blaðið - 01.06.2005, Side 6
miðvikudagur, 1. júní 2005 I blaðið
Dagblaðaútgáfa á íslandi:
Minnkaði um fjórðung
á fimm árum
Dagblaðaútgáfa dróst saman um
4,7% á íslandi árið 2004 en undan-
farin fimm ár hefur hún minnkað
um fjórðung hér á landi, þrátt fyrir
tilkomu öflugs miðils eins og Frétta-
blaðsins á tímabilinu. Þetta kemur
fram í ársskýrslu alþjóðlegra dag-
blaðasamtaka, sem birt var í gær. Út-
gáfa Blaðsins er ekki inni í þessum
tölum, en að ári er þess að vænta að
útgáfa þess rétti hlut íslendinga hvað
þetta áhrærir.
ísland er einnig í hópi þeirra landa
þar sem dagblaðaauglýsingar jukust
árið 2004 og er það í samræmi við þró-
unina undanfarin ár. Almennt hef-
ur sala auglýsinga í dagblöð aukist
nokkuð á liðnu ári en þrátt íyrir vöxt
dagblaðaútgáfu í heiminum öllum er
hún enn að dragast saman í Evrópu.
Samdrátturinn í álfunni nam þó ekki
nema 0,7% á árinu, sem er nánast sjö
sinnum minna en gerðist hér á landi
samkvæmt skýrslunni.
Fríblöðin ryðja sér til rúms
Ein helsta breytingin á dagblaða-
markaði undanfarinna ára er til-
koma fríblaða á borð við Blaðið og
Fréttablaðið. Á Spáni er hún mest,
með 40% markaðarins, en í Dan-
mörku um 27%. Að óbreyttu
munu íslendingar skjóta öðr-
um þjóðum ref fyrir rass í
þessum efnum með um 70%
dagblaðamarkaðarins í frí-
dreifingu.
Alþjóðleg samtök dag-
blaða, World Association of
Newspapers, kynntu í gær ár-
lega skýrslu sína um ástand
og horfur í blaðaheiminum.
Þar kom fram að dagblaða-
sala á heimsvísu hefur aukist
um 2,1% á árinu og um leið
hefði auglýsingasala aukist
talsvert. Athygli vekur að
þessi vöxtur er ekki einung-
is í þróunarlöndunum líkt
og verið hefur undanfarin ár
heldur er líka hlaupin gróska
í marga hefðbundna dagblaða-
markaði.
Talið er að þetta sé til
marks um að dagblöð hafi
náð að fóta sig á harðnandi
markaði en vefútgáfur, ljósvakamiðl-
ar og aðrir nýmiðlar hafa gert nokkra
hríð að dagblöðum undanfarin ár.
Að meðaltali seljast 395 milljónir
eintaka af dagblöðum í heiminum en
undanfarið ár hefur útgáfum fjölgað
um 2% og eins hefur auglýsingasala
ekki verið meiri í fjögur ár. Könnunin
tekur til 215 landa og landsvæða og
er talið að dagblaðalesendur í heimin-
um séu um einn milljarður.
Stafrænt sjónvarp:
Tilboð opnuð í gær
Tilboð í UHF-rásir fyrir stafrænt
sjónvarp á landsvísu voru opnuð
hjá Póst- og garskiptastofnun í gær.
Ríkisútvarpið og 365 ljósvakamiðlar
ehf. voru þeir aðilar sem sóttu um.
Ríkisútvarpið bauð í þrjár rásir til
að dreifa sjö sjónvarpsdagskrám,
þar af er ætlunin að nýta eina rásina
fyrir svokallað háskerpusjónvarp.
365 ljósvakamiðlar ehf. bauð í tvær
sjónvarpsrásir til að dreifa 7-15 sjón-
varpsdagskrám.
Nær til landsins alls
Stafrænt sjónvarp um UHF virkar
á þann hátt að hægt er að senda út
nokkrar dagskrár á einni og sömu
rásinni. Með því að bjóða út UHF-
rásir er stefnt að því að sem flestir
landsmenn eigi innan
tveggja ára kost á að
taka á móti stafræn-
um sjónvarpssending-
um. Báðir tilboðsaðilar
stefna að því að 98%
landsmanna nái staf-
rænum útsendingum
þeirra árið 2007. 365
ljósvakamiðlar ehf.
fyrir byrj un maí og Rík-
isútvarpið fyrir byrjun
október þess árs en í
útboði voru gerðar þær
kröfur að dreifmet bjóðenda næðu að
lágmarki til 40 sveitarfélaga innan
árs frá úthlutun réttinda og til 98%
heimila í landinu innan tveggja ára.
