Bændablaðið - 25.06.2002, Síða 12

Bændablaðið - 25.06.2002, Síða 12
12 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 25. júní 2002 Silfurstjaman í Öxarfirði Breyttar áherslur í framleiðslu - Seiðl framleidú lyrir Sæsilfur i MjðirOi. Ætla að Oy|a inn sandhverfuhrogn frð Frakklandi Fiskeldi í Öxarfírði er nú í miklum hlóma. Þar í sveit er Silfurstjarnan hf. sem var stofnuð 1988 og er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar hér á landi með um tuttugu ársverk. Fyrirtækið velti um 350 milljónum á liðnu ári. Silfur- stjarnan er eina fískeldisstöðin á Islandi sem notar jarðhita að einhverju marki. Fyrirtækið framleiðir lax, bleikju og regn- bogasilung og gerðar hafa verið tilraunir með eldi á sandhverfu. A þessu ári er gert ráð fyrir að Silfurstjarnan framleiði um 300 tonn af bleikju sem er nánast eingöngu seld til Bandaríkjanna. Verð á kg af sandhverfu er tvisvar til þrisvar sinnum hærra en á eldislaxi. Benedikt Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri, sagði að Silfur- stjaman hefði tekið að sér að fram- leiða 1,2 milljónir seiða fyrir Sæ- silfur í Mjóaflrði. Nú er unnið að því að flytja seiðin austur í kvíamar í Mjóafirði, en það er gert með sérstaklega útbúnum brunnbáti sem kom frá Noregi. Báturinn tekur 35-40 tonn af fiski í Seiðunum er dælt í gegnum þessa slöngu út í bátinn sem liggur viö stjóra úti fyrir ströndinni. Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri, sem segir að Silfurstjarnan framleiði 1,2 milljónir seiða fyrir Sæsilfur í þessari lotu. ferð enda er lestin 750 rúmmetrar. „Gert er ráð fyrir að þessi seiði dugi til að framleiða Qögur þúsund tonn af laxi í Mjóafirði,“ sagði Benedikt. A næsta ári verður Sæsilfur líklega búið að kaupa bát til að flytja seiðin og ná í lax til slátrunar. Þegar flutningum lýkur verður búið að tæma um 60% af eldisrými Silfurstjömunnar. Um leið hefst vinna við að ala upp nýjan árgang fyrir Sæsilfur. Benedikt sagði þessi nýja áhersla í starfsemi Silfurstjömunnar gerði það að verkum að hún yrði afar háð gengi Sæsilfurs, en hann bætti því við að þessi verkaskipting ætti að geta komið báðum til góða. „Bleikju- eldið verður með óbreyttum hætti og reynum frekar að auka það en hitt. Matfiskeldi í laxi verður hins vegar lítið,“ sagði Benedikt. Silfurstjaman hefur nánast ótakmarkaðan hita og getur því alið fisk upp við hærri hita en flestar aðrar fiskeldisstöðvar. Benedikt sagði þetta gefa mögu- leika á hlýsjávareldi og því var kannað hvemig gengi að ala sandhverfu. Eldið gekk vel og er stöðin búin að fá heimild til að flytja til landins hrogn frá Frakklandi. „Við áætlum að hefja sandhverfueldi í stærri stfl og ég geri ráð fyrir að hrognin komi með haustinu. Svona innflutningur kallar á sóttkví sem verður tæpast hér,“ sagði Benedikt og gat þess að víða í Evrópu væri hefð fyrir flatfiski eins og sandhverfu. Rannsöknastofnun landbúnaöarins mð nú eignast hlut í fyrirtækjum Lögum um Kannsóknastofnun land- búnaðarins var breytt á síðasta ári þannig að stofnunin hefur nú heimild til að koma verkum sínum í framkvæmd með hlut í fyrirtækjum með takmarkaða ábyrgð. „Það er nýtt að við höfum þessa heimild en nokkrar af rannsóknastofnunum atvinnuveganna hafa haft hana um nokkurn tíma, svo sem Iðntæknistofnun, Orkustofnun og Rannsóknastofnun fískiðnaðarins. Þessi lagabreyting opnar fyrir þann möguleika að vinna sem við höfum lagt fram eða hluti hennar getur breyst í hlutafé í fyrirtæki. Það má segja að þetta sé ein aðferð til að koma hugmyndum út í lífíð," sagði Þorsteinn Tómasson, forstjóri RALA, í samtali við Bændablaðið. Breytir miklu fyrir RALA Hann segir að þetta geti breytt miklu fyrir RALA eftir verkefnum. Nú geti stofnunin tekið þátt í verkefnum með öðrum. Hafi RALA unnið að ákveðnum rannsókna- verkefnum, sem reynist áhugaverð sem grundvöllur að fyrirtæki, þá geti RALA nú lagt vinnu sína inn í fyrirtækið sem hlutafé. „Þannig fáum við einhverja umbun til baka fyrir þá vinnu sem við höfum lagt af mörkum og getum þá fjármagnað nýjar rannsóknir." Orf-líftœkni í vetur var fyrirtækið Orf-líftækni ehf. sett á laggimar í húsakynnum RALA. Viðfangs- efni þess fyrirtækis er að framleiða dýr lífefni úr erfðabreyttu byggi. „Þar er um að ræða hlutafélag sem Rannsóknastofnun