Bændablaðið - 25.06.2002, Síða 16

Bændablaðið - 25.06.2002, Síða 16
16 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 25.júní 2002 J1 V. Er hœgt að fá einkaleyfi á Feta- nafninu? Grikkland hefur sótt um einka- leyfi á því að nota Feta nafnið á osta og ef af verður (sem allt bendir til) má eingöngu nota geita- eða sauðfjármjólk í ostagerðina. Búist er við hörðum viðbrögðum frá öðrum löndum sem hafa framleitt ostana með hreinni kúa- mjólk eða mjólkurblöndum. Sam- kvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið í Þýskalandi og Danmörku hafa sjálfir Grikkirnir átt erfitt með að halda sjálfir eigin viðmið og innihalda hinir svokölluðu grísku Feta-ostar bæði kúamjólk og plöntuolíur. Þannig féll um helmingur rannsakaðra grískra Feta-osta í þýsku rann- sókninni og myndu samkvæmt ofansögðu því ekki mega heita Feta-ostar! Heimild: MaskinBladet Online, 3.6.02/SS Heimsframleiðsla á korni með mesta móti í ár Samkvæmt nýrri áætlun frá „Alþjóðlega komeftirlitinu" (Intemational Grains Councel) er talið að árið 2002 verði eitt framleiðsluhæsta komár í sögu skráninga á komuppskeru. Gert er ráð fyrir að heimsframleiðslan verði 911 milljón tonn, sem er 23 milljón tonnum meira en á síðasta ári eða um 2,6% aukning á milli ára. Jafnframt er talið að kornsalan verði um 916 milljón tonn, þannig að áætlað er að heimsbirgðimar lækki niður í um 151 milljón tonn, sem nemur tæplega þriggja mánaða sölu. Þrátt fyrir minni birgðir, er talið að um birgða- aukningu verði að ræða í helstu framleiðslulöndum. í áætluninni er ráðgert að veruleg framleiðsluauking verði í Bandaríkjunum, Kanada og Kína, en að aukning innan Evrópu- sambandsins verði óveruleg. Heimild: MaskinBladet Online, 3.6.02/SS Umdeildar tillögur um breytt styrkjakerfi í nautakjöts- framleiðslu innan ESB Þjóðverjar og Frakkar hafa lagt til verulegar breytingar á styrkjakerfi ES fyrir naulakjöts- framleiðslu. í dag eru greiddir styrkir út á gripi, en í tillögunum er lagt til að greitt verði út á graslendi. Þessu hafa margar þjóðir með lítið graslendi algerlega hafnað og bent á mikinn tekjusamdrátt sumra bænda innan ES ef þessar hugmyndir næðu fram að ganga. Enn sein komið er hefur tillögunum verið hafnað af yfirstjóm ES. Að sögn Þjóðverja er með hugmyndunum verið að gera styrkjakerfið einfaldara og sýnilegra. Þá er að auki stuðlað að minnkun framleiðslunnar, þar sem bændur fengju greidda fasta upphæð á sitt graslendi óháð framleiðslu. Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast vel með land- búnaðarmálum innan Evrópusambandsins á slóðinni: //europa.eu.int/comm/agriculture/i ndex_en.htm 40% lœkkun á kvóta í Danmörku Um miðjan maí var kvótamarkaðinum í Danmörku lokað og tilboð um kaup og sölu reiknuð upp. I ljós kom að vegna gríðarlegs framboðs á greiðslumarki féll verðið um nærri 40% frá síðasta verði (nóvember 2001) og benda fyrstu útreikningar til þess að verðið muni liggja á bilinu 22,3 - 22,7 kr/kg. Til samanburðar er verð á kg mjólkur til bænda í Danmörku nú um kr. 25,2. Hlutfallið milli kvótaverðs og mjólkurverðs er því um 0,89 en síðustu tölur hérlendis benda til þess að sama hlutfall sé um 2,70. Mikið fall greiðslumarksins kemur til vegna framboðs á 262 milljónum kg frá 