Bændablaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 10
10 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 25. júní2002 FÉIagsstarf ungs fúlks í landbúnaOi Eitt þeirra málefna er Búnaðarþing ályktaði um síðastliðinn vetur var nýliðun og ættliðaskipti í bændastétt. í ályktuninni er því beint til stjórnar BÍ að afla gagna um hvernig staðið er að nýliðun í bændastétt í nágrannalöndunum og í framhaldi af því að leita nýrra leiða í samvinnu við Lánasjóð land- búnaðarins og ríkisvaldið sem miði að því að auðvelda nýliðun í land- búnaði. I greinargerð með ályktuninni er bent á ýmis vandamál er tengjast fjármögnun jarða-, framleiðsluréttar- og bústofnskaupa sem hindrandi þætti nýliðunar. Vissulega eru hár íjárfestinga- kostnaður og erfiðleikar tengdir fjármögnun stærstu inngöngu- hindranirnar fyrir nýliða í bænda- stétt á Islandi. Því má þó ekki gleyma að þegar litið er á sjálfa ákvörðunina um að hefja búskap eru einnig fleiri þættir sem spila inn í. Hver sá sem veltir fyrir sér þeirri ákvörðun hlýtur einnig að velta fyrir sér hvort hann/hún sé tilbúin að lifa og starfa í því um- hverfi sem íslenskur landbúnaður býr við í dag. Hér er ekki einungis átt við faglegt umhverfi land- búnaðar heldur einnig félagslegt umhverfi íslensks dreifbýlis. Þegar talað er um að auðvelda nýliðun í landbúnaði má því einnig velta fyrir sér hvernig megi gera þetta félagslega umhverfi meira spenn- andi fyrir ungt fólk. Lykilatriði í því samhengi er að menn hafi fé- lagsskap. Með félagsskap er hér átt við samneyti við jafningja sem hafa sömu áhugamál og sömu grundvallarsjónarmið að leiðar- ljósi. Víða á Vesturlöndum eru starf- rækt félög ungs fólks í landbúnaði. Sum þessara félaga skilgreina sig reyndar víðar og eru ætluð ungu fólki í dreifbýli. Hlutverk þessara félaga er í flestum tilfellum að skapa tækifæri fyrir ungt fólk til að hittast, þjálfast í félagsstörfum, skemmta sér saman og beita sér fyrir uppbyggjandi verkefnum. Dæmi um slíkt félag er the Junior farmers' association of Ontario, hér eftir nefnt Félag ungra bænda í Ontario, sem eins og nafnið bendir til, er starfrækt í Ontariofylki í Kanada. Hér á eftir verður greint nánar frá uppbyggingu og starf- semi þessa félags. Uppbygging félagsins Félag ungra bænda í Ontario, rekur sögu sína aftur til ársins 1914. Félagsskapurinn varð upp- haflega til í tengslum við fræðslu- starf sem skipulagt var af land- búnaðarráðuneyti fylkisins. Það var þó ekki fyrr en 1944 sem félagið hóf formlega starfsemi í líkri mynd og það starfar í dag. I dag má skilgreina félagið sem frjáls félagasamtök, opin öllum þeim sem tilheyra aldurshópnum 15-29 ára og hafa áhuga á land- búnaði og lífi og starft í dreifbýli. Undanfarið hefur félagið í auknum mæli beint kröftum sínum að Frekari upplýsingar Fyrir þá sem vilja kynna sér nánar samtök ungs fólks í landbúnaöi víös vegar í heiminum er bent á eftirfarandi vefsíður: Junior Farmers Association of Ontario http://www.jfao.on.ca/ Young Farmers New-Zealand http://www.yfc.co.nz/ Danmarks Landboungdom http://www.landboungdom.dk/ MACRA Macra na Feirme (iriand) http://www.macra.ie/ Scottish Association of Young Farmers Clubs http://www.sayfc.org/ Young Farmers UK http://www.gallagher-group.co.Uk/5- bar/start.html Future Farmers of America http://www.ffa.org/about_ffa/basics/gene ralinfo.html dreifbýlismálefnum í víðu sam- hengi fremur en eingöngu að landbúnaði, þó upphaflega hafi áherslan fyrst og fremst verið á viðfangsefni tengd landbúnaði. Félagið er byggt upp af landshlutadeildum sem hver um sig hefur sína eigin stjórn. Stjórnir landshlutadeildanna heyra síðan undir miðstjóm. Öll stjómunar- störf í landshlutunum og á lands- vísu em unnin í sjálfboðavinnu. Félagið hefur aðgang að skrif- stofuaðstöðu og skrifstofustarfs- krafti á vegum landbúnaðarráðu- neytis Ontario. Frá árinu 1944 til ársins 2001 fékk félagið árlegt fjárframlag frá landbúnaðarráðuneyti Ontario. Gegnum tíðina stóð það framlag, ásamt félagsgjöldum félagsmanna, undir kostnaði við starfsemi