Tónlistin - 01.03.1947, Blaðsíða 23

Tónlistin - 01.03.1947, Blaðsíða 23
TÓNLISTIN vera kominn á áfangastaðinn á und- an flutningsmanninum. En sá, sem gleymdi liæði tíma og flutnings- manni á leiðinni, var Beethoven, og ])að var farið að skyggja, cr hann loks, þreyttur, svangur og rykugur, kom að íbúðinni, sem hann íiafði leigt sér. En þar kom hann að tómu húsi. ökumaðurinn hafði l)eðið eftir lionum í tvær klukkustundir. Þá fannst honum nóg komið. Hann ætl- aði sér ekki að fórna nætursvefni sínum fyrir sérvitring eins og mcist- ara Beethoven. Hann affermdi vagn- inn án frekari umsvifa, skildi allt dótið eftir í cinni hrúgu á torginu í Mödling og sneri heim aftur með hest og vagn. Þannig kom Beethoven að flutningsdóti sínu á törginu, og varð honum, eins og nærri má geta, heldur gramt í geði. En allt í einu rak meistarinn upp skellihlátur, smalaði saman öllum götustrákunum, sem af forvitni höfðu safnazt frammi fvrir þessari óvæntu hrúgu þarna á miðju torgi, og fékk þá til að hjálpa sér að bera inn allt dótið — og var því verki, segir sögumaður, ekki lok- ið fvrr en um það bil, er næturvörð- urinn hoðaði miðnætti. Mér dalt þetta oft í hug, er ég gckk þarna um torgið í Mödling, og gat ég þá sjaldnast varizt hrosi við tilhugsunina um þennan flutning, er Bcethoven og strákarnir hurðuðust mcð nótur og annað dót í fanginu á milli húss og torgs kvrrláta vor- nótt fyrir rúmri öld. Einn góðan veðurdag leitaði ég uppi nokkur Beethovenhúsin í Hei- ligcnstadt og öðrum útliverfum. Mér cr það minnisstætt, er ég stóð frammi 69 fyrir einum hústað Beethovcns, hvítu, litlu húsi á kyrrlátum stað. Þar hafði tónskáldið ætlað að leita sér hvíldar og hressingar, er heyrn- arleysið var farið að þjá hann til- finnanlega og lcggjast mjög þungt á hann. Þar hafði hann samið nokk- ur fegurstu verk sín, og þar hafði hann, þá 32 ára að aldri, ritað Hei- ligcnstadt-erfðaskrána, scm allir kannast við, cr lesið hafa ævisögu Bccthovens, og fæstir munu ósnortn- ir af. Oft stóð' eg frammi fyrir líkneski af tónskáldinu við svonefndan Beet- hovenstíg, þar sem sagt er, að hafi vcrið einn uppáhaldsstaður hans. Þar á cinn fagur kafli í Pastörale- symfóníunni að hafa oi-ðið til. „Hér skrifaði ég kaflann við lækinn", segir cinn vinur Beethovens, að hann hafi sagt við sig, er þeir voru á gangi á þessum stað, „og fuglarnir allt í kring kompóneruðu með mér“. — A öðrum slað var sagt, að þcir Bcet- hoven og Sehuhert hcfðu ol't mætzt á skemmtigöngu, þegar hvasst var. Hafði Beethovcn alltaf gengið á móli vindi, en Sclmbert alltaf undan vindi. Tónlistin var ennþá, áður en all- ar hörmungar stríðsins dundu yfir mjög í hávegum höfð í Vínarborg, og ástin á hcnni virtist íbúum borg- arinnar í blóð borin. Hausmusik, tónlist í heimahúsum, var iðkuð af kappi. I mörgum fjölskyldum léku flestir á eitthvað hljóðfæri. Það voru leikin tríó, kvartcttar, dúó, spilað fjórhent á píanó, sungið. Unga fólk- ið hittist viss kvöld til að leika sam- an á hljóðfæri, og eldra lólkið gerði það einnig. Þannig þekkti ég hóp

x

Tónlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.