blaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 13

blaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 13
blaðið I miðvikudagur, 1. júní 2005 TILBOÐSDAGAR Kalacknikov endurgerður Hinn heimsfrægi hönnuður, Philip Starck, hefur endurhannað Kal- acknikov-riffilinn og segir hann í viðtali við designboom.com að herra Kalachnikov, sá sem hannaði upprunalegariff- ilinn, hafi aldrei fengið nein verðlaun eða viður- kenningu fyrir hönnun sína og því hafí hann ákveðið að deila ágóð- anum að hönnun Kal- achnikov-lampans með þessum gleymda snill- ingi. Starck segir einnig að hann fylgist ekki með fréttmn af heimsmál- unum og að hann lesi einungis vísindatímarit. Mesti ótti hans er hnm siðvæðingarinnar sem hann hefur lagt svo mikið til. Á fyrri hluta SÍðustu Tölvumús sem Starck aldar hannaði fyrir Micro- Starckerfædd- s°h árið 2004. ur árið 1949 og strax í æsku var hann örvaður af sköpunum fóður síns sem var flug- vélahönnuður. Undir vinnuborðum fóður síns sat drengurinn Philippe og teiknaði, sagaði, límdi, pússaði, setti saman og tók í sundur hina ýmsu hluti. Starck Kalachnikov-lampinn. setti á stofn sitt fyrsta fyrirtæki árið 1968 oghóf þá framleiðslu á uppblásn- um hlutum. Á áttunda áratugnum hannaði hann fræga skemmtistaði í París og í kjölfarið bað Mitterand Frakklandsforseti hann um að endur- hanna eitt af herbergjum Elysée-hall- arinnar í París. Hannar hvað sem er Síðan heíur Starck náð ótrúlegum frama en hann er einn helsti og þekkt- asti hönnuður heims og á að baki verk á eins ólíkum sviðum og innrétt- ingum hótela, umbúðum matvara og íbúðarhúsnæðis. Dyrahúnar, lampar, mótorhjól, vasar, klukkur, skór, kló- sett, tannburstar... listinn er enda- laus og varðar allt sem viðkemur lífi nútímamannsins. W.W. stóllinn sem Starck hannaði árið 1990. Hann ætlaði stólinn upphaflega fyrir kvikmyndaleikstjórann Wim Wen- ders. Taklufyrir . sioast Því miður urðu mistök við grein um hönnunarhópinn Takk fyrir síðast sem birtist 19. maí. Hér birtist hún leiðrétt: Hönnunarhópurinn Takk fyrir síð- ast kom nýverið frá Mflanó-borg þar sem hann tók þátt í hönnun- arsýningunni Designers Block. „Við vorum þama að sýna innan vébanda „De- signers Block“ sem er á veg- um Breta. Við sóttum um hjá þeim og vomm meðal 40 hópa sem voru valdir og fengu að sýna,“ segir Guðrún Edda Einarsdóttir, ein úr hópnum. Takk fyrir síðast sam- anstendur af hönnuðum sem útskrif- uðust frá Listaháskólanum 2004 úr þrívíðri hönnun og grafískri hönnun. Hópurinn hefur áður farið á sýning- una í Mflanó og var árið 2003 með sýninguna „Hönnuður í einn dag.“ í ár hét sýningin „Sigurvegari dags- ins.“ „Hugmyndin snýst um að fagna hversdagslegum hlutum eins og að ryksuga eða hreinsa bflinn. Við erum með þessu að reyna að fá fólk til þess að líta bjartari augum á hin daglegu störf. Það em mörg atriði í lífinu sem ervertaðhalda upp á.“ Einnig má geta þess að glös sem hóp- urinn hannaði eru komin í sölu í hönn- unarbúðinni MINT í Lond- on. Einnig er leitast eftir fleiri stöðum til að selja glösin. Þeir sem stóðu að verkefninu em Guðrún Edda Einarsdóttir, Lóa Auð- unsdóttir, Ragnheiður Tryggvadótt- ir, Brynhildur Pálsdóttir, Sighvatur Ómar Kristinsson, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Phoehe Jenkins. ■ AFSIATTUR STEARNS & FOSTER Frá Yves Delorme, einu virtasta tískuhúsi Frakklands: Rúmteppi, rúmfatnaður (lök, pífur, sængurverasett), baðhandklæði, baðmottur, baðsloppar (dömu/herra), borðdúkar, ilmsápur,-krem,-kerti o.m.fl. Rúmin frá Stears & Foster eru hönnuð fyrir fólk sem vill aðeins það besta. Þau veita réttan stuðning og tryggja vellíðan á hverri nóttu með sérhönnuðu gormakerfi, bólsturslögum og einstökum frágangi. rumco Langholtsvegi 111 • 104 Reykjavík • Slmi 568 7900

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.