blaðið - 01.06.2005, Side 16

blaðið - 01.06.2005, Side 16
16 sumarbús miðvikudagur, 1. júní 2005 i blaðið ............., ... ... ., ............................ Hvaða Þóra Kristín Steinarsdóttir „Ég fer nú voða lítið í sumarbústaði en mér hefur þótt fínt að fara í Hval- fjörðinn.“ Hitasveppirnir eru mjög vinsælir í ár en þeir gefa frá sér hita, sem er einstaklega sniðugt fyrir íslenska veðráttu. Þá eru hitasveppirnir sniðugir undir markísuna þegar kalt er í lofti en markísan einangr- ar hitann. Hentar vel þegar verið er að borða úti en eins eru til litlir hitasveppir sem hægt er að setja upp á borð. Margrét Kristjánsdóttir „Öndverðarnes er tvímælalaust í uppáhaldi hjá mér en fjölskyldan á bústaó þar. Ég er mikið þar og á ör- ugglega eftir að fara oft í sumar.“ Silkiblóm vilj a allmargir sumar- bústaðareigendur eignast en þetta eru gerviblóm sem haldast mjög vel. Flott er aö setja silkiblóm á sumarbústaðapallinn en auk þess er hægt að fá lítil blóm sem ganga vel inni í bústaðnum. í sumarbústöðum Sumarbústaðir en nokkru sinni fyrr Miki! bylting í útliti sumarbústaða Spurn eftir sumarbústöðum hefur aukist mikið síðustu árin og æ fleiri leita sér að góðum bústað til að nota í fríum. Það sem kannski hefur breyst hvað mest er að fólk er upp til hópa hætt að nota gamla dótið sitt í sum- arbústaðina, það kaupir allt nýtt og gerir bústaðinn að sínu öðru heimili með öllu tilheyrandi. Yfirleitt geng- ur fólk út frá því að bústaðurinn sé heilsárs - að hægt sé að fara allan ársins hring, og að glæsileikinn sé í fyrirrúmi. „Gamlir sófar fá að víkja fyrir leðursófum og flestir gera sum- arbústaðinn óaðfínnanlegan, með öllu nýju og flottu. Mikið er orðið um uppþvottavélar og fleiri hluti sem létta undir með fólki - það vilja flest- ir hafa sem minnst fyrir lífinu þegar þeir eru komnir upp í sveit. Gömlu dagarnir, þegar fólk var að vaska upp í bala, heyra sögunni til,“ segir Agnar Kárason, starfsmaður vörustjórnar Byko, en hann er vel að sér í sumar- bústaðamenningu landans. „Verðlag hefur þar að auki hækkað til muna, verð á sumarbústöðum við vatn hefur t.d. fjórfaldast á einu ári. Svo er, eins og áður kom fram, mun meiri lúxus í þessu; það er mjög mikið um að fólk fái sér veglega rafmagnshitaða útipotta, dýrari grill, ný hjól til þess að eiga í sumarbústaðnum, sérstaka trjákofa í garðinn fyrir t.d. sláttuvél- ina og þar fram eftir götunum. Við seljum mun meira af dýrari og veg- legri hlutum í ár en t.d. í fyrra. Það er greinilegt að fólk vill hafa fallegt í kringum sig í sumarbústöðunum, sem og heima. Það er því oft og tíð- um um gífurlegar upphæðir að ræða en það eru margir sem setja það ein- faldlega ekki fyrir sig. Það er kannski bara eðlilegt miðað við að fólk er farið að eyða meiri tíma í bústöðum en var hér áður fyrr.“ Geir Brynjólfsson „Ég er eiginlega hrifnastur af Þrastar- skógi. Ég fer án efa eitthvað þangað í sumar en fjölskyldan á bústað þar.“ Rafmagnshitaðir úti- pottar hafa aukist til muna í sölu en þeir kosta allt upp í 600.000. Afar hent- ugt í sumarbústaðinn, hvort sem er fyrir garð- partíin eða slökunina. Markísa er eitt af því sem flestir vilja á bú- staðina sína, enda útlitslega flott og praktískt. Markísan er skrúfuð á vegg og svo dregin fyrir þegar fólk vill. Gott skyggni á húsið og þegar rign- ir úti. veitir markísan skjól. Skemmtilegt ef borðað er úti. eru vinsælust? Hulda Jónsdóttir Tölgyes „Ég er hrifnust af sumarbústaðaland- inu í Skorradalnum. Ég fór oft þang- að á yngri árum.“ Sigrún Halldórsdóttir „Grímsnesið er sá staður sem ég hef mest farið í. Annars fer ég eflaust ekki mikið í sumar, ég leigði mér sumarhús á Spáni sem ég ætla að dvelja í með bamabörnunum.“ Jón Helgi Sigurðsson „Grímsnesið heillar mest. Kannski að maður fari þangað í sumar, ann- ars er það alveg óákveðið."

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.