blaðið - 13.05.2005, Side 4

blaðið - 13.05.2005, Side 4
4 innlent Hverá að ráða? Fundaröð um eflingu íbúalýðræðis Næstu tvær vikurnar stendur Reykjavíkurborg fyrir fundaröð um eflingu ibúalýðræðis. Á fund- unum velta ýmsir einstaklingar upp spurningum um aukið lýð- ræði í landinu, ekki síst svokallað íbúalýðræði. Aukið íbúalýðræði snertir fyrst og fremst daglegt Kf borgaranna, s.s. í skólamálum og skipulagsmálum, og eru ýmis álitaefni uppi í þeim efnum. Tilefni þessarar fundaraðar er að starfshópur á vegum Reykja- víkurborgar hefur undanfarna mánuði tekist á við það verkefni hvemig megi efla íbúalýðræðið. Ýmsir „sérfræðingar" hafa komið að starfi hópsins en með funda- röðinni er kaflað eftir fleiri sjón- armiðmn. Aflir fundimir verða haldnir á 2. hæð í Iðnó og hefjast kl. 8.30 en lýkur kl. 10. Aðgangseyrir er 1.200 kr., og er morgunverður innifalinn í verðinu. Fundimir verða sem hér segir: Fimmtudaginn 19. maí - íbúalýðræði í skólamálum. Föstudaginn 20. maí - hverfalýðræði. Þriðjudaginn 24. maí - íbúalýðræði í skipulagsmálum. Mikill munur á verðlagi mjólkurvöru föstudagur, 13. maí 2005 ! blaðið Vara Hæsta verð Ljóma smjörlíki 500g Gouda-ostur 26% 1 kg magnus@vbl.is 11/11 Skúlagötu 11/11 Skúlagötu 10-11 Laugal.&11/11 Skúlag. -í: 11/11 Skúlagötu 11/11 Skúlagötu Lægsta verð Bónus Smáratorgi Bónus Smáratorgi Bónus Smáratorgi Bónus Smáratorgi Fjarðarkaup, Bónus Smárat. Munur á hæsta og lægsta verði 256% 76,4% 129,5% 125,3% 10,8% Mjög mikill munur var á hæsta og lægsta verði nær allra vörategunda sem athugaðar voru í verðlagskönn- un sem verðlagseftirlit ASÍ gerði 11. maí sl. Kannað var verð á mjólkurvör- um og ostum. Af þeim 44 vörum sem kannaðar vom reyndist yfir 100% munur milli verslana í 15 tilvikum og 50% munur í 39 tilvikum. Bónus var oftast, eða í 36 tilvikum, með lægsta verðið en könnunin náði til 12 mat- vöruverslana á höfuðborgarsvæðinu. Verslun 10-11 mældist oftast, eða í 26 tilvikum, með hæsta verðið. Sam- kvæmt upplýsingum frá ASÍ hefur sjaldan verið jafnmikill verðmunur milli einstakra verslana. ísland og Kína semja Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Bo Xilai utanríkisviðskiptaráðherra Kína hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að gerð verður sameiginleg hagkvæmnikönnun til undirbúnings fríverslunarsamnings milli landanna. ísland er fyrsta ríkið í Evrópu sem Kína gerir slíkt samkomulag við. í hagkvæmnikönnun felst að safnað verður saman upplýsingum um viðskiptahagsmuni, lagaumhverfi, gárfestingar- og þjónustumöguleika sem skipta máli fyrir væntanlegar fríverslunarsamningaviðræður landanna. Hagkvæmnikönnunin er sá grunnur sem byggt verður á þegar fríverslunarsamningaviðræðu r heflast. Ólukkudagur Hjátrú tengd fóstudeginum 13. nefn- ist einnig paraskavedekatriaphobia í sumum bókum. Upphaf hennar er stundum rakið til þess að 13 manns vom viðstaddir síðustu kvöldmál- tíð Jesú, sem var svo krossfestur á fóstudegi. Furðulegt nokk, þá em til sannanir fyrir því að fóstudagurinn 13. sé í raun og vem óhappadagur fyrir suma. Sálfræðingar í Banda- ríkjunum segja sumt fólk vera hk- legra til þess að lenda í slysum og óhöppum þennan dag heldur en aðra daga ársins. Þetta er talið tengjast auknum áhyggjum og kvíða fólks. Sérfræðingar vestanhafs telja að þar tapist á bilinu 800-900 Bandaríkja- dalir fóstudaginn 13. þar sem fólk vill ekki ferðast eða fara til vinnu sökum hræðslu. Auto Parts Vélaviðgerðir ✓ Pakkningarsett ✓ Ventlar ✓ Vatnsdælur ✓ Tímareimar ✓ Viftureimar ✓ Knastásar ✓ Olíudælur ✓ Legur ✓ Stimplar l/orahlutir sem þú getur treyst 6 ! VÉLAVERKSTÆÐIÐ TANGARHÖFÐA 13 Sími 577 1313 • www.kistufell.com Garðurinn allt árið Fyrsta bókin í nýrri ritröð írá Sumarhúsinu 02 áarðinum Garðurinn allt árið er ætluð öllu áhugafólki um garörækt. í bókinni er að finna samantekt á öllu því helsta sem garð- eigendur þurfa að vita um gróðurinn í garðinum og umönnun hans. /7, r» ■ . u M £t-- ci V Garðurinn allt árið Aðeins kr. 2.450 Áskriftarverð kr. 1.990 é Fæst í ölium heistu hókaversiunum Vertu með frá upphafi. Áskriftarsími 586 8005 Sumarhúsið og garðurinn • Síðumúla 15 • rit@rit.is Utflutningur Food and Fun hátíðarinnar í byrj un júní munu íslenskir eðalkokk- ar elda á tólf helstu veitingastöðum Washington-borgar í Bandaríkjunum og kynna íslenska matvöm. Kokkam- ir koma frá þeim íslensku veitinga- stöðum sem taka þátt í árlegri Food and Fun keppni sem haldin er síðvetr- ar á íslandi og hefur vakið athygli mataráhuga- og atvinnufólks víða um heim. 5. júní nk. efna Samtök veitingahúsaeigenda í Washington til árlegs árshátíðarkvöldverðar með íslensku matarþema, kenndu við Co- ol Ice Blue í tilefni af komu íslensku kokkanna. í fordrykk verður Bláa- lónskokkteill og ostar verða kynntir í móttökunni. Forrétturinn verður íslenskur þorskur, í aðalrétt verður lambaþrenna og í eftirrétt verður boð- ið upp á blábeijaskyr í takt við bláa þemað. Boðið verður upp á íslenskt vatn í þessari veislu áhrifafólks í matar- og veitingageira Washington. Heiðursgestur kvöldsins er borgar- stjóri Washington, Andrew Wifliams.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.