blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 28
dagskr
£1
þriðjudagur, 14. júní 2005 I blaðið
Stutt spjall: Hjálmar Hjálmarsson
Hjálmar kynnir tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna í þætti í Ríkissjónvarpinu í kvöld.
Auk þess er hann, ásamt Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, kynnir á hátíöinni sjálfri sem er sýnd beint á RÚV næstkomandi fimmtudagskvöld.
Molar
Hvemig hefurðu
það f dag?
,Ég hef það bara
bærilegt. Það er
reyndar brjálað að
gera, ég er á kafi við
að undirbúa hátiðina.
Ég er nokkurs konar
dagskrárstjóri og
kynnir, ásamt Ólafíu
Hrönn, þannig að
það er að ýmsu að
huga.“
Hvernig líst þér á
tilnefningarnar?
.Ágætlega. Sýningar
úr stærri leikhúsun-
um - Þjóðleikhúsinu
og Borgarleikhúsinu •
eru mest áberandi.
Eg sakna fleiri tilnefninga úr sjálfstæðu
leikhúsunum en það
á sér kannski eðlileg-
ar skýringar."
Htakkarðu til á
fimmtudaginn?
„Ég er gríðarlega
spenntur. Þetta er
alltaf svolítil spreng-
ja. Leiklistarverð-
launin eru vitanlega
uppskeruhátíð. Þar
hittist leikhúsheimur,
-skemmtir sér saman
og gleðst yfir leikár-
inu. Það má segja
að þetta sé eitt stórt
partí.“
Viltu segja fyrir um úrslitin?
„Nei, ég get það eiginlega ekki. Það er
einna helst tilnefningin karlleikari í auka-
hlutverki sem ég get sagt fyrir um en ég
held að það verði einhver úr Þjóðleikhús-
inu. Það er líka mikil eftirvænting að vita
hverfær heiðursverðlaunin en það hvílir
jafnan leynd yfir því. Svo kjósa áhorfend-
ur sýningu ársins og það verður einnig
forvitnilegt að sjá.“
Hvað ertu að gera utan þess að
kynna leiklistarverðlaunin?
„Ég er með alls konar verkefni í gangi.
Ég var að Ijúka við að leikstýra finnsku
sakamálaleikriti í útvarpi, sem verður
frumflutt í júlí. Auk þess les ég inn á
myndir, auglýsingar og teiknimyndir.
Svo eru alltaf einhver önnur verkefni,
eins og þessi leiklistarverðlaun. Það má
því segja að ég sé svona sjálfstæður
listamaður."
OC-stjarnan
býður fundarlaun
Sæti strákurinn úr OC, Adam
Brody, býður 100 dali íyrir hvern
þann sem getur fundið eintak af
auglýsingu sem hann lék í áður en
hann varð frægur. Brody lék strák
sem þurfti á bólumeðferð að halda
og sýndi auglýsingin myndir af hon-
um með bólur og bólulausan eftir
meðferðina. „Fyrsta auglýsingin
mín var fyrir bólukrem. Það þurfti
að farða mig í tvær klukkustundir.
Ég hef aldrei séð auglýsinguna en
vinir mínir hafa séð hana.“ Brody
sagðist hafa verið með mikið af ból-
um við upphaf auglýsingarinnar en
hafi huggað sig við að í lokin myndu
áhorfendur sjá að hann væri í raun
ekki með svo slæma húð.
...draumórafólk
spennufíkla
Eitthvað fyrir..
Bíórásin - Vanilla Sky - kl. 22
Ein af umtöluðustu kvikmyndum síðari
ára. Þetta er mynd sem varla er hægt
að lýsa í orðum, enda allt í senn; dram-
atísk, rómantísk og spennandi. Útgef-
andinn, David Aames, tekur öllu sem
sjálfsögðum hlut. Hann er bráðmyndar-
legur og af peningum á hann nóg. Ástar-
lífið er fjörugt en svo fer að gæfan snýr
við honum baki og það svo um munar.
