég er ekk- ert ffá því að verktakar taki að sér að sjá um mjaltir fyrir bændur ef framleiðslukerfið býður upp á það. Ég veit að menn hafa velt þessu nokkuð fyrir sér. Ég á fjós sem er orðið mjög tæknivætt. Ég væri alveg tilbúinn til að taka að mér í verktakavinnu á sumrin að mjólka kýr nágranna minna sem eru orðnir aldnir eða búa við ófullkomið fjós. Þeir rækju þá bara kýmar til mín og sæktu þær eftir mjaltir. Engir rísaverktakar -Hvað kostar útseld vinna hjá verktökum í landbúnaði ef við tölum um að bagga, rúlla og plasta? „Ef við tökum þessa stóm bagga sem dæmi þá kostar að bagga og pakka þeim um 500 krónur á bagga. Rúllan með plasti kostar á milli 600 og 700 krónur og þá er plastið innifalið. Ef verið er að þreskja kom er bæði til ákveðið gjald fyrir hektarann og eins tíma- gjald. Við emm bara með tímagjald fyrir þá vinnu og tökum 4 þúsund krónur á tímann. Hektaragjaldið er á milli 8 og 11 þúsund krónur og fer eftir því hvað menn em með stórar vélar." -Áttu von á því að þróunin verði sú að til verði stór en fá verktaka- fyrirtæki í landbúnaði? „Nei, þaó held ég ekki því þetta hlýtur að byggjast upp á einstakling- um. Það em 28 bændur sem eiga þetta verktakafyrirtæki okkar, Búhöld ehf. Við ættum erfítt með að keppa við einstakling sem fengi sér sams konar vélar og við emm með. Við verðum að vera harðir við að innheimta fyrir okkar vinnu vegna þess að okkar launamenn verða að fá sín laun. Einstaklingurinn væri kannski ekki alveg jafn harður við tímaskráningu eða innheimtu fyrir sjálfan sig og stæði því betur að vígi," segir Haraldur Benediktsson. verktakar í landbúnali verktakar í landbúnaði verktakar í landbúnaði verktakar í landbúnaði verktakar í landbúnaði verktakar *< ♦

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.