blaðið - 13.05.2005, Síða 23

blaðið - 13.05.2005, Síða 23
blaðið I föstudagur, 13. maí 2005 Sigurður semur til tveggja ára Keflvíkingar hafa samið við Sigurð Ingi- mundarson þjálfara til næstu tveggja ára. Petta kemurfáum á óvart því Sig- urður hefur náð frábærum árangri með lið Keflavíkur en liðið hefur unnið ís- landsmeistaratitilinn síðastliðin þrjú ár. Ekki er búist við miklum mannabreyt- ingum hjá Keflavík fyrir næstu leiktíð en það setur þó strik í reikninginn að nú er aðeins einn leikmaður utan evr- ópska svæðisins leyfður með hverju liði í stað tveggja áður. Chelsea að fá Del Horno Chelsea er svo gott sem búið að kaupa vinstri barkvörðinn Asier Del Horno frá Atletico Bilbao. Þetta kemur fram í The Independent í gær. í fréttinni kemur fram að kaupverðið sé um 1.476 milljónir íslenskra króna. Del Horno er 24 ára og skrifar undir fjögurra ára samning við Chelsea sem gefur honum 7,4 milljónir íslenskra króna í vikulaun. Alls kyns kempur taka þátt í Stjörnugolfi vbv@vbl.is í annað sinn fer fram svonefnt Stjörnugolf í sumar, nánar tiltekið 14.júní. 8.júlí í fyrra var Stjörnu- golf fyrst haldið en um er að ræða styrktargolf. í fyrra var Barnaspítali Hringsins styrktur. Eins og nafnið gefur til kynna er mótið ólíkt öðrum golfmótum hvað það varðar að þar spila þekktar persónur úr þjóðfé- laginu áheitagolf. Þátttakendur að þessu sinni verða meðal annarra: Eyj- ólfur Sverrisson, Arnór Guðjohnsen, Hermann Gunnarsson, Logi Berg- mann Eiðsson, Simmi og Jói úr Idol- inu, Laddi, Sigurður Siguijónsson, Randver Þorláksson, Gunnar Hans- son, Rúnar Freyr Gíslason, Sigurður Valur Sveinsson, Stefán Hilmarsson, Eyjólfur Kristjánsson og Helga Möll- er. Þá er fastlega búist við að Sveppi og Eiður Smári Guðjohnsen taki þátt, sem og bræðurnir Jón Arnór og Olaf- ur Stefánssynir. í ár verður MND-fé- lagið styrkt með þessu áheitagolfi en MND er taugahrörnunarsjúkdómur og þrír til fimm íslendingar greinast með hann ár hvert. Líftími hvers sjúk- lings er frá einu ári til fimm ára. _ Barcelona á eftir Henry Forseti Barcelona, Joan Laporta, er jákvæður með að fá Therry Henry frá Arsenal til Barcelona. Spænska blaðið Marca segir frá því í gær að Henry og Laporta hafi þegar hist en draumur Laportas er að Samuel Eto'o, Ronald- inho og Henry, myndi þriggja manna ódrepandi sóknarlínu á næstu leiktið. Ef af kaupunum verður er talið líklegt að Barca verði að punga út sem svar- ar um 4,3 milljörðum íslenskra króna. at Arsenal í sjöunda himni Arsenal tók Everton í smákennslu í fótboltafræðum í leik iiðanna í ensku úrvalsdeildinni. Þegar dómarinn flautaði leikinn af stóðu leikar, Arsenal 7-Everton 0. Já, takk fyrir, 7-0. Dennis Bergkamp fór á kostum í liði Arsenal og var í því að mata samherja sína. Bergkamp lagði upp þrjú mörk og skoraði sjálfur eitt. Robert Pires skor- aði tvö mörk en Patrick Vieira, Robin Van Persie, Edu og Flamini skoruðu eitt mark hver. Bergkamp, sem er 36 ára, vonast eftir að fá framlengingu á samningi sínum við Arsenal og við- ræður standa nú yfir. I. Þýski gæðingurinn Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 13:00-17:00 Skráning í síma 525 8005 Ingvar Helgason

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.