Eða er þetta kannski allt saman bara
draumur? Aðalhlutverk: Tom Cruise,
Penélope Cruz, Cameron Diaz, Kurt
Russell. Leikstjóri er Cameron Crowe.
2001. Bönnuð bömum.
RÚV - Rannsókn málsins
- kl. 22.20
Æsispennandi bresk sakamálamynd
í tveimur hlutum frá 2002 og er þetta
fimmta sagan úr flokki sem hefur yfir-
skriftina „Rannsókn málsins" (Trial
and Retribution). Þar segir frá því þeg-
ar beinagrind af ungri konu finnst á lóð
þar sem áður stóð gistihús og lögreglan
reynir að komast til botns í málinu.
Leikstjóri er Aisling Walsh og meðal
leikenda eru Kate Buffery og David Hay-
man. Seinni hlutinn verður sýndur að
viku liðinni.
Morgun Síðdegi Kvöld 18:30-21:00
17.05 Leiðarljós (Guiding Light) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Pétur kanína (5:6) (World of Peter Rabblt) 18.30 Gló magnaða (11:19) (Kim Possible) 19.00 Fréttir og íþróttir 19.35 Kastljósið 20.10 Everwood (9:22) (Everwood II) 20.55 Gríman 2005 í þættinum verða kynntar tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna sem afhent verða við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu á fimmtudagskvöld.
WL B 06.58 ísland í bi'tið jig 4 09.00 Bold and the w m Beautiful (Glæstar vonir) 09.20 I fínu formi (Þolfimi) 09.35 Oprah Winfrey (Addicted To Lying) 10.20 ísland í bítið 12.20 Neighbours (Nágrannar) 12.45 í fínu formi (Þolfimi) 13.00 Perfect Strangers (75:150) (Úr bæ í borg) 13.25 George Lopez 3 (23:28) (e) 13.50 Married to the Kellys (6:22) (e) (Kelly-fjölskyldan) 14.15 Kóngur um stund (4:18) 14.40 The Sketch Show 2 (7:8) (Sketsaþátturlnn) 15.05 Extreme Makeover (8:23) (e) 17.53 Nelghbours (Nágrannar) 18.18 ísland í dag 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 ísland í dag 19.35 Simpsons (Simpson-fjölskyldan) 20.00 Strákarnir (Brot af því besta) 20.30 Fear Factor (9:31) (Mörk óttans 5) Fear Factor er alvöru raunveruleikasjónvarp þar sem keppendur fara bókstaflega út á ystu nof.
© 17.55 Cheers 18.20 One Tree Hill (e) Hér er á ferðinni vandað fjölskyldu- drama af bestu gerð. 19.15 Þak yfir höfuðið (e) 19.30 According to Jim (e) 20.00 The Biggest Loser Caroline Rhea er umsjónarmaður The Biggest Loser. í þáttunum keppa offitusjúklingar, með hjálp sérvalinna einkaþjálfara, um hverjum gengur best að megra sig og halda reglurnar. 20.50 Þak yfir höfuðið
07.00 Olíssport crQn 07.30 Olíssport 08.00 Olíssport 17.45 Olíssport 18.15 David Letterman 19.00 NBA (Úrslitakeppni)
08.30 Olíssport
...fræga fólkið
Skjár 1 - Jay Leno - kl. 22.45
Jay Leno hefur verið kallaður
ókrýndur konungur spjallþátta-
stjómenda og hefur verið á dagskrá
Skjás eins frá upphafi. Hann tekur
á móti gestum af öllum gerðum í
sjónvarpssal og má með sanni segja
að fína og fræga fólkið sé í áskrift
að kaffisopa í settinu þegar mikið
hggur við. í lok hvers þáttar er boð-
ið upp á heimsfrægt tónlistarfólk.
06.00 Vanilla Sky
Bönnuð börnum.
08.15 Mr. Deeds
(Herra Deeds)
10.00 Kissing Jessica Stein
(Að kyssa Jessicu)
12.00 Gentlemen's Relish
(Herrayndi)
14.00 Mr. Deeds
(Herra Deeds)
16.00 Kissing Jessica Stein
(Að kyssa Jessicu)
18.00 Gentlemen's Relish
(Herrayndi)
20.00 In America (í Ameríku)
Dramatísk kvikmynd um unga
fjölskyldu sem reynir að fóta sig í
New York. Þau eru af írskum ættum
en fjölskyldufaðirinn freistar þess
að sjá þeim farborða með leiklist.
