blaðið - 13.05.2005, Page 24
föstudagur, 13. maí 2005 I blaðið
mennin
TW/l
XEROX heildsöluumboð á íslandi
Computer lceland ehf.
Faxafeni 12
108 Reykjavik
Sfmi: 533-5550
Fax: 533-5505
sala@computericeland.com
4
Computer lceland
„Ég hef ekki tölu á sýningunum. Ég veit bara að þetta er aldrei leiðinlegt, enda erum við Helga Braga góðir vinir og höfum þekkst
í 20 ár,“ segir Steinn Ármann Magnússon, en hann er annar aðalleikari Vodkakúrsins eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. I kvöld,
föstudagskvöld, verður aukasýning í Austurbæ á þessu vinsæla gamanleikriti.
AldrGÍIeiðinlegt
„Ég hef ekki tölu á sýningunum. Ég
veit bara að þetta er aldrei leiðinlegt,
enda erum við Helga Braga góðir
vinir og höfum þekkst í 20 ár,“ segir
Steinn Ármann Magnússon, annar
aðalleikari Vodkakúrsins eftir Krist-
laugu Maríu Sigurðardóttur. í kvöld,
fóstudagskvöld, verður aukasýning
í Austurbæ á þessu vinsæla gaman-
leikriti en þar gagnrýnir höfundur
megrunariðnaðinn, skyndilausnir
og útlitsdýrkun samtímans. Helga
Braga Jónsdóttir og Steinn Ármann
fara með öll hlutverkin í sýningunni.
„Þetta er ákveðin leiktækni. Það tók
mig smátíma að tileinka mér hana
og ná til sumra karakteranna sem
voru ekki eins ýktir. Ég var lengur að
detta inn í þá en þetta er nokkuð sem
maður þjálfar sig í,“ segir Steinn Ár-
mann sem leikur átta hlutverk. „Við
sýndum leikritið fyrst í Keflavík og
í þeim sýningum vorum við að þróa
verkið og ná tökum á því.“
Á leikferð um landið
Vodkakúrinn hefur verið á leikferð
um landið en búið er að sýna leikrit-
ið meðal annars á Akureyri, í Kefla-
vík, á Sauðárkróki, Bolungarvík,
Eskifirði, í Vestmanneyjum, Borgar-
firði og á Akranesi. í kvöld er sýnt í
Reykjavík en næstu sýningar eru á
Selfossi 20. maí og Höfn 27. og 28.
maí. Steinn Ármann kann vel við að
leika úti á landi. „Austurbæjarbíó er
stórt hús og þar erum við ekki í eins
nánu sambandi við áhorfendur eins
og í minni húsunum. Við getum líka
leikið á aðeins lægri nótum þar en í
Austurbæjarbíói.“
Aðspurður hvort hann eigi von á
að sýningar verði teknar upp aftur
segir hann: „Hver veit. Þetta er bara
tveggja manna sýning og leikmyndin
er ekkert sérstaklega stór. Það mætti
kannski dusta rykið af henni í haust
og sjá hvort enn sé áhugi."
íEnn og ajtur, ótrúfegt tífóocf á ‘Mangóýessa fiefgí
16"pizzurmeð áleggstegundum + hvítlauksbrauð
Pepsi og hvítlauksolía fylgir með
Hvítasurmutilboð
tvær 16"pizzur meó þremur áleggstegundum
2L pepsi á aöeins..
fa^af
Sími 5771800 grill / 5771414 pizza Brekkuhúsum 1. Grafarvogi
Hörður Áskelsson er stjórnandi á vortónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju.
Mótettukórinn í Hallgrímskirkju
Árlegir vortónleikar Mótettukórs
Hallgrímskirkju verða haldnir í
Hallgrímskirkju mánudaginn 16. maí
klukkan 17. Auk Mótettukórsins mun
Guðmundur Sigurðsson orgelleikari
koma fram og einnig söngtríó skipað
söngvurum úr Mótettukómum. Inga
Rós Ingólfsdóttir leikur á selló en
stjómandi á tónleikunum er Hörður
Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju.
Efnisskrá tónleikanna er
fjölbreytt en aðaláherslan er lögð á
tónlist eftir þýska barokkmeistara
og enska tónlist frá síðustu öld.
Fluttar verða þijár mótettur úr
safhinu Geistliche Chor-Music frá
1648 eftir Heinrich Schutz. Einnig
hljómar fallegt hvítasunnuverk
eftir Johann Hermann Schein.
Guðmundur Sigurðsson leikur
svo hvítasunnusálmaforleik eftir
organistann og tónskáldið Georg
Böhm.
Enskur hluti efhisskrárinnar hefst
á A Hymn to the Mother of God,
stuttu en afar áhrifaríku verki eftir
John Tavener, einn af vinsælustu
tónsmiðum samtímans. Síðan hljóma
þxjár fallegar mótettur frá þarsíðustu
aldamótum eftir Charles Villiers
Stanford, tilkomumikið orgelverk
eftir David Johnson og glæsilegt
Jubilate Deo fyrir kór og orgel eftir
Benjamin Britten. Auk þessara verka
mun Mótettukórinn syngja Missa
brevis (stutta messu) eftir Þorkel
Sigurbjömsson.
Verð aðgöngumiða á vortónleika
Mótettukórsins er 2.000 krónur.
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju.