blaðið - 14.06.2005, Síða 18
18 veiði
þriðjudagur, 14. júní 2005 i blaðið
t
Veiðiportið
Ótrúlegt verð á niigiim!
Straumflugur 195 kr.
Silungaflugur 160 kr.
Laxaflugur 275 kr.
Brass túpur 295 kr.
Veiðiportið
Grandagaröi 3
Sími: 552 9940
Nú er réttí tíminn til að galla sig upp, í dag og næstu
daga seljum við allar vöðlur með fáránlegum afslætti ....
Fisher Motion Gore Tex vöðlur á 65% afslætti.
LOOP útöndunarvöðlur á 30% afslætti.
LOOP eldri gerðir af útöndunarvöðlum á 50-60% afslætti
Allar Neopren vöðlur á 30% afslætti.
Fyrsti
„Ég tala nú ekki af langri reynslu
sem fluguveiðimaður. Eg byrjaði að
myndast við að kasta flugu í fyrra.
Eftirtekjan reyndist enda rýr eftir
sumarið. Tómar bleikjur
en enginn lax. Það var M
því kærkomið að ná loks-
ins laxi,“ sagði Pétur Pét-
ursson, sem náði fyrsta
fluguveidda laxi sumars-
ins við opnun Laxár í Kjós
sl. fóstudag, í samtali við
Blaðið. „Þetta var alveg
unaðslegt og adrenalín-
flæðið eins og í skemmti-
legasta hraðakstri. Ég var búinn að
taka nokkur köst í Kvíslafossi og var
að læra á veiðistaðinn þegar ég fann
að hann var á. Ætli ég hafi ekki leyft
ég fæ
þegar
sýnisti
honum að kjamsa á flugunni í heila
mínútu áður en ég fór að vinna á
honum," segir Pétur, en laxinn tók á
svarta og silfraða snældu.
„Ólafur Helgi Ólafsson frá
Valdastöðum hafði tekið
fisk fyrr um morguninn í
Kvíslafossi. Hann þekkir
þessa á eins og lófann á
sér þannig að ég leitaði
ráða hjá honum um hvað
væri líklegast að gæfi
þama. Hann benti mér á
svarta og silfraða snældu
sem varð ofan á. Eftir
brokkgengan árangur síðasta sumars
þá var ég ákveðinn í að landa þessum
og ég vissi frá fyrsta höggi að hann
færi hvergi. Ætli ég hafi ekki verið
lax
mér
20-30 mínútur að þreyta hann og þeg-
ar hrygnan var komin á land kom í
ljós að hún hafði kokgleypt. Einhver
spurði, þegar fiskurinn var kominn á
land, hvort ég ætlaði ekki að sleppa
þar sem þetta væri hrygna. Ég gat
ekki séð neitt fyndið við það fyrr en
það var rifjað upp yfir kvöldverðin-
um,“ segir Pétur.
„Aðstæður voru ekki þær bestu þeg-
ar veiðimenn gerðu sig klára á fóstu-
dagsmorgun við opnun Laxár í Kjós.
Vestangola var af hafi, fremur kalt og
skýjað. Vestanáttin þykir hvimleið í
Kjósinni og ekki vísa á góða veiði."
Alls komu fjórir laxar á land fyrsta
daginn í Kjósinni. Ásgeir Þór Ámason
náði þeim fyrsta, átta punda hrygnu,
einungis 15 mínútum eftir opnun á
Ólafur Helgi Ólafsson og Pétur Pétursson
með laxa á opunardaginn við Laxá í Kjós.
maðk, einnig í Kvíslafossi. Að lokinni
snarpri löndun sagði Ásgeir hógvær:
„ég fæ lax þegar mér sýnist,“og má á
vef SVFÍ lesa að erfitt hafi verið fyrir
nærstadda að andmæla því. Hefð er
fyrir því að fyrsti lax í Kjós fari í súpu
matreiðslumeistarans og var svo einn-
ig í þetta sinn.
Blaðið reyndi að komast að því hve
margir laxar væm komnir úr Laxá í
Kjós í fyrrakvöld en enginn svaraði í
veiðihúsinu. Eitthvað hefur þó togast
upp af fiski í henni og veiðimenn hafa
gert sér ferð upp með ánni til að leita
að þeim stóra, sem sást fyrir nokkru.
Þverá í Borgarfirði var opnuð í gær-
morgun og voru veiðimenn komnir á
veiðislóðir strax um sjöleytið.
Fluguveiðiskólinn er byrjaður við
Langá á Mýmm og verður fram á mið-
vikudag en þá verður áin formlega
opnuð.
Til sölu fjölbreytt úrval veiðileyfa í
lax, sjóbirting, urriða og bleikju
OPIÐ í SUMAR:
laugardaga 10-17, sunnudaga 10-16, virka daga 9-19
Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000
mutmi
ÚTIVIST'•w'VElÐI
Síðumúla 11 j 108 Reykjavík | Sími 588 6500 j benni@utivistogveidi | www.utivistogveidi.is
Veiðiþjónusran Srrengir - Sími/fax: 567-5204 - GSM: 660-6890
www.strengir.is - ellidason@strengir.ts
Frábært úrval veiðileyfa í lax og silung - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu
Fréttir, greinar og margt fleira