Bændablaðið - 25.06.2002, Qupperneq 2
2
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 25.júní 2002
Guðni Ágústsson gróðursetur fyrsta tré Austurlandsskóga. Það eru börn frá leikskólanum í Brekkubæ sem
fylgjast grannt með ráðherra.
150
þúsund
plöntun
Alls hafa sextíu bændur
skráð sig í Austurlands-
skóga en nú verða samning-
ar gerðir við átta bændur
sem voru komnir vel af stað
í skógrækt. Fjármagnið
leyfir ekki samninga við
fleiri bændur en 10
milljónum var úthlutað til
Austurlandsskóga á þessu
ári. Bændurnir átta munu
setja niður 150 þúsund
plöntur í sumar.
Guðmundur W. Stefáns-
son, formaður skógarbænda á
Austurlandi, sagðist sann-
færður um gildi skógræktar
fyrir þróun byggðar í landinu.
„Þeir bændur sem hafa búið
lengi við skógrækt eru farnir
að hafa af henni tekjur. Fyrst
er það grisjun og umhirða og
það styttist í tekjur vegna
nytja og sölu verðmæta. En
þetta tekur allt sinn tíma og
þeir eru ekki margir í þessu
þjóðfélagi sem vinna fyrir
framtíðina.“
Guðmundur í skógarreit við
íbúðarhús sitt. Fyrir tólf árum
var ekki hrísla á bænum en nú
eru þar glæsileg tré.
um 150 þúsund skógarplöntur
á þessu ári og fimm kflómetra
af skjólbeltum. Þetta verður
gert á 12 - 15 bújörðum, að
sögn Þorsteins Steinssonar
sveitarstjóra á Vopnafirði.
Mun fleiri bændur hafa þó sýnt
verkefninu áhuga. Guðni
Ágústsson gróðursetti trjá-
plöntu í skógarreit rétt sunnan
Vopnafjarðarkauptúns í tilefni
dagsins. Helgi Gíslason fram-
kvæmdastjóri Austurlands-
skóga undirritaði samninginn
við Guðmund. Börn af leik-
skólanum Brekkubæ í Vopna-
flrði sungu fyrir gesti.
Verkefnið Héraðsskógar hófst
formlega árið 1990. í kjöifar þess
komu sams konar verkefni í
öðrum landshlutum. Sérstök lög
voru sett um Suðurlandsskóga, og
síðar lög um landshlutabundin
skógræktarverkefni 1999 nr. 56
19. mars. Á þeim lögum eru
Norðurlandsskógar, Vesturlands-
skógar og Skjólskógar á Vest-
fjörðum. Þar með eru komin
landshlutabundin skógræktar-
verkefni um allt land. Síðasta
skrefið var stofnun Austur-
landsskóga, en þeir ná frá Lóni á
Langanes. Á þessu ári verður
varið 10 milljónum króna til
Austurlandsskóga, en fimm
milljónir fóru til verkefnisins í
fyrra. „Skógræktin er eitt stærsta
byggðamálið sem núverandi
riícisstjóm og Alþingi hafa gengið
til,“ sagði Guðni við þetta tæki-
færi. „Fólk vill búa þar sem
ræktunarstörf fara fram. Svo
dæmi sé tekið þá hefur ekki orðið
fólksfækkun á svæði Héraðs-
skóga.“
Austurlandsskúgar
orðnir að veruleika
FyrsB nyBaskögasamningurinn staöfestur
Samningurinn undirritaður - f.v. Helgi Gíslason, Guðni Ágústsson og
Guðmundur Wiium Stefánsson.
Fyrir skömmu staðfesti Guðni
Ágústsson landbúnaðarráð-
herra fyrsta nytjaskóga-
samninginn í Austurlands-
skógum við Guðmund Wiium
Stefánsson skógræktarbónda
að Fremra-Nýpi. Guðmundur
er einnig formaður Félags
skógarbænda á Austurlandi.
Fyrirhugað er að setja niður
Yðn 1000 bæir heimsétiir i
sumar ð vegum Fegurri sveita!
Þátttakendum í átaksverkefninu
Fegurri sveitum heldur áfram að
fjölga. Nú er kominn biðlisti
eftir bæjarheimsóknum en strax
í vor var búið að panta starfs-
mann Fegurri sveita á yfir 1000
sveitabæi. Ragnhildur Sigurðar-
dóttir verkefnisstjóri sagði fram-
kvæmdanefndina hafa tekið þá
ákvörðun um að fjölga starfs-
mönnum í þrjá til að anna eftir-
spurn. Það eru yfirvöld á
hverjum stað sem stjórna því
með hvaða hætti sveitarfélögin
nýta sér verkefnið. Allir þátt-
takendur eiga það sammerkt að
hafa tekið umhverfismál í dreif-
býli á dagskrá og eru byrjaðir að
vinna að markmiðum verk-
efnisins.
