blaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 30

blaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 30
föstudagur, 13. maí 2005 I blaðið hver og hæfileikalaus? Trúbadúrinn vinsæli, Brian McFadden, segir Madonnu hæfi- leikalausa í sönglistinni og finnst honum of mikið gert úr tónlist hennar. „Fólk segir að Madonna búi til æðislega tón- list en það er algjört bull! Hún er með lélega rödd og hún er leiðinleg. Það er bara af því hún heitir Mad- onna sem fólk held- ur að hún sé snill- ingur og æðisleg. Ég held hún hafi aldrei verið góður tónlistarmaður," sagði söngvarinn nýverið og er ekkert að spara stóru orðin í þessu samhengi. g Culkin stendur með Jackson Leikarinn Macaulay Culkin hefur tekið upp hanskann fyrir Micha- el Jackson og þvertekur fyrir að söngvarinn gæti hafa misnotað unga drengi. Culkin, sem nú er 24 ára, var ó árum áður reglulegur næturgest- ur í höll Jacksons. Hann segir það algjöra fásinnu að halda að maður- inn gæti brotið svona af sér. „Hann myndi aldrei misnota böm. Ég hef verið hjá honum og myndi vita ef eitt- hvað slíkt gæti hafa átt sér stað,“ seg- ir Culkin en hann hefur ákveðið að standa þétt við hlið vinar síns í réttar- höldunum sem nú standa yfir. Vitni sækjanda hafa reynt að halda því fram að Jackson hafi snert leikarann unga á óveiðeigandi hátt órið 1991, en þá var Culkin 10 ára. Sjálfur segir Culkin þetta ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum. D A N S L E I K I R um helgina Föstudags- og laugardagskvöld 13. & 14. maí KLÚBBU RMM við Gullinbrú Sjá nánari upplýsingar á www.klubburinn.is eða i síma 567 3100 kyssir annan mann Undur og stórmerki gerast enn og greinilegt er að Cameron Diaz er ekki eins þakklát og ætla mætti fyr- ir að eiga þann kærasta sem hún á. Margar konur myndu gefa gull fyrir mannsefni af þessu tagi, en að því er virðist er hún ekkert að taka sam- band sitt of hátíðlega. Hún sást kyssa sjónvarpsframleiðandann Shane Nickerson ó dögunum en þau hafa unnið saman að undanfómu fyrir MTV. Mikið veður hefur verið gert úr athæfinu en talsmaður Diaz segir ekkert á milli þeirra - þau séu bara vinir. Þó er bara að vona að kærast- inn og kvennagullið, Justin Timber- lake, sé ekki í annað skiptið særður á þennan hátt því fregnir herma að hann hafi lent í slíku óður... Tveggja bama móðirin og leikkonan Nicole Kidman hefur lýst því yfir að hún myndi vilja verða ólétt ef það þýddi að hún fengi stærri brjóst. Seg- ist hún vilja fá meiri línur en hún hef- ur alltaf átt erfitt með að bæta á sig á holdi. „Ég myndi vilja líta út eins og Marilyn Monroe. Ef ég yrði ólétt kæmi að minnsta kosti eitt gott út úr því - ég fengi stærri brjóst," sagði Kid- man en greinilegt er að hún er komin með nóg af því að vera of grönn og vill fara að bæta aðeins á sig. — f Pemi neitar að hafa sagt Kutcher „fljótan" í rúminu Leikkonan Demi Moore fékk nú heldur betur að finna fyrir því eftir að hafa lýst því yfir við hönnuðinn Cyntiu Rowley að kærasti hennar, Ashton Kutcher, væri óvenju fljót- ur að ljúka sér af í rúminu. Cynthia brást heldur betur trausti Demi og sagði New York Daily News hvað þeim fór á milli. Það kom svo sannar- lega illa út fyrir leikkonuna íðilfögm og neitar hún núna að gangast við þessu. Hún segist aldrei myndu tala um svona hluti við þá sem ekki væm mjög nánir henni. Britney Spears gerir aðra tiíraun í kvikmyndunum jár*,. Söngkonan unga mun leika í mynd sem snýst um bíla og kappakstur. Stúlkan sjálf ætlar að framkalla og leika í myndinni sem mun bera heit- ið Trading Paint. Myndin snýst um tvo aksturskappa sem bóðir lifðu af lífshættuleg slys. Þeir em aftur komnir til keppni og munu mætast fyrir tilstilli ungrar konu, sem Spe- ars kemur til með að leika. Þetta er önnur tilraun dívunnar í kvikmynda- bransanum en hún lék í myndinni Crossroads árið 2002. Fékk hún afar slæma dóma fyrir þá frammistöðu svo það er vonandi að henni takist betur til í þetta skiptið. Réttarstaða dóttur Sigmundar Ernis verði könnuð Bára Guðjónsdóttir, bamsmóðir og fyrmm / kona Sigmundar Ernis I Rúnarssonar, segir í / ....... forsíðuviðtali við Mann- / ....... líf að hún telji eðlilegt / p að réttarstaða Eydís- / ........ ar dóttur þeirra verði / ,.. könnuð vegna skrifa ‘------ Sigmundar Emis í metsölubókinni Barn að eilífu. Bára telur að með skrifunum hafi verið brotið gegn friðhelgi einkalífs stúlkunnar, að hún hafi verið niður- lægð og mannorð hennar skaðað með lýsingum sem ekki eigi við stúlkuna. I viðtalinu gagnrýnir Bára að Þroska- hjálp og önnur samtök hafi ekki risið gegn þessum skrifum um fatlaðan einstakling. Leikkonan Sharon Stone er búin að eignast sitt annað bam en fyrir á hún fimm ára dreng, Roan Joseph, sem hún ættleiddi árið 2000. Mörg- ?um þykir þetta undarlegt í ljósi þess að ekkert hefur sést á henni, en hún mun hafa fengið leigumóð- ur til að ganga með barnið sem kom í heiminn síðastliðinn þriðju- dag. Stone er á leið til Texas til að sækja bamið en ung stúlka þaðan tók að sér meðgönguna fyrir ágætis upphæð. Ekki er vitað hvort um dreng eða stúlku er að ræða. j Annars er Stone að A hefja tökur á framhaldi Æ Ógnareðlis í London en hún gerði garðinn frægan hér um árið fyrir góða og vægast sagt djarfa framkomu í fyrstu myndinni. Sharon Stone móðir á ný

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.