blaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 2
2 innlent
föstudagur, 13. maí 2005 I blaðið
Tilraun til íslandsmets í blindskák
Henrik Danielsen stórmeistari hóf
blindskákarfj öltefli við 18 efnilega
og upprennandi íslenska skákmenn
í höfuðstöðvmn íslandsbanka í gær-
dag. Aldrei fyrr hefur blindskák ver-
ið tefld við svo marga andstæðinga
hér á landi, en eldra metið var blind-
skák Helga Áss Grétarssonar við 11
manns. íslandsbanki og Hrókurinn
stóðu sameiginlega fyrir flölteflinu
sem ætlað er að innsigla samstarf
félaganna, en íslandsbanki er aðal-
styrktaraðili Hróksins. Af því tilefni
færði Hrafn Jökulsson, forseti Hróks-
ins, Einari Sveinssyni, stjórnarfor-
manni íslandsbanka, þakklætisvott
fyrir samstarfið; útskorið tafl frá Afr-
íku en Hróksmenn eru nýkomnir það-
an þar sem skákin var kynnt bömum
í Namibíu.
600 gervifætur til íraks
íslensk stjórnvöld styrkja uppbyggingu í írak með 92 milljóna
samningi við Össur hf.
Utanríkisráðuneytið samdi fyrir
skömmu við Össur hf. um fram-
kvæmd 92 milljóna króna stoðtækja-
verkefnis í írak, en markmið þess er
að 600 manns fái gervifætur neðan
hnés. Verkefnið verður unnið í sam-
starfi viðsænsktog írakskt stoðtækj a-
verkstæði á 12-18 mánaða tímabili og
er það þáttur í framlagi ríkisstjórnar-
innar til uppbyggingarstarfs í írak.
www.Milljon.com
Einföld netviðskipti fyrir alla.
Gríðarlegir tekjumöguleikar.
Skoðaðu afar góða kynning-
armynd á www.Milljon.com
Össur hf. mun hafa yfirumsjón með
verkinu, sem verður unnið af sænsk-
um og írökskum aðilum í írak. Felst
það í ásetningu gervifótanna 600,
þjálfun þarlendra stoðtækjafræðinga
og eftirfylgni sjúklinga.
Aðdragandi málsins er sá að um
nokkurt skeið hefur verið til skoðun-
ar hjá ráðvmeytinu þátttaka í stoð-
tækjaverkefni með Össuri hf. í írak,
eða frá því að ríkisstjómin samþykkti
8. apríl 2003 að veita allt að 300 millj-
ónum króna til neyðar- og mannúðar-
aðstoðar, sem og uppbyggingarstarfs
í írak. Framlagið nú er það sem enn
var óráðstafað af þeirri fjárveitingu.
Utanríkisráðuneytið hefur áður
komið að aðstoð við stríðshrjáð svæði
með þessum hætti. Á sínum tíma
gáfu Islendingar um 1.000 gervifæt-
ur ffá Össuri til Bo-
sníu-Herzegóvínu eftir
stríðið í fyrrum Júgó-
slavíu og var verðmæti
þeirra um 70 milljónir
króna. Innifalið í þeim
samningum var þjálfun
starfsmanna stoðtækja-
verkstæða víðs vegar
um landið.
Athygli vekur að
kostnaðurinn við verk-
efnið í írak er um helm-
ingi hærri en í Bosm'u-
Herzegóvínu. Þar nam
kostnaður við hvern
sjúkling um 70.000
krónum en í írak er
hann rúmar 150.000
krónur.
Mynd: Reuters
Gunnar Örlygsson sagði sig
úr Frjálslynda flokknum
Flokkurinn
á villigötum
Það hefur ekki farið fram hjá
mörgum að í fyrrakvöld fékk
Sjálfstæðisflokkurinn óvæntan
liðsauka þegar Gunnar Örlygs-
son sagði sig úr Frjálslynda
flokknum og gekk til liðs við
þá. Gunnar segir ástæðurnar
fyrir þessu vera málefnalegan
ágreining milli sín og þingflokks-
ins, auk samstarfsörðugleika
við Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformann flokksins. Magn-
ús segir lítið hæft í þessum
fullyrðingum og segir þetta
verstgagnvartkjósendumþing-
flokksins.
Réttast að segja af sér
„Þingmenn bera fyrst og
fremst ábyrgð gagnvart sínum
kjósendum. Gunnar þarf nátt-
úrlega að eiga þetta við sína
kjósendur, hann þarf að gefa
þeim einhverjar skýringar. Fólk-
ið sem kaus Gunnar Orn kaus
hann ekki til setu í Sjálfstæð-
isflokknum til að berjast fyrir
þeirra málefnum heldur til þess
að berjast fyrir þeim málefn-
um sem Frjálslyndi flokkurinn
hefur sett á sína stefnuskrá og
barist fyrir. Hann hefði átt að
sjá sóma sinn í því að segja
af sér þingmennsku og hleypa
varamanni Frjálslynda flokks-
ins að," sagði Magnús.
Er hægri maður
Gunnar svarar þessu með því að
segjast hafa metnað til áfram-
haldandi starfa í stjórnmálum.
Hans mat er að Frjálslyndi
flokkurinn hafi farið á sveig við
kjósendur sína á síðustu tveim-
ur árum. „Hann var í upphafi
skilgreindur sem mildur hægri
flokkur. Það má kannski frekar
segja að Frjálslyndi flokkurinn
hafi yfirgefið sína kjósendur en
ég hafi ákveðið að fylgja þeim
eftir."
Austurver
Opiö alla daga ársins til kl. 24
Mán.-fös. kl. 8-24
Helgar og alm. frídaga 10-24
JL-húsið
Mán.-fös. kl. 9-21
Helgar 10-21
Kringlan 1. hæð
Mán.-mið. kl. 10-18:30,
fim. 10-21, fös. 10-19,
lau.10-18, sun. 13-17
f^Lyf&heilsa
Opið lengur
o Heiðskírt (3 Lóttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað / ✓ Rigning, lítilsháttar
Rlgning Súld
sjc ^ Snjókoma
*
*
v
Slydda
v
Snjóél
Amsterdam 15
Barcelona 20
Berlín 15
Chicago 18
Frankfurt 18
Hamborg 15
Helsinki 15
Kaupmannahöfn 14
London 14
Madrid 17
Mallorka 24
Montreal 6
NewYork 8
Orlando 22
Osló 13
Paris 14
Stokkhólmur 13
Þórshöfn 7
Vín 15
Algarve 18
Dublin 11
Glasgow 12
/V
Veðurhorfur í dag
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands