blaðið - 01.06.2005, Qupperneq 24
miðvikudagur, 1. júní 2005 ! blaðið
24 mennin
„ . JVIaó íprnnn
afhjupaður
kolbrun@vbl.is
Árið 1991
kom út bókin
„Villtir svan-
ir“ eftir Jung
Changogvakti
gríðarlega at-
hygli. Hún
seldist í rúm-
lega 10 millj-
ónum eintaka
og var þýdd á
30 tungumál.
í bókinni rakti
Chang sögu
fjölskyldu
sinnar, þriggja
k y n s 1 ó ð a
kvenna, á
hörmungar-
tímabili 20.
aldar í Kína.
kínversk
stjóravöld
vöruðu
fólk, sem
var í innsta
hring Ma-
ós, við því
að ræða
opinskátt
við hana.
Tíu ár í vinnsiu
Nú er komin út ný bók eftir Chang.
Þetta er 800 blaðsíðna ævisaga Ma-
ós, sem var 27 ár við völd í Kína, og
hefur að minnsta kosti 70 milljónir
mannslífa á samviskunni. „Hann var
jafnmikið illmenni og Hitler og Sta-
lín og vann mannkyninu jafnmikinn
skaða og þeir. Samt veit heimurinn
svo furðulega lítið um hann,“ segir
Chang, sem
var tíu ár
að skrifa
bókina. Hún
segir að Maó
hafi aldr-
ei aðhyllst
nokkra teg-
und af hug-
myndafræði
- persónuleg
völd hafi
skipt hann Jung Chang. Höfundur
öllu máli og Villtra svana var tíu ár
hann hafi að skrifa ævisögu Maó. í
fvrirlítið SundayTimesfærbókin
hugmyndri frábæradóma.
um jafnrétti.
Meðhöfundur Chang að bókinni
er eiginmaður hennar, Jon Halliday,
sem er sagnfræðingur. Hann segir að
bókin sé ekki skrifuð fyrir sagnfræð-
inga heldur almenning. Þau hjón ferð-
uðust víða um heim til að safna efni
og tóku hundruð viðtala.
Versta skrímslið
Bókin fékk frábæra dóma í The
Sunday Times um síðustu helgi. Rit-
dómarinn er Simon Sebag Montefi-
ore, ungur sagnfræðingur, höfundur
stórmerkilegrar ævisögu um Stalín,
„The Court of The Red Csar“. Hann
segir bókina mikinn sigur þeirra
hjóna og furðar sig á því að fram að
þessu hafi menn einbeitt sér að því að
deila um hvor hefði verið verri, Stalín
eða Hitler, en enginn hafi nefnt Maó
sem hafi verið versta skrímslið.
Bönnuð í Kína
„Villtir svanir“ er bönnuð í Kína og
engar líkur eru á því að ævisaga Ma-
ós komi þar út á næstu árum. Chang
fór nokkrum sinnum til Kína til að
afla heimilda og kínversk stjómvöld
vöruðu fólk, sem var í innsta hring
Maós, við því að ræða opinskátt við
hana. Hún segir að þessar viðvaran-
ir hafi ekki borið nokkum árangur
og heimildarmenn hafi verið afar
viljugir að deila reynslu sinni með
henni. Einnig ræddi Chang við fjölda
framámanna víða að úr heiminum og
þar á meðal má nefna Dalai Lama,
Imeldu Marcos og Henry Kissinger.
Maó. “Hann var jafn mikið illmenni og Hitler og Stalín og vann mannkyninu jafn
mikinn skaða og þeir. Samt veit heimurinn svo furðulega lítið um hann,” segir Chang.
Blaðið/Esther
Frá $álmasöng
í sigaunatórííist
Á fimmtudagskvöld klukkan 20 hefj-
ast í Hafnarfjarðarkirkju tónleikar
þar sem kallast á þjóðlagahefðir úr
sitt hvoru homi Evrópu, frá íslandi
og Ungveijalandi. Pram koma söng-
konan Svava Kristín Ingólfsdóttir
og Antonia Hevesi, sem leikur undir
á orgel og píanó.
„Þetta verða frekar óhefðbundn-
ir kirkjutónleikar því þeir eru leik-
rænni en venja er til. Dagskráin er á
þjóðlegum nótum og okkur þótti rétt
að endurspegla það með búningum
og látbragði," segir Svava Kristín.
„Dagskráin hefst raunar á stuttri
hugvekju síra Þórhalls Heimisson-
ar og fyrstu lögin em sálmakennd.