950 bændum, en á sama tíma óskuðu 2.080 bændur eftir að kaupa kvóta, en ekki nema 123 milljónir kg. Vegna þessa munu einungis um 415 bændur fá seldan rétt að þessu sinni, þar sem hinir buðu sitt greiðslumark til sölu á of háu verði, en verð á greiðslumarki er sk. jafnvægisverð sem leiðir til þess að þeir sem krefjast of hás verðs á greiðslumarki fá ekki selt. Gert er ráð fyrir að um 1.975 bændur fái keyptan framleiðslurétt að þessu sinni. Nánar má lesa um kvótamarkaðinn og verðmyndunina á dönskum vef: www.maelkeudvalget.dk Coca-Cola með nýjan mjólkurdrykk Eftir margra ára undirbúning mun Coca-Cola í Bandaríkjunum setja á markað nýjan súkkulaðidrykk nú í sumar. Drykkurinn hefur fengið nafnið Choglit og hefur fram- leiðslurisinn því farið inn á þá braut sem boðuð var fyrir nokkrum árum, að framleiða mjólkurvörur auk hefðbundinna gosdrykkja. Choglit er framleitt af Beverage Partnees Worldwide (BPW), sem er í eigu bæði Coca- Cola og Nestlé. BPW framleiðir þegar kaffi, te og djús á flöskum.Heimild: landsbladet.dk Anægja með uppfræðslu á Tannstaðabakka Nú vaxa upp heilu kynslóðimar sem aðeins hafa séð sveitir landsins út um bflrúður og þekkja kýr og kindur aðeins úr mynda- bókum. En skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði hafa svo sannarlega gert sitt til að kynna börnum landsins landbúnað á íslandi. Rúmur helmingur 12 ára nemenda Iandsins fer í skóla- búðimar og dvelur þar í nokkra daga. Meðan á dvöl stendur heim- sækja krakkarnir Tannstaðabakka og skoða búið undir leiðsögn Skúla bónda. Skömmu eftir að þau koma heim í skólann sinn fær bekkurinn kort frá Skúla og þannig er minnt á landbúnaðinn. Skúli bóndi spilar líka fyrir þau á hljóðfæri ef svo ber undir. Mörg barnanna koma þar í fjós í fyrsta skipti á ævinni og sum eru jafnvel að koma í sveit í fyrsta sinn. Á stundum eru þau svo hrifin að þau hafa til dæmis spurt um bændaskólana eftir að hafa komið til Skúla. Lengi býr að fyrstu gerð og vel má vera að innan fárra ára fái Hvanneyri, Hólar eða Reykir fólk til náms sem fyrst sá kýr í návígi í fjósinu á Tannstaðabakka. Þegar hóparnir hafa gengið um útihúsin á Tannstaðabakka útfylla kennararnir eyðublað þar sem fram kemur hvaðan nemendumir koma og hvað þeim fannst um heimsóknina. Það er afar skemmtilegt að lesa þessi blöð og má færa rök fyrir því að líklega sé fátt sem gert er innan landbúnaðarins sem nær jafn vel til krakkanna - nema kannski Dagur með bónda, en þá heimsækja bændur bekki í grunnskólum. Kennari við Kársnesskóla í Kópavogi sagði: „Þetta var alveg frábært. Skúli náði mjög vel til nemenda og ég hugsa að margir nemendur fái annað álit á bændum.” Kennari í Holtaskóla í Reykjanesbæ sagði: „...Einkar skemmtilegt að heyra um mismunandi grastegundir því fyrir flestum er hey bara hey!” Frá Snælandsskóla komu þessi orð: „Þetta framtak er alveg frábært. Það var rólega og nota- lega tekið á móti okkur af Skúla. Fræðsla og kynning voru mjög markviss og vel skipulögð. Börnin voru mjög áhugasöm og nutu þess að fá að kynnast þessu starfi. Það sem ég heyrði á bömunum var að þetta hefði verið alveg frábært, en sum vildu fá að drekka „nýja mjólk" og öðmm fannst að tíminn væri alltof stuttur.” Kennari við Vesturbæjarskóla í Reykjavík