blaðið - 01.06.2005, Page 18

blaðið - 01.06.2005, Page 18
miðvikudagur, 1. júní 2005 I blaðið afsláttur af sumardekkjum -20% afsláttur af low-profile -20% afsláttur af sendibíladekkjum T®r Vaxtalausar léttgreiðslur! s EÍQiÍfÍ TOtól Smiðjuvegur 34 | Rauð gata www.bilko.is | Simi 557-9110 CT Mataræði og sæðisgæði: 's?E agnar.burgess@vbl.is Það eru flestir karlmenn sammála því að karlmennskan kemur úr nær- buxunum þeirra. Burtséð firá sígildu stærðar/lengdar/ummálsklisjunni skiptir meira máli að skotin sem koma úr hólknum þurfi að hafa sín áhrif. Sæðisgæði er þannig eitthvað sem menn og konur mættu gefa meiri gaum. Mataræði hefur mikil áhrif á sæðisgæði, magn og auk þess bragð, en það er víst eitthvað sem sumir hafa áhuga á að vita. Lág sæðistala, léleg hreyfigeta sáðfrumna og kekkir í sæði þurfa ekki að þýða að um var- anlegt vandamál sé að ræða. Til að byrja með skal bent á nokkra hluti sem komið geta hreyfingu á málið: - Of þröng fót eru ekki af hinu góða, þar með talin nærfót. Notið box- era sem loftar um. - Heitir pottar og langar setur í baði geta soðið sundkallana. - Reykingar drepa ykkur og sáð- frumumar ykkar. Líka þær óbeinu. - Áfengi skerðir jafn- vægisskyn manna og sundhæfileika sáð- frumna. - Veikindi og slappleiki dvelja oft lengur í pungn- um. - Álag og streita trufla alla líkamsstarfsemi, þar með talið þessa. - Hinir og þessir áhættuþættir í starfi (skordýraeitur, þung- málmar, þjmnir, röntgen- geislar o.s.frv.) hafa einn- ig áhrif. Hreyfanleiki er meg- inatriði Næring og mataræði hef- ur einnig mikil áhrif, eins og áður sagði, og er þá sumt bétra en annað. Sérstaklega ber að nefna C-vítamín en lítið magn þess er talið tengjast lágu sáðfrumutali, lélegum sáðfrum- um og kekkjamyndunum. C-vítamín er að finna í öllum sítrusávöxtum, t.d. kívíi, sítrónum, súraldinum og appelsínum. Annað efni sem skiptir miklu máli er sink en það er að finna m.a. í kjúklingum, lambakjöti, nauta- kjöti og ostrum. Skortur á fólínsýru (e. folic acid) er samkvæmt rannsókn- um líka talin ástæða lítils magns sáð- frumna en hún fyrirfinnst aðallega í grænu grænmeti. Kók, kaffi og sígarettur Það sem ber að varast í mataræði er svokallað ruslfæði og mikill sykur. Einnig er koffín óvinur sáðfrumn- anna og reyndar einnig bragðkirtl- anna. Koffínið fyrirfinnst í kaffi og einnig í þónokkru magni í kóladrykkj- um og orkudrykkjum. u er? dag adalbjorn@vbl.is „gleym mér ei“ nærbux- um. Nú geti hann fylgst með henni hvenær sem er og ef hann grunar eitthvað misjafnt geti hann einfaldlega hringt í hana eða sótt, án þess að hana gruni nokkuð. Það er ekki öll vitleysan eins - eins og sjá má á heimasíðunni „forgetmen- otpanties.com". Þar er að finna það nýjasta í „nærbuxnatækni" heimsins. Um er að ræða nærfatnað fyr- ir konur, sem í sjálfu sér væri ekki í frásögur fær- andi ef ekki væri búið að sauma í þær staðsetning- artæki. Á heimasíðunni segir að „gleymdu-mér-ei“ nærbuxurnar geti hjálpað karlmönnum að vemda kon- una í lífi sínu. Þær geti sýnt þér nákvæmlega hvar eigin- konan, dóttirin eða kærastan er allan sólarhringinn og jafnvel fylgst með hjartslætti og líkamshita. Nær- fótin em þannig útbúin að konan