landbúnaðarins á hlut í vegna þess sem hún hefur lagt fram þróunar þess verkefnis. Fyrirtækið er síðan að leita eftir þátttöku fjárfesta úr atvinnulífmu til áframhaldandi uppbyggingar þess." Annað dæmi er hlutur RALA í fyrirtæki sem ætlar að nýta lúpínu í lífmassaframleiðslu. Einnig hlutur stofnunarinnar í Feygingu ehf. sem stefnir að atvinnuuppbyggingu í tengslum við ræktun og feygingu líns á Islandi. Það byggir á þeim möguleikum sem nægjanlegt heitt og kalt vatn veitir til framleiðslu á hágæðalíni. Lúpína og lín „Varðandi lúpínu og lífmassaframleiðslu þá er það hugmynd sem Ásgeir Leifsson og fleiri hafa unnið að og byggist á því að að vinna lífefni úr lúpínu og fleiri jurtum. Okkar framlag til þessa fyrirtækis er þekkingaröflun í rannsóknum á eiginleikum lúpínunnar á liðnum árum og er hún metin til hlutar. Um þessa hugmynd hefur verið stofnað fyrirtæki, Islenska lífmassafélagið ehf, sem hefur m.a. sótt um styrk í svonefndri Kraftáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið hefur fengið loforð fyrir 64ra milljóna króna styrk á næstu árum til að vinna að framgangi þessarar hugmyndar. Rannsóknastofnun land- búnaðarins mun vinna að áframhaldandi rannsóknum fyrir hluta af þeim styrk." Feyging ehf. er annað dæmi. Feyging er nafnið yfir það ferli þegar línið brotnar niður með aðstoð örvera þannig að þræðimir sem sóst er eftir losni frá öðrum vefjum plöntunnar. „Erlendis er þetta yfirleitt gert á velli eftir að búið er að rykkja plöntumar, þ.e. uppskera þær þannig að rætur fylgi. Það getur verið erfitt að stýra gæðunum þar sem umhverfis- aðstæður geta verið mjög breytilegar. í okkar tilfelli em menn að skoða möguleika sem felast í góðu aðgengi að heitu og köldu vatni til að stýra niðurbrotsferlinu, vinna þetta hratt og vel, og ná fram miklum gæðum. Ef vel tekst til verður hægt að rækta héma lín og framleiða úr því. Einnig í þessu tilfelli hefur stofnunin lagt fram nokkra rannsóknavinnu auk þess sem landbúnaðarráðuneytið hlutaðist til um framlag til verkefnisins með stuðningi Framleiðnisjóðs. Framlagið var lagt fram sem hlutafé í fyrirtækinu og RALA falið að fara með þann hlut. Ég tel að þessi verkefni öll séu mjög áhugaverð hver með sínum hætti og það verður spennandi að vinna að framgangi þeirra." sagði Þorsteinn Tómasson. íslendingan taka pátt í evpapsku verkefni um sjúk- dómaskráningu ng flutningum á báfá Elaine Hughes, viðskiptaráð- gjafí E-blana Enterprise Group Limited í Dublin á ír- landi var stödd hér á landi í síðustu viku vegna EuroVet verkefnisins. EuroVet er tölvukerfi á vegum Evrópu- sambandsins og snýr að sjúk- dómaskráningu og flutningum á búfé. Y firdýralæknisembættið ákvað á síðasta ári að taka þátt í prófun á þeim þætti tölvu- kerfsins sem snýr að sjúkdóma- skráningu á sauðfé. Prófanir á öðrum þáttum kerfisins eru jafn- framt í gangi í Lettlandi og Eist- landi. Auk Yfirdýralæknisem- bættisins taka Bændasamtök Is- lands og Búnaðarsamband Suð- urlands þátt í tilrauninni. Nokkrir bændur á Suðurlandi munu taka þátt í prófun kerfisins og einnig þurfa Bændasamtökin að taka upplýsingar úr skýrslu- haldi fjárræktarfélaganna til að nota sem grunnupplýsingar um gripi, bæi og eigendur. Y firdýralæknisembættið þarf einnig að útvega miðlara til að keyra EuroVet verkefnið á og er líklegt að Oracle miðlari Bændasamtakanna verði notað- ur til þess. Jón B. Lorange, for- stöðumaður tölvudeildar Bænda- samtakanna, sagði í viðtali við Bændabiaðið að áhugavert væri að taka þátt í prófun á svo um- fangsmiklu verkefni og að við gætum lært heilmikið af þessu. Umfangsmikið verkefni í þremur löndum „Hvort þetta kerfi verður tekið í notkun á íslandi ræðst af útkomu úr prófuninni og að sjálfsögðu skiptir máli á hvaða verði Islendingum verður boðið kerfið." Elaine Hughes sagði verkefnið mjög umfangsmikið enda færi það fram í þremur löndum á sama tíma. „Athyglis- vert er hve íslenskir bændur eru tölvuvæddir og hve þátttaka í skýrsiuhaldi er almenn meðal bænda. Þarna er mikill munur á þessum þremur löndum," sagði Elaine Hughes að lokum hæst- ánægð eftir að hafa fengið fréttir af jafntefli Ira og Þjóðverja í heimsmeistaramótinu í fótbolta! GLSkaptason ...þegar spurt er um gæði og gott verð.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.