blaðið - 06.05.2005, Page 8
föstudagur 6. maí 2005 I blaðið
8 neytendi
M
Ætla má að meðal íslendingur hendi
um 53.100 krónum í ruslið í formi
ónýtra matvæla ef neysluvenjur okkar
eru sambærilegar við það sem þekkist
í Englandi. Samkvæmt nýjustu rann-
sókn Sorpu, sem gerð var í nóvember
á síðasta ári, eru 26% þeirra 44.470
tonna af blönduðu heimilissorpi á höf-
uðborgarsvæðinu ónýtt matvæli.
„íbúar höfuðborgarsvæðisins
henda samkvæmt þessu 11.000 tonn-
um af matvælum í ruslatunnumar
á hverju ári,“ segir Gyða S. Bjöms-
dóttir, kynningar- og fræðslufulltrúi
hjá Sorpu. Það eru um það bil 90 kg
af matvælum á hvern einstakling.
Nú er verið að gera könnun á því
hversu miklum peningum er eytt
í matvæli sem enda í tunnunni og
má búast við að niðurstöður hennar
komi fram með haustinu. Kveikjan að
könnuninni er rannsókn sem gerð var
í Bretlandi árið 2004 þar sem 1.000
neytendur voru spurðir að því hversu
miklu þeir sóuðu í daglega neyslu
sem endaði í tunnunum. Niðurstöð-
urnar komu mönnum í opna skjöldu,
en sem dæmi má nefna að 7% launa
dæmigerðs neytanda í Englandi fara
í ónýttan mat, ónýttar neysluvörur og
klúbbáskriftir, en matvaran er þar í
stórum meirihluta. Á heimasíðu Sorp-
stöðvar Suðurlands kemur fram að
hver einstaklingur í Englandi hendi
að meðaltali 53.100 íslenskum krón-
um í ruslið í formi ónýttra matvæla á
hveiju ári. Því mætti gróflega álykta
að íbúar höfuðborgarsvæðisins hendi
tæplega sexoghálfum milljarði í tunn-
una á ári. „Líklegt er að við hendum í
það mynda svipuðu og Englendingarn-
ir,“ segir Gyða að lokum.
að versla
í Madrid
Madrid er hagkvæmasta
verslunarborg Evrópu, sam-
kvæmt nýjustu verðkönnun
Evrópsku neytendamiðstöðvar-
innar, sem sjá má á heimasíðu Neyt-
endasamtakanna. í könnuninni var
borið saman verð á ýmsum þekktum
vörutegundum í 11 borgum Evrópu.
Sem dæmi um verðmuninn má nefna
að í Madrid kostar 20 gígabæta iPod
299 evrur en 369 evrur í Dublin. í Ma-
drid er einnig hægt að gera hagstæð
kaup á fatnaði en gallabuxur úr versl-
uninni Zara kosta 36 evrur í Madrid,
samanborið við 50 evrur í London og
Stokkhólmi.
Rautt Ijós á
Offita almennings sökum óholls
mataræðis færist sífellt í vöxt og er
orðin eitt helsta heilsufarsvandamál
sem vestræn ríki þurfa að glíma við.
Mikil umræða hefur verið um vanda-
málið í Bretlandi og í framhaldinu
hafa stjórnvöld þar í landi lagt til að
sett séu nokkurs konar umferðarljós
á matvæli til þess að hjálpa almenn-
ingi við matarinnkaupin.
Þessar nýju merkingar eru ætlaðar
til einfóldunar því það getur reynst
erfitt að velja í innkaupakörfuna ef
mataræðið á að vera heilsusamlegt.
Grænt ljós myndi þá merkja heilsu-
samlega vöru, gult ljós vöru sem á að
borða í hófi og rautt ljós vöru sem ætti
að neyta í litlu magni. Þá myndu til
dæmis frosnar baunir fá grænt ljós,
smurostur fá gult ljós en gosdrykkir
fengju rautt ljós. „Fyrir venjulegan
neytanda er oft erfitt að átta sig á
innihaldi vörunnar sem hann er að
kaupa,“ segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
og bætir við að þetta væri mjög góð
lausn til að meta hollustu hverrar
vöru fyrir sig og yrði til þess að bæta
heilsufar fólks verulega. „Stjómmála-
menn í Evrópu hafa velt fyrir sér
vandanum og beijast nú, með stuðn-
ingi neytendasamtaka, fyrir betri
merkingum á matvælum. Verið er að
ræða hvort slíkar merkingar eigi að
vera gerðar að skyldu eða vali hvers
matvælaframleiðenda fyrir sig,“ seg-
ir Jóhannes sem telur merkingarnar
þó verða að vera skyldu fyrir alla, því
að annars myndu eingöngu hollar
vörar vera merktar. Þetta á þó eflir
að verða harður slagur þar sem mat-
vælaframleiðendumir sjálfir eru ekki
jafnhrifnir af hugmyndinni. „Þeir eru
alfarið á móti þessu og því er spurn-
ingin aðeins sú hver hefiir meiri áhrif
þegar upp er staðið,“ bætir Jóhannes
við að lokum.
www.toscana.ls HÚSGÖGN TIL FRAMTÍÐAR
Eldhússtólar og borð
mikið úrval.
Svefnsófar í miklu úrvali
Dæmi: Gry kr. 69.000-
Rafstillanleg rúm
Verð frá kr. 66.000
80 x 200cm
kr. 7.500-
B:221cm Svefnpláss 195x143cm
S M t Ð J U VJ
húsgögmn fÁst.
I 2, KÓP S : 5 8 7 6090
IIG IHÚSOAGNAVAL, HÖFN 8: 476
f I I
I 1
f 1