Aðbúnaðurinn á nýja heimilinu er ekki
góður en fjölskyldan reynir að gera það
besta úr öllu saman. Bönnuð bömum.
07.00 Meiri músík
19.00 Tvíhöfði (e)
Af netinu?
One Tree Hill þættimir eru alveg að gera
sig ennþá. Lucas er bara hrikalega eitt-
hvað góður og sætur og allt.
Ég vona að hann og Brooke
eigi eftir að ná saman aftur,
maður beið með öndina í
hálsinum eftir að þau myndu
kyssast í síðasta þætti. Það
gerisí örugglega í næsta. Ég
á ekki orð yfir það hvað Dan
er vondur maður. Það sem
hann gerði bróður sínum er
ófyrirgefanlegt, aumingja
Keith. Ég vona bara að hann
finni brúðina sína og þau
gifti sig after all. Ég var ekk-
ert smáánægð með Önnu, þvílíkt fífl sem
bróðir hennar er, gott á hann, hehe... Ég
varð nú fyrir smávonbrigðum með að
Haley skyldi ekki koma heim með Nat-
han, æ, hann er svo yfir sig ástfanginn af
henni en það þarf víst tvo til. Svo þetta
dæmi með Jake og Jenny. Ég
er ekki að gúddera að tuðran
nái af honum barninu, það
bara má ekki gerast. Þau eru
svo sæt lítil fjölskylda Jake,
Payton og Jenny. Hann er
voða sætur, kærasti Karenar,
mömmu Lucasar, en come
on, mér finnst alltof sýnilegur
aldursmunur á þeim. Mér
finnst hún gæti verið mamma
hans, þau eru samt voða
dúllur eitthvað. Mér finnst
bara eitthvað svo ótrúlegt að
svona sætur, ríkur gæi myndi falla fyrir
henni, veit ekki af hverju
http://blog.central.is/harpamel
Haha, One Tree Hill er alveg
að missa sig, úff, sápur eru
skemmtilegar í hófi en ég held
að þeir sem skrifi þessa þætti
séu alveg búnir að missa sig.
Ég vil frekar O.C. One Tree Hill
er annaðhvort ekki með nógu
ýktar persónur eða alltof ýktar,
ég held að þetta seinna sé
sennilegra. Ég ætla samt ekki
að hætta að horfa á það, þetta
er ekkert leiðinlegt, bara dáldið
kjánalegt og hlægilegt. Ég held
að einhver fari að deyja bráðum,
það væri dæmigert.
http://www.folk.is/laran88/
Athugasemd
í fjölmiðlapistli Blaðsins 30. maí, sem
er að mestu ánægjuleg lesning um
mannauðinn á fréttastofu Stöðvar 2, er
því klínt á undirritaðan að rugla saman
hagsmunum eigenda fyrirtækisins og
fréttum. Mér er gefið að sök að hafa
sveigt út af „hreinstefnu" minni í fréttum
og „tekist að koma því inn“ í frétt um
trampólinslys að Húsasmiðjan hafi selt
svo og svo marga tugi slíkra leiktækja
daginn sem hún opnaði nýja verslun.
Látum vera þótt ég hafi bara lesið kynn-
inguna á fréttinni og hafi hvorki veriö
höfundur hennar né umsjónarmaður
umrædds fréttatíma. Látum vera þótt í
fréttinni hafi verið talað um fleiri verslan-
ir en Húsasmiðjuna sem selja trampólín,
í þeim augljósa tilgangi að sýna fram
á söluæðið. Mér er samt gersamlega
fyrirmunað að skilja hvemig Blaðið geti
talið það vera sérstaka hagsmunagæslu
fyrir eigendur Húsasmiðjunnar að vara
við vöru sem þeir selja.
Þór Jónsson, varafréttastjóri Stöðvar 2