á aldrei að komast að því að með henni er fylgst. Á síðimni segja tveir einstakling- ar frá reynslu sinni af þessari nýju vöm. Tim segir að hann hafi gift sig fyrir þremur árum en fljótlega farið að gmna eiginkonuna um framhjá- hald. Hann hafi nú fengið gmn sinn staðfestan, sé nú að skilja og hafi gögn sem hann geti beitt í skilnað- armálinu. David segir að eftir að dóttir hans hafi náð kynþroska hafi hann keypt fyrir hana nokkur pör af Nútíma skírlífis- belti? í gegnum aldimar hafa sögur af konum sem nota þurftu skír- lífisbelti skotið reglulega upp kollin- um. Þessar sögur hafa oftar en ekki verið af fóngulegri prinsessu sem búið var að lofa illum og ófríðum greifa, en hún elskaði fagran og góðan prins úr nálægu ríki. Til að tryggja tryggð henn- ar var hún látin ganga í slíku belti - en tekið skal fram að í flestum slíkum ævintýmm var endirinn ham- ingjuríkur - og hið ástfangna par náði saman að lokum. Hvort end- irinn á sögu þeirra, sem þessa fram- leiðslu kaupa, verði ávallt jafngóður veit enginn. Bara fyrir konur Herlegheitin em framleidd í Japan, eins og svo margt annað skrítið, en sérstaka athygli vakti að ekki var hægt að fá nærbuxur fyrir karlmenn í þessari nýju línu. Ennfremur að eng- ar þvottaleiðbeiningar er að finna á síðunni þannig að ómögulegt er að segja til um hvort búnaðurinn virkar eftir fyrsta þvott eða ekki. Dodge Ram húsbíll árg.1997 ek. 73.600 mílur. Vel með farinn með glæsil. viðar- og leðurinnréttingu. Rafm.svefnb. 4 kapteins- stólar o.mfl. Nýjar bremsur, ný dekk, sk. ‘06. Tilbúinn í ferðalagið Verðkr. 1.750.000,- Uppl. í síma 896 8633 Af netinu: Horfðu á brjóst - lifðu lengu Eða hvað? Að horfa á konubijóst er ekki bara góð skemmtun - það er einnig heilsu- samlegt. Þetta er innihald fréttar sem nú fer eins og eldur í sinu um net- ið. Þar er sagt frá rannsókn sem kona að nafni dr. Karen Weatherby gerði, og niðurstaða hennar er vægast sagt áhugaverð. Hún er sú að það að horfa á kvenmannsbrjóst í um 10 mínútur á dag sé jafnheilbrigt og 30 mínútur í ræktinni og geti lengt líf meðalkarl- mannsins um fjögur til fimm ár. Þessar niðurstöður hljóma eins og þær séu of góðar til að vera sannar - enda er það raunin. Svo virðist sem óprúttnir blaðamenn á einhveij u slúð- urblaðinu úti í heimi hafi einfaldlega búið fréttina til. Nú gengur hún á netinu og svo virðist sem margir hafi lítinn áhuga á að kanna réttmæti hennar og kjósi að gleypa þennan vafasama „sannleik" hráan. Græja vikunnar... Græja vikunnar að þessu sinni er EPSON P2000 Storage Viewer. Þetta skemmtilega tæki er með 40 GB diski og kortalesara fyrir SD og Compact flash. Þetta er mjög hentug græja til að geyma stafrænu ljósmyndirnar á. Á tækinu er 3,8”, skjár með mjög góðri upplausn, þannig að hægt er að fletta í gegnum myndirnar og skoða hvar og hvenær sem er. Hægt er að tengja tækið við hvaða sjónvarp sem er og skoða myndirnar þar. Ennfrem- ur er hægt að setja inn í tækið tónlist og bíómyndir og horfa eða hlusta hvar og hvenær sem er - sem ætti að freista þeirra sem t.d. fljúga mikið. Tækið kostar 59.000 krónur og fæst meðal annars í BT-verslununum.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.