blaðið - 14.06.2005, Síða 10

blaðið - 14.06.2005, Síða 10
þriðjudagur, 14. júní 2005 ! blaðið íslendingar að drepast úr velmegun Ofeldi helsti heilbrigðisvandi samtímans magnus@vbl.is Búast má við holskeflu sjúkdóma í kjölfar aukinnar tíðni ofþyngdar, of- fitu og annarra neysluvandamála hér á landi, nema komi til róttækra opin- berra aðgerða, að mati Heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis. Ný pólitísk stefna nauðsynleg „Ef það á að nást árangur í þessu þarf að marka nýja pólitíska stefnu og skapa skilyrði íyrir breyttum lífs- stíl og breyttum hugsunarhætti," segir Sigurbjöm Sveinsson, formaður Læknafélags íslands. Hann telur að örva þurfi fólk til að komast að ann- arri niðurstöðu um líf sitt en það lifir eftir núna. „Það er gert með því að setja fræðslu um rétt og hollt mat- aræði inn í námskrá leik- og grunnskólanna. Síðan þarf að auka fjármagn í almenningsíþróttum þannig að fólki standi fleiri íþróttamögu- leikar til boða og að fjárhagsástæður standi ekki í vegi fyrir því að fólk hreyfi sig meira.“ Sigurbjöm telur að verðlagning matvæla sé einnig stór áhrifaþáttur en óholl matvæli eru jafnan ódýrari og aðgengilegri en þau sem hollari eru. „Þarna þurfa því fleiri en eitt ráðu- neyti að leggjast á eitt. Það þýðir ekki að skora á ein- staka ráðherra, eins og heilbrigðis- eða menntamálaráðherra. Það þarf samræmdar aðgerðir allra ráðu- neyta en fyrst þarf að horfast í augu við stærð vandans." Ofgnótt helsta heilsu- ógn landsmanna Um 60-70% íslendinga stunda ekki næga hreyf- ingu og nýjustu rannsóknir sýna að vandinn snýr ekki síst að börn- um og unglingum. 53% íslenskra stúlkna hreyfa sig of lítið og 25% íslenskra drengja. Arið 2002 vom 57% karla og 40% kvenna á aldrinum 15-80 ára yfir kjörþyngd. Á sama tíma hafa átraskanir, bæði lystarstol og lotugræðgi, orðið meira áberandi hér á landi og víðar á Vest- urlöndum. í greinargerð sem fylgir þingsályktunartillögu heilbrigðis- og trygginganefndar, um aðgerðir til að bæta heilbrigði í slendinga með hollara mataræði og aukinni hreyfingu, eru ofgnótt og ofneysla tvímælalaust tald- ar vera helsti og alvarlegasti vandi ís- lenskra neytenda nú um stund- ir og þeir þættir taldir vera helsta núverandi ógn við heilsu landsmanna. Fram kemur í greinar- gerðinni að í útreikningum á vægi mismunandi áhættu- og umhverfis- þátta á heilsu eða sjúkdómabyrði raða holdarfar og hreyfingaleysi sér í fimm af sjö efstu sætum yfir þá þætti sem helst stytta líf og minnka lífsgæði. Ekki óhjákvæmileg afleiðing í greinargerðinni er því enn fremur haldið fram að breyta verði ýmsum grundvallarhliðum neyslu- og þjón- ustusamfélags nútímans. Sigurbjörn telur neyslu- og hreyfingarvandann þó ekki vera óhjákvæmilega afleið- ingu þjóðfélagsskipulagsins. „Það er enginn vandi að hugsa öðruvísi. Það þýðir ekkert annað en að byrja á börnunum og þar með geta fullorðnir að einhveiju leyti verið með í þessu. Það eru þó ókomnu kynslóðirnar sem munu til fulls njóta góðs afbreyttum hugsunarhætti - en einhvers stað- ar verðum við að byrja og við get- um alls ekki haldið áfram á sömu braut. Ef þjóðirnar halda áfram að þyngjast af þessum ástæðum þá munu fylgja því vandamál sem ekki verður hægt að takast á við nema með lyfjagjöf." Fátæk þróunarríki glíma mörg hver við sama vandamál en Sigur- björn bendir á að fátækt leiði til einhæfrar fæðu og sóknar í orkuríkan