Síðan verðum við eilítið veraldlegri
eftir því sem á líður og leikurinn
æsist. Á endanum skiptum við svo
úr íslensku þjóðlögunum yfir í ung-
Dagskráin
er á þjóð-
legum
nótum og
okkur þótti
rétt að end-
urspegla
það með
búningum
og lát-
bragði
versk þjóðlög
og erum svo
komin á end-
anum yfir í
blóðheita sí-
gaunatónlist."
Svava segir
hin svellköldu
íslensku þjóð-
lög fara ágæt-
lega við hina
funheitu sí-
gaunatónlist.
„Andstæðurn-
ar eru miklar
en það gerir
dagskrána
bara skemmti-
legri. Það
má þó ekki
gleyma því
að íslensku þjóðlögin kalla líka á
fjölbreytta tilfinningatúlkun þótt
við sleppum okkur ekki eins og sí-
gaunarnir. Þetta eru harmkvæði,
ástarljóð, barnagælur, gamanvísur
og drykkjusöngvar. Ætli það sé ekki
svipað og hjá sígaununum þótt nálg-
unin sé önnur hjá okkur?“
Tónleikarnir hefjast sem fyrr
segir í Hafnarfjarðarkirkju kl. 20
og standa í 45 mínútur. Þeir eru
hluti Bjartra daga, menningarhá-
tíðar Hafnarfjarðar, og er aðgangur
ókeypis.
Auglýsingadeild 510-3744
Tvær nýjustu skáldsögur Braga Ól-
afssonar, „Gæludýrin" og „Samkvæm-
isleikir", eru komnar út í kilju hjá
bókaforlaginu Bjarti. Báðar sögumar
hafa fengið lof gagnrýnenda. Sú fyrri
var tilnefnd til íslensku bókmennta-
verðlaunanna og Menningarverð-
launa DV og sú síðari fékk Menning-
arverðlaun DV fyrr á þessu ári.
„Gæludýrin" segir frá Emil, ungum
manni sem kemur heim til Reykjavík-
ur eftir stutta dvöl í útlöndum og
verður þá var við að gamall kunningi
hans, Hávarður að nafni, er á höttum
eftir honum. Emil reynir hvað hann
getur til að forðast Hávarð en fer jafn-
framt að rifja upp með sjálfum sér
afdrifarfka daga sem þeir höfðu átt
saman í London nokkrum árum fyrr.
„Samkvæmisleikir" hefst undir
morgun þegar prentneminn Friðbert
hefur kvatt síðustu gestina í þrítugs-
afmælisveislu sinni. Þá rekur hann
augun í svarta rúskinnsskó fyrir á
stigapallinum framan við dymar, skó
sem hann kannast ekki við að hafa
séð áður.
Þess má geta að „Gæludýrin“ eru
að koma út í Þýskalandi síðar á þessu
ári en bókin hefur áður komið út í
Danmörku og fékk frábæra dóma. ■
Sólheimaleikhúsið
sýnir Þumalínu
Vegna 75 ára afmælis Sólheima
efnir Sólheimaleikhúsið til hó-
tíðarsýningar á aðalsviði Borgar-
leikhússins fimmtudaginn 2. júní
kl. 20. Sólheimaleikhúsið sýnir
leikritið „Ævintýri Þumalínu",
sem er byggt á ævintýri H.C.
Andersen í þýðingu Steingríms
Thorsteinssonar. Leikstjóm og
leikgerð er eftirÁsu Hlín Svavars-
dóttur, söngtextar eftir Kristján
Hreinsson, tónlist eftir Magnús
Kjartansson og grímur eftir Ólaf
Má Guðmundsson. „Ævintýri Þuma-
línu“ er eitt af þekktari verkum H.C.
Andersen og eins og önnur verk hans
höfðar sagan til allrar fjölskyldunn-
ar. Sólheimaleikhúsið valdi þetta
verkefni í tilefni af því að 200 ár eru
liðin frá fæðingu höfundarins. Miða-
sala hófst í Borgarleikhúsinu mánu-
daginn 30. maí.
Leiksýning Sólheimaleikhússins
er einn þáttur í fjölbreyttri dagskró
í tilefni 75 ára afmælis Sólheima.
Sunnudaginn 3. júlí fer fram vígsla
Sólheimakirkju og undirritun stofn-
anasamnings um rekstur umhverf-
isseturs í Sesseljuhúsi. Á afmælis-
daginn sjálfan, þriðjudaginn 5. júlí,
verður fjölbreytt afmælisdagskrá að
Sólheimum, með þátttöku innlendra
og erlendra gesta.
myndatexti. Á fimmtudag sýnir
Sólheimaleikhúsið leikritið „Ævin-
týri Þumalínu", sem er byggt á ævin-
týri H.C. Andersen.