Ekki verður krafist gjalds fyrir rétt-
indi til að nota UHF-rásirnar heldur
munu aðrir þættir ráða vali á milli
bjóðenda, s.s. útbreiðsla sendinga og
þjónusta við notendur. ■
Myndatökur í dómhúsum verði bannaðar:
Rugl segir Róbert
í blaði Lögmannafélagsins, sem þessu," sagði hann í samtali
kemur út á næstu dögum, segir Helgi
Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms
Reykjavíkur, að ábendingum um
nauðsyn þess að setja eigi bann við
myndatökum af sakbomingum og
fleirum í og við dómhús hér á landi
hafi verið komið á framfæri. Dóms-
málaráðuneytið og Réttarfarsnefnd
skoða nú málið sem hluta af heild-
arendurskoðun laga um meðferð
opinberra mála. Ritstjóri Lögmanna-
blaðsins, Guðrún Birgisdóttir, telur
slíka lagasetningu nauðsynlega í
hosi breyttra vinnubragða fjölmiðla.
I hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í
gær sagði hún að tvímælalaust hafi
aðgangsharkan aukist. „Það virðist
ekki skipta neinu máli um hvers kon-
ar mál er að ræða,“ sagði Guðrún.
Ekki meiri aðgangsharka
Róberti Marshall, formanni Blaða-
mannafélags íslands, líst ekki vel
á þetta. „Það er alveg klárt mál, og
stjómarskráin gerir ráð fyrir því, að
dómþing skuli vera háð í heyranda
hljóði nema dómari ákveði annað
og ég sé enga ástæðu til að breyta
við Blaðið. Róbert segist ekki
sammála því að fréttamenn
sýni meiri aðgangshörku í þess-
um efnum en áður. „Áratugum
saman höfum við tekið myndir
af sakborningum þegar þeir
em leiddir fyrir dómara og ekk-
ert hefur breyst í þeim efnum.
Stundum skýla menn andliti
sínu og stundum ekki. Allir
miðlar hafa sett sér ákveðnar
reglur um hvenær greint er frá
nöfnum og myndir sýndar og ég
sé enga ástæðu til að takmarka
þann sjálfsagða rétt ritstjórna
að ákveða það sjálfar. Ef menn
ákveða að takmarka þetta þá
er verið að takmarka tjáningar-
frelsið í landinu og þar með að
höggva að rótum lýðræðisins."
Nauðsynleg miðlun upp-
lýsinga.
Róbert segir ekki hægt að
una því að almenningi sé ekki
gerð grein fyrir dómsmálum, með-
ferð þeirra og niðurstöðu. Fjölmiðlar
gegni mjög mikilvægu hlutverki þeg-
ar kemur að því að segja frá málun-
um og í nútímasamfélagi gangi frétta-
flutningur að miklu leyti út á það að
fréttum fylgi myndefni.
Heimsókn Indlandsforseta:
Loftferðasamningur
í gær var undirrituð bókun um að
samkómulag hafi náðst milli íslands
og Indlands um efni loftferðasamn-
ings að viðstöddum dr. A.P. J. Abduls
Kalam, forseta Indlands, og Halldóri
Ásgrímssyni forsætisráðherra.
Samningurinn felur m.a. í sér
heimild fyrir tilnefnd flugfélög til að
fljúga allt að 14 ferðir í viku á milli
landanna. Þá er staðfest í bókuninni
heimild til að stunda fragtflug eft-
ir þörfum, svo og víðtæk heimild til
að fljúga svokallaðar pakkaferðir.
Segir forsætisráðuneytið að þetta sé
einn hagkvæmasti loftferðasamning-
ur sem gerður hafi verið af íslands
hálfu. ■
WM
“ FO57Z2420
Franski sirkusinn Cirque sýnir um helgina söguna um Gústa trúð á fjórum sýning-
um. Sýningin fer fram í skrautlegu sirkustjaldi á hafnarbakkanum í Reykjavík og er í
samstarfi við Hátíð hafsins. I tengslum við komu Cirque til landsins verður sirkusskóli
fyrir 9-14 ára börn starfræktur í dag og föstudag. Skráning í hann og nánari upplýs-
ingar má fá hjá miðasölu Listahátíðar.
Mesti verðmunur
1450 prósent
Krónunnar var ósamræmi í 17
tilvikum.
Við samanburð á milli verslana
ber að athuga að hér er um mjög
margar mismunandi verslanir að
ræða, allt frá litlum verslunum sem
þjóna neytendum í dreifbýli til stórra
keðjuverslana. í könnuninni er
einungis um beinan verðsamanburð
að ræða, en ekki er lagt mat á gæði
Gríðarlegur
munur er á hæsta
og lægsta verði á
kílói af gulrótum,
eða rúmlega
1450%. samkvæmt
nýrri verðkönnun
ASÍ. í könnuninni
var kannað verð í
63 verslunum um
land allt. Meira en
100% munur var
á hæsta og lægsta
verði alls varnings
í könnuninni og yfir
200% munur var á
13 vörutegundum
af þeim 20 sem
kannaðar voru.
Sama keðja með mismunandi
verð
Ósamræmi í verði milli verslana
innan sömu keðju á mismunandi
stöðum á landinu var mest í
verslunum Samkaup-Úrval en þar
var ósamræmi í verði milli verslana
í 18 tilvikum af 20. í verslunum