mat. „Það getur valdið ofþyngd, jafnvel offitu, samhliða næringarskorti. Það hljómar kannski einkennilega en svona er þetta. Mataræði sem þú velur þér fyrir fátæktarsakir getur allt eins leitt til offitu." Þjóðfélagsskipulagi um að kenna í greinargerðinni er talið að „þjóð- félagsaðstæður samfara aukinni velmegun eigi hér vafalítið stærst- an hlut að máli“. Því er haldið fram að stóraukið framboð á girnilegum mat, stærri matarskömmtum og ágeng markaðssetning orkuríkrar fæðu, hafi hvatt til ofneyslu en á sama tíma hafi dregið úr hreyfingu við athafnir daglegs lífs vegna tækni- væðingar, sjónvarps- og tölvuvæðing- ar, og breyttra samgönguhátta. Þá er bent á að tómstundir bama hafi gjörbreyst þar sem kyrr- setur við tölvuleiki og sjón- varpsáhorf hafi að miklu leyti tekið við af útileikjum og ærsl- um. „Við megum ekki taka því sem gefnu að mannkynið þróist í ein- hverja sjúka akfeita einstaklinga,“ segir Pétur Blöndal alþingismaður, sem á sæti í heilbrigðis- og trygg- ingarnefnd. „Það sem maður rekur fyrst augun í er mikil aukning á fjölda þungra barna - mörg böm eru einfaldlega orðin of feit. Það er sennilega vegna hreyfingarleys- is eða breyttra lífshátta. Meiningin er að grípa þar inn í með forvörnum strax í byijun. Að finna þau börn sem eru að verða of feit og hafa samband við foreldra og veita þeim ráðlegging- ar varðandi breytingar á lífsstíl og mataræði og öðru slíku." Þannig er áætlað að hægt sé að vekja foreldra til umhugsunar um eigin velferð um leið og þau hugi að neysluvenjum bama sinna. „Við getum ekki horft aðgerðalaus á og litið á þetta sem ein- hveija óhjákvæmilega þróun. Þessi „Við megum ekki taka því sem gefnu að mannkynið þróist í einhverja sjúka akfeita einstak- linga" þingsályktun var einmittt sett fram ámjögbeinskeytt- an máta til að upplýsa fólk um þennan gríðarstóra vanda og til að færa hann framar í forgangsröðina þannig að fólk fari al- mennt að taka á þessu. Það hefur t.d. orðið sú breyting á hugarfari unglinga að það virðist vera í lagi að vera sæmilega vel holdugur. Það hugarfar þekktist ekki áður.“ Forsætisráðuneytið mun á næstu mánuðum fela Lýðheilsustöð yfirum- sjón með gerð tillögu um orsakir og upprætingu vandans. Verð matarkörfunnar tvöfaldast rúmlega milli verslana Bónus kom best út úr verðkönnun flokka sem kannaðir voru, var hæst í sem Blaðið gerði f sex matvörubúðum Nóatúni, eða rúmlega tvöfalt hærra en á höfuðborgarsvæðinu í gær. í fimm í Bónus. af þeim sex vöruflokkum sem voru Verslanir voru valdar af handahófi. skoðaðir reyndist ódýrast að versla (Bónus. Samanlagt verð þeirra vöru- 10-11 Bónus Hagkaup Nettó Nóatún Krónan Lágmúli Smáratorg Skeifan Mjódd Smáralind Skeifan Nýmjólk 1L 770 g Heimilisbrauð 1 kg. tómatar* í lausu ms skyr - 500gr 1/2 L Kók í plasti 1 kg Bananar 89.- 28.- 87.- 65.- 134.- 30.- 259.- 79.- 189.- 179.- 199.- 149.- 275.- 89.- 239.- 249.- 349.- 96.- 134.- 107.- 128.- 115.- 129.- 129.- 84.- 119.- 95.- 120.- 85.- 228.- 114.- 199.- 159.- 199.- 129.- *Ekki var gerður greinamunur á íslenskri og erlendri vöru. OpiÖ virka daga: 10-18 & laug: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954 P,e oe GERÐU GÓÐ KAUP ÞVÍ NÚ ER •\5-30% AFSL^TTUR Frábær sumartilboð á: Rúmum, springdýnum, latexdýnum, svampdýnum, yfirdýnum, eggjabakkadýnum, koddum og sérsniðnum svampi.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.