blaðið - 06.05.2005, Síða 31
blaðid I föstudagur 6. maí 2005
mm
vbv@vbl.is
Luis Garcia, leikmaðurinn knái í liði
Liverpool, sem skoraði markið dýr-
mæta gegn Chelsea í Meistaradeild-
inni á þriðjudag, er handviss um að
markið hafi verið gott og gilt. Garcia
skoraði á 4. mínútu og er þess fullviss
að William Gallas hafi ekki náð að
sparka boltanum í burtu áður en sá
hnöttótti fór yfir marklínu Chelsea.
„Þegar Milan Baros var felldur af Petr
Chech þá hélt ég bara áfram og náði
að lyfta boltanum í átt að markinu,”
sagði Garcia á heimasíðu Liverpool.
„Mér fannst að boltinn hafi farið inn
fyrir línuna og ég er mjög hamingju-
samur núna. Þetta var mikilvægur
sigur og fyrir mig var þetta mjög mik-
ilvægt mark.”
Svo virðist sem Luis Garcia hafi
reynst Liverpool dýrmætur leikmaður
í vetur en það var einmitt þessi 24 ára
Spánveiji sem skoraði sigurmarkið
gegn Juventus á Anfield í 8 liða úrslit-
um Meistaradeild-
arinnar. Garcia
er mjög ánægður í
Liverpool en hann
kom frá Spáni fyr-
ir yfirstandandi
leiktíð ásamt
nokkrum öðrum
Spánveijum sem
prýða leikmanna-
hóp rauða hersins.
„Þegar við komum
síðastliðið sumar
var markmiðið að
vinna einhveija
bikara í vetur.
Okkur dreymdi
þó ekki um að ná
þettalangtíMeist-
aradeildinni á fyrstu leiktíð okkar
með Liverpool,” sagði Garcia. „Þessi
sigur var ekki bara mér að þakka, allir
á vellinum áttu frábæran leik. Þegar
við sáum að sex mínútum var bætt við
seinni hálfleikinn hélt ég að það yrði
okkar banabiti en fyrir okkur að kom-
ast í úrslitaleikinn fer fram úr okkar
Mér fannst
að boltinn
hafi farið
inn fyrir
línuna og
ég er mjög
hamingju-
samur
núna.
Liverpool - Chelsea
Luis Garcia er viss um
að boltinn fór yfir línuna
Markið umdeilda i leik Liverpool og Chelsea. Var boltinn inni eða ekki?
björtustu vonum,” sagði Luis Garcia í
viðtali á heimasíðu Liverpool.
Frakkinn Djibril Cisse kom inn
á sem varamaður í liði Liverpool en
hann er enn að ná fullum bata eftir að
hann tvífótbrotnaði fyrr á leiktíðinni.
Hann hrósaði stuðningsmönnum
Liverpool í hástert eftir leikinn, sem
og allir leikmenn liðsins, en stemmn-
ingin á Anfield var engu lík. „Þetta er
yndisleg stund, það mikilvægasta var
að komast áfram og þó svo að ég hafi
átt möguleika á að skora en ekki tek-
ist það í þessum leik þá hef ég ekki
áhyggjur af því,” sagði Djibril Cisse
Mynd frá Reuters
í viðtali við L’Equipe. „Stemmningin
var ólýsanleg, og ótrúlegt að áhan-
gendur liðsins hafi náð að vera svona
háværir í 90 mínútur.”
Tjalli hjáVal
Valsmenn eru enn með Englendinginn
Joel Pilkington í skoðun en hann hefur
verið hjá Val síðan á laugardag. Pilking-
ton þessi kemur frá Burnley og er miðju-
maður. Hann er 22 ára og þykir nokkuð
góður en hann fær reynsluleik á morgun
með Val gegn Þór á Akureyri. Leikurinn,
sem hefst klukkan 13, er minningarleik-
ur um Guðmund Sigurbjörnsson, fyrrum
formann Þórs, sem lést um aldur fram
árið 1998.
Ballack til United
Sir Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, er sagður ætla að
bjóða í Michael Ballack, leikmann þýsku
meistaranna í Bayern Munchen, fyrir
næstu leiktíð. Þetta kemur fram í The
Daily Star í gær. Ballack á eitt ár eftir af
samningi sínum við Bayern og sir Alex
hugsar Þjóðverjann snjalla sem arftaka
Roys Keanes, sem er á síðustu bensín-
dropunum.
Gilardino til Milan
AC Milan er sagt líklegasta liðið til að ná
í framherjann efnilega, Alberto Gilardino,
sem leikur með Parma. Umboðsmaður
Gilardino, Benne Bonetto, sagði í viðtali
við ítalska fjölmiðla að það væri nánast
öruggt að Gilardino færi ekki til útlanda
og var þá að tala um Real Madrid eða
Arsenal sem hafa verið á höttunum eftir
pilti. Bonetto sagði að það væri svo til
frágengið að Alberto Gilardino kæmi til
með að flytja til Mílanó-borgar á næstu
leiktíð og var í því sambandi að tala um
AC Milan.
Meistarar meistaranna
í kvennaflokki mætast íslandsmeistarar
Vals og bikarmeistarar ÍBV. Leikur þeirra
liða fer fram næstkomandi þriðjudag en
leikstaður hafði ekki enn verið ákveðinn
þegar Blaðið fór í prentun.
PSV-Milan
Milan heppið að komast áfram
vbv@vbl.is
Það má segja að stórlið AC Milan hafi
verið stálheppið að komast áfram í
úrslitaleikinn í Istanbúl 25. maí nk.
Hollensku meistaramir í PSV Eindho-
ven, undir stjórn Guus Hiddink, voru
miklu betri í báðum leikjum liðanna
en andartaks einbeitingarskortur á
sama tímapunkti í báðum leikjunum
varð þeim að falli. Milan skoraði í
fyrri leiknum eftir 90 mínútur og 10
sekúndur og hið sama gerðist í seinni
leik liðanna. Fyrri leikurinn fór 2-
0 fyrir Milan og sá seinni 3-1 fyrir
PSV og þar með fara þeir rauðsvörtu
áfram á marki skoruðu á útivelli.
PSV var 61% tímans með boltann
í seinni leik liðanna, sem segir ým-
islegt. Þeir áttu 15 marktilraunir á
móti 8 hjá ítölunum. AC Milan mæt-
ir því Liverpool í úrslitaleik Meistara-
deildarinnar í Istanbúl 25. maí. Félög-
in eru sigursælustu lið sinna landa
í Evrópukeppninni. Milan hefur sex
sinnum sigrað í keppninni en Liverpo-
ol á fjóra titla að baki. AC Milan varð
fyrir áfalli í leiknum við PSV þar sem
fyrirliði þeirra, Paulo Maldini, meidd-
ist eftir höfuðhögg. Ekki er búist við
að hann leiki með sínum mönnum í
stórleiknum gegn Juventus á sunnu-
dag þegar liðin mætast á Guiseppe
Meazza í Mílanó. Leikur AC Milan
og Juventus verður sýndur beint á
Sýn á sunnudag og hefst leikurinn
klukkan 13.
AC Milan var stálheppiö að komast áfram í úrslit Meistaradeildarinnar í ár.
Þú færð allt í boltann hjá okkur!
Gervigrasskór
Takkaskór
/fyóttafé/öo .
ö fya okkUr
XXS - S kr. 3.990.
S-M kr 4.490.-
mttr© W
keppnisbolti
Tílboðsverð í
maí kr. 7.500.-
“ Mitre Turbo MMS
TafcRaskór á kr 2000.-
Tilboðsverð meðan birgðir endast
Bakpokar og töskur
á góðu verði
Mitre fótbolti á
aðeins kr. 990.-
knattspyrnuverslun
Ármúla 36 108 Reykjavík
s. 588 1560
www.joiutherji.is
Kr. 8.990.-/11.990.-
Kr. 5.490.-
Kr. 8.990.-/11-990'