„Vinsældir heimsóknanna,
sem fela í sér fræðslu og ráðgjöf,
komu okkur á óvart“, sagði
Ragnhildur, „Við höfum það að
leiðarljósi að ekki er nóg að tala
bara um það af hverju umhverfis-
mál þurfi að vera í lagi og benda á
hvað megi betur fara. Lykil-
spurningin fjallar um aðferða-
fræðina og við reynum að aðstoða
fólk til að finna leiðir til að ná
settum markmiðum.
I júní verða allir bændur í Eyja-
og Miklaholtshreppi, Borgarbyggð,
Leirár- og Melahreppi, Skagahreppi,
Vindhælishreppi, Snæfellsbæ og
Hrunamannahreppi heimsóttir,”
sagði Ragnhildur í samtali við
Bændablaðið. ;,í júlí kemur röðin
að bændum í Isafjarðarbæ, Bárð-
dæla-, Ljósavams-, Háls-, Reykdæla-
,Laugardals- og Skaftárhreppi.
Búið er að dagsetja heimsóknir í
júní og júlí og verið er að ganga frá
skipulagi heimsókna í ágúst. Að
auki verða heimsóttir hópar bænda
í nokkrum sveitarfélögum og fundað
víða um land.“
Starfsmenn verkefnisins vilja
koma því á framfæri að viðtökur
bænda hafa nær undan-
tekningarlaust verið mjög góðar og
það er augljóst að áhugi á um-
hverfismálum er mikill á lands-
byggðinni. Fyrir þá sem vilja vita
meira um verkefnið er slóðin á
heimsíðuna: simnet.is/umhverfi
um smá-
Málþing um smávirkjanir
verður haldið föstudaginn 28.
júní 2002 í Hótel Eddu á
Egilsstöðum (húsnæði Mennta-
skólans á Egilsstöðum). Að mál-
þinginu standa Félag áhuga-
manna um Iitlar vatnsafls-
virkjanir á Austurlandi og
Landssamband raforkubænda.
Erindi flytja Ólafur Eggerts-
son formaður Landssambands raf-
orkubænda, Gunnar Örn frá Iðn-
aðarráðuneytinu, Sigurður Ey-
mundsson umdæmisstjóri RARIK
á Austurlandi, Birkir Þór Guð-
mundsson hagfræðingur, Pétur
Valdimarsson tæknifræðingur,
Jakob Bjömsson framkvæmda-
stjóri Orkusjóðs og Sveinn
Þórarinsson formaður stjórnar
Rarik. Klukkan 14.00 verða pall-
borðsumræður en málþinginu
lýkurklukkan 15.00.
Aðalfundur raforkubœnda
Sama dag verður aðalfundur
Landssambands raforkubænda
haldinn í Hótel Eddu á Egils-
stöðum og hefst hann klukkan
16.00.
Lokad vegna
sumarleyfa
startsmanna
Skrifstofur Bændasam-
taka íslands verða lokaðar
vegna sumarleyfis starfs-
manna dagana 22. júlí til 2.
ágúst.
Afgreiðsla útflutnings-
pappíra fyrir hross verður í
tölvudeild þessa daga eins og
undanfarin ár, samband i
síma 563 0307 og netfangi
hf@bondi.is
Skógrækt í 50 ár
Skógræktarfélag Djúpavogs er
50 ára á þessu ári. Félagið sér um
ræktun skógar á Búlandsnesi við
Djúpavog. Formaður félagsins er
Ragnhildur Garðarsdóttir, Aski. í
félaginu eru um 40 félagar.
BREYTIIUGAR Á
HANDHÖHIM
BEINGREIÐSUUA
Vegna sumarlokunar á skrif-
stofum Bændasamtaka íslands
þurfa tilkynningar um breytingar á
handhöfum beingreiðslna og til-
kynningar um breytt reiknings-
númer hjá handhöfum bein-
greiðslna, sem taka eiga gildi frá
og með 1. ágúst, að berast í síðasta
lagi 10. júlí nk.
Bænddblaðið
Nú eru eitt blað eftir þar til
starfsmenn Bændablaðsins
fara í sumarleyfi.
Útkomudagur 9. júlí
Augtýsingapantanir þurfa að hafa
borist fyrir kl. tólf á hádegi - 4. jútí.
Síminn er 563 0300
11 4 I I