blaðið - 13.05.2005, Blaðsíða 12
12 heilsa
föstudagur, 13. maí 2005 I blaðið
LINDIN
Landsliðsmaðurinn í körfuknattleik,
Helgi Már Magnússon, er nýkominn
í sumarfrí. Hann býr í Bandaríkjun-
um þar sem hann leggur stund á við-
skiptafræði og sálfræði við Catawba-
háskóla í Norður-Karólínufylki.
Hann hefur verið burðarstólpinn í
körfuboltaliði skólans, sem komst
alla leið í landsúrslit eftir að hafa
unnið sína svæðisdeild. Helgi var val-
inn maður tímabilsins í hði sínu og í
fimm manna úrvalslið deildarinnar. í
fyrra var hann valinn maður úrslita-
keppninnar en á fyrsta ári sínu var
hann valinn í úrvalslið nýliða.
Helgi er nú á íslandi en tekur sér
ekki ffí ffá æfingum. „Maður er alls
ekki í neinni slökun þegar heim er
komið,“ segir hann. „Eg fer strax á
landsliðsæfingar þar sem Smáþjóða-
leikamir em að hefjast og síðan eru
Evrópuleikir í lok september. Þess á
milli verða stífar æfingar og æfinga-
leikir." Helgi ver að jafnaði fjórum
klukkustundum á dag í æfingar en
segist oft velta því fyrir sér hvort
hann hafi tekið rétta stefnu. „Inni
á milli koma tímar þar sem maður
andskotast yfir þessu og óskar þess
að maður hafi haldið sig heima en
svo vegur maður og metur hlutina og
kemst að þeirri niðurstöðu að réttast
sé að vera áffam úti.
Ég er búinn að vera í Catawba í
rjú ár og lýk BS-gráðu á næsta ári.
sumar vinn ég sem flokksstjóri í
unglingavinnunni og æfi stíft.“ Helgi
segir reglubundnar æfingar vera lyk-
ilinn að árangri. „Maður getur setið
heima eins lengi ogmaðurvill, drukk-
ið orku- og heilsudrykki og úðað í sig
salati en án hreyfingar næst enginn
árangur. Því er mikilvægt að hver og
einn finni sér íþrótt sem hann hefur
gaman af ef fólk ætlar á annað borð
að finna fyrir breytingum. Skemmt-
anagildi hreyfingar má ekki vera
fyrir borð borið - margir sem kaupa
sér líkamsræktarkort hætta að mæta
vegna þess að þeim drepleiðist i lík-
amsræktarstöðvum."
Ráðleggingar
meistara
Sól hækkar á himni, mildir vindar
leika um landann og sumarylurinn
fær margan manninn til að fækka fót-
um. Það huga því margir að líkams-
rækt - línurnar skulu lagaðar fyrir
sólböð og svalandi sundferðir. Margir
vilja grennast en jafnalgengt er með-
al karlmanna að þeir vilji þyngjast og
bæta á sig vöðvamassa. Einkaþjálfar-
inn og íslandsmeistarinn í Form fit-
ness 2003, Sif Garðarsdóttir, gefur
lesendum góð ráð fyrir sumarið. Hún
segir mikilvægt að hreyfa sig a.m.k.
fimm klst. á viku og leggur áherslu á
rétt mataræði. Hún mælir með trefja-
ríkri og fjölbreyttri fæðu á tveggja
til þriggja tíma ffesti, sex sinnum á
dag.
Þeir sem vilja léttast
„Þeir sem vilja létta sig verða að
leggja höfuðáherslu á brennslu," seg-
ir Sif. Jjyfta skal af kappi og notast
við margar endurtekningar í stað
þess að lyfta sjaldan mikilli þyngd.
Brennslan skiptir miklu máli ef verið
er að reyna að skera niður fituforða,
auk þess sem meiri vöðvamassi
eykur brennsluna. Gott er að borða
kolvetnisríka fæðu á morgnana en
minnka kolvetnisinntökuna eftir því
sem líður á daginn. Kolvetni fæst
t.d. úr pasta, grænmeti, kartöflum
og hrísgijónum og ávextir eru einnig
kolvetnisríkir. Ég mæli ekki með því
að fólk notist við tilbúna megrunar-
kúra. Mikilvægara er að hver og einn
finni mataræði við sitt hæfi og búi
sér til nýjan lífsstíl."