sagði um Skúla: „Frábær leiðsögumaður með hæffleika til að ná til krakkanna.” Sú fræðsla sem börnin fá á Tannstaðabakka slær greinilega í gegn. Fátt er íslenskum land- búnaði jafn mikilvægt og að æskan fái sem gleggsta hugmynd um atvinnugreinina og þann kraft sem í henni býr. Sá stuðningur sem Framleiðnisjóður land- búnaðarins hefur veitt kynningar- starfinu á Tannstaðabakka er líka umtalsverður - og væri líklega illmögulegt að halda þessu úti án hans. /AÞ. Ahugi i iniminningi 1 nautakjöti mjnnkar en ðhugi ii ostnm mikill r Hér eru nokkrir kátir á góðri stund á staurabryggjunni á Hofsósi með Frændgarð í baksýn. Frá vinstri: Jón Eiríksson, Drangeyjarjarl, Ólafur Ragnar Grímsson, Sturla Böðvarsson, Valgeir Þorvaldsson, Magnús Ólafsson og Jón Magnússon, verkfræðingur á Hofsósi. Rétt er að taka fram að Magnús var lengi bóndi í Norður-Dakóta og tók á móti og greiddi götu margra íslenskra bænda sem hafa heimsótt Bandaríkin á undanförnum árum. ÖÞ. Margmenni var samankomið á Hofsósi í síðustu viku þegar tvö mannvirki, tengd Vesturfara- setrinu, voru formlega tekin í notkun. Það voru annars vegar svokallað Konungs- verslunarhús en bygging þess hófst fyrir um ári síðan. Það var Ólafur Ragnar Grímsson forseti Islands sem opnaði húsið formlega og jafnframt sýningu um Islendinga sem fíuttu til Norður-Dakota á sínum tíma. Þá vígði Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra nýja trébryggju fyrir framan Vesturfarasetrið. Bæði þessi mannvirki eru liður í þeirri menningartengdu ferða- mennsku sem Valgeir Þorvaldsson ferðaþjónustubóndi og frum- kvöðull að byggingu Vestur- farasetursins hefur unnið að á undanförnum árum. /ÖÞ. Á þriðjudag í liðinni viku rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripa- kjöti, ostum og öðrum vörum. Ahugi á innflutningi nautgripa- kjöts var mun minni en inn- flutningskvóti landsins heimilar og verður því innflutningur tii landsins á næstu 12 mánuðum minni en heimildir eru fyrir. Sótt var um heimild til inn- flutnings á 70,5 tonnum af naut- gripakjöti en innflutningskvótinn er fyrir þetta tímabil 95 tonn, eða rétt um 74% af heildarkvóta. Á meðfylgjandi töflu má sjá hvaða fyrirtæki fengu heimild til innflutnings á nautgripakjöti á kvótatímabilinu 2002/2003: Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2002 - júní 2003 Magn Tilboðsgjafi 10,01. Aðföng - Baugur 7,01. Búr ehf. 25,0 t. Dreifing ehf 1,01. Gallerý kjöt ehf. 12,01. GV Heilverslun ehf. 7,01. Kjötbankinn ehf. 8,5 t. Perlukaup ehf. Sótt var um innflutning á meira magni af ostum en nam innflutningskvóta, en alls buðu átta fyrirtæki í ostakvótann. Samtals var boðið í 236,1 t. á meðalverðinu 193 kr./kg, hæst var boðið 255 kr./kg, en lægsta boð var 10 kr. fyrir kflóið. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 119,0 t. á meðalverðinu 219 kr./kg. Á meðfylgjandi töflu má sjá hvaða fyrirtæki fengu heimild til innflutnings á ostum á kvótatímabilinu 2002/2003 Ostur fyrir tímabilið júlí 2002 - júní 2003 Magn Tilboðsgjafi 40,01. Aðföng - Baugur 1,01. Dreifing ehf 13,01. Karl K. Karlsson ehf. 0,2 t. Kísill ehf. 20,51. Lyst ehf. 40,01. Osta- og Smjörsalan sf. 4,01. Sólstjarnan ehf. /SS

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.