blaðið

Ulloq

blaðið - 01.06.2005, Qupperneq 10

blaðið - 01.06.2005, Qupperneq 10
miðvikudagur, 1. júní 2005 I blaðið ÍUngfrú Alhéirhur ársins 2005 vai* valin í Bangkók í gær. Sigurvegarinn var Natalie Glébova frá Kanada. Húri sést hér ásamtriíu ára gömkim fil, Num Choke, nafnið merkir.„sá sem færir heppni”. Khodorkovsky fékk níu ár Mikhail Khodorkovsky, stofnandi Yukos-olíufélags- ins, var í gær dæmdur í níu ára fangelsi fyrir skattsvik. Pélagi hans, Platon Lebedev, fékk sama dóm. Verjendur segjast munu áfrýja dómun- um. Réttarhöldin tóku 11 mánuði. Khodorkovsky var á sínum tíma áttundi ríkasti maður í heimi. Stuðnings- menn hans segja að hann sé ofsóttur vegna stuðnings við andstæðinga Pútíns forseta en í Kremlín segja menn rétt- arhöldin vera þátt í herferð gegn skipulagðri glæpastarf- semi. Mikhail Khodorkovsky. Fékk níu ára dóm sem verður áfrýjað. Styrkir til samfélagsmála Við viljum leggja okkar af mörkum til samfélagsins og höfum í því skyni stofnað sérstakan sjóð, sem hlotið hefur nafnið Samfélagssjóður Alcan. Sjóðnum er ætlað að styrkja metnaðarfull verkefni á ýmsum sviðum sem endurspegla gildi Alcan og falla undir eftirfarandi málaflokka: Heilsa og hreyfing, öryggismál, umhverfismál, menntamál og menningarmál. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og nú auglýsum við eftir umsóknum. Nánari upplýsingar um reglur sjóðsins, ásamt umsóknar- eyðublöðum, er að finna á www.alcan.is. Hugo Chavez. Bandaríkjastjórn óttast að hann sé að verða nýr Fidel Kastró. Kólnandi samskipti Bandaríkjanna og Venesúela Bandarísk stjórnvöld líta með sífellt meiri tortryggni til for- seta Venesúela, Hugos Chavez. Margar yfirlýsingar forsetans þykja beinlínis móðgandi fyrir Bandaríkin. Chavez kallar Bush forseta aula sem hafi mafíósa í ríkisstjórn sinni. í síðustu viku hótaði Chavez síðan að gera kjarnorkuvopnabandalag við íran. Sú yfirlýsing hefur valdið titringi í Washington og orðið til þess að samband landanna hefur versnað til muna. Banda- ríkjastjórn óttast að Chavez sé á góðri leið með að verða nýr Fidel Kastró, leiðtogi vinstri sinnaðra hópa sem beina muni spjótum sínum gegn Bandaríkjunum. Sögusagnir eru á kreiki um að Chavez hafi afhent hryðjuverka- mönnum venesúelsk vegabréf. Ráðamenn í Washington hafa reynt að einangra Chavez en eft- ir heimsókn Donalds Rumsfeld varnarmálaráðherra til Suður- Ameríku kom forseti Brasilíu forseta Venesúela til varnar og sagði: „Við viðurkennum ekki ærumeiðingar og ásakanir á hendur vinum.“ Nurpashi Kulayev, eini hryðju- verkamaðurinn sem lifði af átökin í kjölfar gíslatökunnar í Beslan í september síðastliönum, sést hér á bak við rimla í réttarhöldum sem nú standa yfir í rússnesku borginni Vladikavkaz. Ásamt félögum sínum réðst Kulayev inn í skóla í Beslan með þeim afleiðingum að rúmlega 300 gíslar létu lífið. Stal mat frá hundinum Foreldrar tíu ára þybbins ítalsks drengs voru furðu lostn- ir þegar hann hélt áfram að hlaða á sig kílóum þrátt fyrir að vera í ströngum matarkúr. Þegar heimilishundurinn gerði sér lítið fyrir og beit drenginn í afturendann játaði sonurinn að hafa hámað í sig hundamatinn. í viðtali við bæjarblaðið í Frosin- one sagði faðirinn að þau hjónin hefðu velt því fyrir sér í nokkurn tíma af hverju hundurinn væri orðinn svo grannur.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.