blaðið - 14.06.2005, Page 25
blaðið 1 þriðjudagur, 14. júní 2005
e
Nýr timi fyrir
heiminn
„Verkiö, sem var íjögur ár í undirbún-
ingi, er hugleiðing um hugsjónir sem
eru af skornum skammti í dag,“ seg-
ir Hlynur Helgason sem sýnir verkið
Decimal Time Project í Hoffmanns-
galleríi á Reykjavíkurakademíunni.
Verkið er tilraun til að breyta tíma-
kerfi jarðar. „Tíminn er eina kerfið
sem við búum við núna sem er ekki
komið inn í metrakerfið. Tímakerfi
okkar byggist á tvö til þrjú þúsund
ára gömlu talnakerfi Babylóníu-
manna en ég hef skapað nýjan tíma
fyrir heiminn. Grunneiningin er dag-
ur og kílódagur er þúsund dagar,“ seg-
ir Hlynur. „Verkið byggist á þeirri full-
yrðingu að algjör nauðsyn sé að koma
þessu kerfi á. Þungamiðja verksins
er risastór klukka sem telur niður og
síðan fylgja útskýringar hvernig kerf-
ið virkar fyrir almenning."
Annað verk á sýningunni er 3X1X
Praha, myndir teknar í Prag, sem
byggjast á stuttum kvikmyndabrot-
um með hljóðrás og ljósmyndum,
unnum upp úr kvikmyndunum. Þar
skoðar Hlynur hversdagslegt um-
hverfi borgarinnar og skilgreinir á
einfaldan hátt.
Sýningin stendur til 29. júlí. Hún
er opin alla virka daga frá 9-16, eða
samkvæmt hinu nýja tímatali heims-
ins frá 155-323.
Safn til minningar
um Dahl
í litlu þorpi, Great
Missenden, í Buck-
inghamshire hefur
verið opnað safn
til minningar um
barnabókahöfundinn vinsæla, Ro-
ald Dahl. Dahl, sem lést árið 1990,
skrifaði margar af bókum sínum í
þorpinu. Safnið er hannað í kring-
um bækur og skáldsagnapersón-
ur Dahls. Þarna eru til að mynda
súkkulaðidyr og bekkur sem við
nánari skoðun reyndist vera krókó-
dffl.
Roald Dahl er nokkuð í sviðsljós-
inu þetta árið en á næstunni sýnir
BBC heimildarmynd um hann og í
júlí verður frumsýnd ný Tim Bur-
ton mynd eftir sögu Dahls, Kalli
og súkkulaðiverksmiðjan, þar
sem Johnny Depp fer með aðalhlut-
verkið.
Sumarnámskeið í
Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið og söng- og leik-
listarskólinn Sönglist standa fyr-
ir leiklistarnámskeiðum í sumar.
Skólinn hjá Sönglist hefur verið
starfræktur síðan 1998, þar af
tvö síðustu árin í Borgarleikhús-
inu. Mikil aðsókn er í skólann og
hafa færri komist að en viljað.
Borgarleikhúsið var með leiklist-
arnámskeið síðasta sumar, sem
naut mikilla vinsælda, og verður
nú leikurinn endurtekinn í sam-
vinnu við Sönglist. Kennsla fer
fram í leikhúsinu sjálfu og einung-
is fagmenntaðir kennarar sjá um
kennslu.
Hvert námskeið er í fimm daga
og er kennt frá 10-16. Hægt er að
fá gæslu frá kl. 8.45. Aldur þátt-
takenda er 8-13 ára og er aldurs-
skipt í hópa. í yngri hópnum eru
þátttakendur 8-10 ára en 11-13
ára í þeim eldri.
Kennd verða undirstöðuatriði í
einbeitingu, trausti, raddbeitingu
og leikgleði. Unnið er markvisst
að því að virkja sköpunarkraft
nemenda og að efla sjálfstraust
þeirra. Þó svo að kennslan byggist
aðallega á leiklistaræfingum verð-
ur einnig sungið. Undirstöðuatriði
í réttri söngtækni verða kennd og
æfð lög.
í lokhvers námskeiðs verður op-
in kennslustund, þar sem foreldr-
ar og aðstandendur koma og fylgj-
ast með afrakstri vinnunnar.
Kennarar í sumar eru Agnar
Jón Egilsson, Edda Björg Eyjólfs-
dóttir, Kolbrún Anna Björnsdótt-
ir, Kristbjörg Kari Sólmundsdótt-
ir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
og Svava K. Ingólfsdóttir.
Námskeiðin verða sex, hið
fyrsta hefst 20. júní og lokanám-
skeiðið er 25. júlí.
Skráning á námskeiðin fer fram
í miðasölu Borgarleikhússins og
á www.borgarleikhus.is. Þáttöku-
gjald er 15.000 kr. og skal gengið
frá greiðslu við skráningu. Veittur
er 10% systkinaafsláttur.
Meet The Fockers
Og þú sem hélst að
ÞÍNIR foreldrar
væru eitthvað
skrítnir. Stórstjörn-
urnar Robert
DeNiro, Ben Stiller
og Dustin Hoffman í
sprenghlægilegri
framhaldsmynd.
\
Closer
Þeir eru ófáir sem
halda því fram að
Closer sé ein besta
mynd sem gerð var
á síðasta ári og
hefur hún verið
hlaðin lofi og viður-
kenningum enda
toppleikarar í öllum
aðalhlutverkum.
Sideways
í leit að rétta víninu,
réttu konunum og
sjálfum sér... Hreint
út sagt stórkostleg
mynd sem farið
hefur sigurför um
heiminn.Tilnefnd til
Óskars verðlauna
sem besta mynd
ársins.
Lemony Snicket's...
Óhamingja. Ógleði.
Ótuktarskapur.
Sem sagt: Loksins
eitthvað skemmti-
legt. Jim Carrey fer
á kostum sem hinn
gráðugi Olaf greifi í
frábærri ævintýra-
mynd.
After the Sunset
Glæpir borga sig
aldrei. Bara stund-
um. Pierce Brosn-
an, Woody Harrel-
son og Selma
Hayek í gaman-
samri spennu- og
fléttumynd frá Brett
Ratner.
Alexander
Heppnin fylgir
þeim sem þora.
Margar af stærstu
stjörnum sam-
tímans í stórvirki
Olivers Stone um
ævi Alexander
mikla.
National Tresure
Til að komast að
sannleikanum er
nauðsynlegt að brjóta
allar reglur.
Ofurtöffarinn Nicolas
Cage er í kapphlaupi
við tímann í þrumu-
góðri hasar-mynd
Blade: Trinity
Hingað til hefur
hann barist einn.
En ekki lengur.
Wesley Snipes er
kominn aftur sem
hinn eitursvali
Blade í pottþéttum
spennuhasar.
Alfie
Hjartaknúsarinn
Jude Law er
kvennaflagarinn
Alfie sem nýtur
lífsins til hins ýtrasta
en nú er komið upp
smá vandamál
White Noise
Raddir hinna dauðu
eru allt í kringum
þig.... Michael
Keaton reynir að ná
sambandi við
nýlátna eiginkonu í
dulrænum spennu-
trylli.