Þeir sem vilja þyngjast
„Þeir sem vilja þyngjast verða að
lyfta þungu en þó þarf að gæta þess
að lyfta rétt. Þetta er mjög mikilvægt
því of algengt er að sjú karlmenn
lyfta of þungum lóðum með röng-
um hreyfingum. Rangar hreyfingar
skila mun minni árangri og leiða til
meiðsla sem geta reynst alvarleg.
Til að stækka vöðvana þarf að borða
nóg af próteinum því þau eru næring-
arefni vöðvanna. Kolvetnin þarf tU
þess að nýta próteinin. Ég mæli því
með hitaeiningaríkri fæðu.“
Ungur
WI 1 x • r«
Ijosgjafi
Húsgagna
Bæjarlind 14-16, Kópavogi
10.000 MÖGULEIKAR - fyrir fólk með
sjálfstæðan smekk
þú velur sófa
þú velur stól
þú velur áklæði
þú velur lit
þú hannar
Hornsófi
Áklæði frá kr 72.000
Leðurkr 134.000
Sófasett 3+1+1
Áklæði frá kr 86.000
Leður frá kr 204.000
Borðstofustólar
Áklæði frá kr 7.200
Leðurkr 12.500
Sessalong
Áklæði frá kr 37.000
Leður kr 81.000
Sófasett - sófar - hægindastólar - borðstofustólar - borðstofuborð - skápar
magnus@vbl.is
Eyjólfur Eyfells er nýkominn ffá Ha-
wai þar sem hann var í þijá mánuði
í sjálfboðastarfi á vegum Mahikari-
samtakanna. Mahikari er lífsstefna
sem miðar að andlegu og líkamlegu
heilbrigði. Samtökin voru stofnuð í
Japan árið 1959. Nú leggja um millj-
ón manns stund á Mahikari en sam-
tökin eru með höfuðstöðvar um allan
heim, m.a. í Kópavogi.
Orka allt í kring um okkur
Á Hawai vann Eyjólfur fyrir sam-
tökin við að miðla „ljósi“ til fólks.
„Það er orka allt í kringum okkur
sem við köllum ljós - eins konar al-
heimsorka," segir hann. „Ég var í
rauninni að sinna staríi á vegum sam-
takanna, sem byggist á því að hjálpa
fólki sem glímir við líkamleg eða and-
leg mein.“ Eyjólfur hefur lært að taka
við ljósinu og miðla því til annarra í
hjálparskyni. „Ljósið getur læknað en
það eru aukaáhrif, meginmarkmiðið
er andleg iðkun - andleg vellíðan og
sátt.“ Hann miðlar ljósinu með því að
setja lófana um 30 sm fyrir ofan blett-
inn sem ljósið á að fara á. „Fyrst fer
ég með stutta bæn en síðan einbeiti ég
mér að því að miðla orkunni og hugsa
mér geisla frá lófunum að viðtakand-
anum.“ Hann segir að flestum sem
fengu ljós á Hawai hafi liðið betur á
eftir og að fólk hafi verið þakklátt.
„Ég miðlaði ljósi til manns sem var
með mígreni. Eftir að hafa fengið ljós
á höfuðið var mígrenið horfið. Hann
var líka mjög slæmur í hnjánum og
haltraði en eftir að hafa fengið ljós á
hnén þá hætti hann að haltra. Annað
dæmi er af konu sem var með þrá-
láta magaverki. Eftir að hafa miðlað
ljósi á magasvæðið í kortér leið henni
miklu betur og að endingu hurfu verk-
imir alveg.
Ég stefni á að fara í Háskólann í
eitt ár til að læra japönsku og fara
síðan til Japans í Dos-
hi-þjálfun, sem er
starfsþjálfun á vegum
samtakanna," segir Eyj-
ólfur sem hóf þrettán
ára að aldri að leggja
stund á Mahikari. „Eg
fór á þriggja daga nám-
skeið sem maður þarf
að fara á til að geta feng-
ið menið sem notað er
til að tengjast ljósinu.
Ég gerði það árið 1996.
Fyrir tveimur árum hóf
ég svo að stunda djúpa
iðkun.“
Reglubundnar æfingar
lykillinn að árangri