fé- lagsins. Framlög frá ýmsum öðmm félagasamtökum og aðilum í landbúnaðargeiranum hafa undan- farin ár þó staðið undir vaxandi hluta starfseminnar og á árinu 2002 verður félagsskapurinn ein- göngu fjármagnaður með slíkum fjárframlögum og félagsgjöldum þar sem framlag landbúnaðarráðu- neytisins hefur verið lagt niður. Helstu þœttir starfseminnar Meginmarkmið Félags ungra bænda í Ontario er að þjálfa fram- tíðarleiðtoga fyrir dreifbýli Ontario í gegnum uppbyggjandi verkefni fyrir einstaklinga og samfélög. Félagið leggur áherslu á að þjálfa ungt fólk í stjórnunarstörfum, efla skipulagshæfni, samstöðu og áræðni. Deildir félagsins vinna að marg- víslegum verkefnum. Sum eru í beina þágu félagsmanna sjálfra, svo sem félagsmálanámskeið, ýmis konar samkeppnir og skemmtana- hald. Önnur verkefni snúa að því að efla dreifbýlissamfélög og þekkingu almennings á landbúnaði og lífi og starfi í dreifbýli. Dæmi um slík verkefni eru heimsóknir í grunnskóla, hreinsunar- og tiltektar- átök í sveitum, ræktunarstörf og gróðursetning, aðild að bænda- hátíðum og skemmtanahaldi þar sem almenningi er boðin þáttaka og svo mætti lengi telja. Tengsl við önnur félagasamtök I gegnum tíðina hafa margir meðlima Félags ungra bænda í Ontario síðar orðið virkir þátt- takendur í almennu félagsstarfi bænda í fylkinu. Má því segja að í mörgum tilfellum hafi störf innan félagsins verið eins konar undir- búningur undir frekari félagsstörf á fullorðinsárum. Tengsl Félags ungra bænda í Ontario við bændasamtök fylkisins (the Ontario federation of agri- culture) hafa jafnan verið mikil. Bændasamtökin styrkja félagið með fjárframlögum og Félag ungra bænda í Ontario sendir einnig fulltrúa á árlegt þing Bændasam- takanna. Niðurlag Halda má fram að efling félagslegs umhverfis dreifbýlis sé líkleg til að styrkja aðdráttarafl dreifbýlishéraða. Félagasamtök á borð við þau sem greint hefur verið frá í þessari grein geta verið öflugt tæki til að styrkja samstöðu ungs fólks í dreifbýli og ímynd dreifbýlislífs. Að sumu leyti má segja að Félag ungra bænda í Ontario byggi á svipuðum grundvallarþáttum og starf ungmennafélaganna á Islandi. I dag er þó starf ungmenna- félaganna sjaldnast í nánum tengslum við einstakar atvinnu- greinar. Það má því velta því fyrir sér hvort búnaðaifélög og/eða búnaðarsambönd á íslandi gætu í samstarfi við ungmennafélögin komið af stað starfi á svipuðum nótum og starf Félags ungra bænda í Ontario. Öflugt starf á slíkum nótum gæti án vafa aukið aðdráttarafl sveitanna, verið hvetjandi þáttur þegar litið er til nýliðunar í í landbúnaði og einnig þegar litið er til nýliðunar í stjómunar- og félagsstörfum sem tengjast greininni. Þegar horft er til landsins í heild má einnig velta því fyrir sér hvort nemendafélög búnaðar- skólanna á íslandi gætu átt ein- hvers konar aðild að slíku starfi. Einnig má sjá fyrir sér að það væri Bændasamtökum íslands hags- munamál að efla félagsmálaþjálf- un, og félagsvitund ungra bænda og annarra þeirra er áhuga hafa á lífi og starfi í sveitum landsins. Ekki væri því óeðlilegt að samtökin kæmu með einhverjum hætti að slíku starfi. Elín Aradóttir, Kanada. Víða í Norður-Ameríku hafa unglingar mikilvægu hlutverki að gegna á ýmis konar uppákomum og samkomum sem tengjast landbúnaði. Myndin er frá nautgripakynbótasýningu í Madison, Wisconsin þar sem unglingar sýndu gripi sem þeir hafa hirt. Sturtu- vagnar og stálgrinda- hús frá WECKMAN Sturtuvagnar. Flatvagnar á tilboði! Einnig þak- Margar gerðir, og veggstál hagstætt verð. H. Hauksson ehf. Suðurlandsbraut 48 Sími: 588-1130. Fax: 588-1131. Heimasími: 567-1880. LANDSTÓLPI1W - Fjós eru okkar fag - • Weelink fóðrunarkerfi • Innréttingar og básadýnur - ath! bæði í legubásafjós og básafiós. • Steinrimlar og flórsköfukerfi í gripahús • Veitum aðstoð og ráðgjöf við hönnun fjósa - hafið samband, við mætum á staðinn • Loftræstingar - í nýjar og eldri byggingar Lárus Arnar Bjarni s: 437 0023 / 869 4275 s: 486 5656 / 898 9190

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.