blaðið - 14.06.2005, Síða 30

blaðið - 14.06.2005, Síða 30
 þriðjudagur, 14. júní 2005 i blaðið V\M\J... Halldór og smásálirnar Er ekki alveg ótækt að vera að vasast í honum Halldóri mínum bara út af því að einhver skrifstofu- blók gleymdi að segja honum að hann væri að skrifa tékka handa sjálfum sér upp ó einhveija sprill- jarða í kvóta eða einhveiju? Mér finnst þetta óttaleg smámunasemi. En það er alltaf þannig - það er allt- af ráðist á framámenn þjóðarinnar með ómögulegt skítkast. Mútuþægni? Vitleysa alltaf hreint Eins og bévítans fréttamennim- ir sem vora eitthvað að klína lax- veiðiferðum upp á einn ráðherrann um árið og ásaka hann um mútu- þægni. Mútuþægni! Á íslandi! Ekki nema það þó. Ég veit ekki betur en búðareigendur séu alltaf að bera vínarbrauð í þessa írétta- menn alltaf hreint. Svei þeim í allar áttir. Mega menn ekki bara vera vinir hver annars? Og hittast í laxi? Það er bara eðlilegt að menn sem stunda mikil viðskipti saman tengist svolítið - og ef það verður til þess að afhjúpa sameiginleg áhugamál - er það þá ekki bara gott og blessað? Það heitir ekki við- skiptavinur fyrir ekki neitt. Ég er viss um að þetta fólk er bara öfund- sjúkt af því að það er ekki duglegt eins og hann Halldór okkar. En það er nú svo. Fjaðrafok Annars ríður vitleysan ekki við einteyming þessa dagana. Það spurðist út að einhver fótbolta- spjótrungur ætlaði að heiðra land- ið með nærveru sinni - og hvað gerðist? Það varð allt vitlaust! Blaðamenn og æstar smámeyjar hrúguðust fyrir utan gamla Al- þýðuflokkshúsið - í fyrsta sinn frá upphafi - og hvers vegna í ósköpun- um? Bara af því að þeir sem eiga landið bjóða vinum sínum í heim- sókn. Mér finnst þetta svindl, og ég er bara móðgaður. En svo kom hann ekkert. Gott á þá, segi ég. Maður á ekki að trufla ríka fólkið. Það á nógu erfitt fyrir. Sanngjörn laun fyrir sann- gjarna vinnu Mér finnst bara að þeir sem eru duglegir eigi að fá verðskulduð laun síns erfiðis. Mér finnst að það komi bara fólki ekkert við sem er ekki í þessu hvort eð er að vera eitt- hvað að agnúast út af einhverjum svona kvóta- og innheijaviðskipt- um og bitlingum og einkavæðingu og spillingu og svona hlutum sem fólk skilur ekki hvort eð er. Ég er viss um að þetta hafa verið sömu öfundsýkipésamir og skömmuðust sem mest út af laxveiðinni í stað- inn fyrir að fara bara út í búð og kaupa sér sinn eigin - og það eru sömu skrambans smásálimar sem eru að agnúast út í hann Halldór okkar. Þú veist hvemig þetta er. D1§} - -iny s.Child eysist upp Hljómsveitin Destiny's Child mun hætta þegar tónleikaferðalagi þeirra um Bandaríkin lýkur í september. Kelly Rowland lýsti þessu yfir fyr- ir hönd meólima Destiny's Child á tónleikum í Barcelona á laugardags- kvöld. í yfirlýsingu ó MTV á sunnu- dag þakkaði þríeykið, Rowland, Bey- oncé Knowles og Michelle Williams, aðdáendum sínum og sögðu mikinn systurkærleik vera sín á milli. „Vió höfum unnið saman sem Destiny's Child síðan við voram m'u ára og höf- um farið í tónleikaferðalög síðan við voram 14 ára. Eftir miklar umræður og hugleiðingar áttuðum við okkur á því að þetta tónleikaferðalag er tilval- ið tækifæri til að yfirgefa hljómsveit- ina á toppnum, sameinaðar í vinskap okkar og uppfullar þakklæti fyrir tón- listina, aódáenduma og hveija aðra.“ Stúlkumar sögðu líka að eftir að hafa unnið saman í öll þessi ár áttuðu þær sig á því að nú væri kominn tími til að halda sína leið. Stúlkumar ætla allar að vinna að einstaklingsferli sínum í sjónvarpi, kvikmyndum, leikhúsi og tónlist. „Hvað svo sem gerist þá mun- um við alltaf elska hver aðra, sem vin- ir og sem systur, og við munum allt- af styðja hver aðra sem listamenn. Við viljum þakka öllum aðdáendum okkar fyrir ómetanlega ást þeirra og stuðning og vonandi munum við sjó ykkur aftur.“ Yfirlýsingin kom á óvart þar sem undanfarið hefur þrí- eykið í sífellu þaggað niður orðróm um endalok hljómsveitarinnar en sá orðrómur fór hæst í kjölfór sólóplötu Knowles árið 2003. Destiny's Child er söluhæsta kvennahljómsveit sög- unnar og hefur selt yfir 40 milljónir platna um allan heim. MacEo ina osaff við imvnc rmýna sína Madonna hefur viðurkennt að hún gekk of langt með kynþokkafulla ímynd sína í upphafi ferilsins. Söng- konan þekkta segir að áleitin lög eins og „Like a Virgin", kræfir tónleikar og hin ögrandi bók, „Sex“ árið 1992, gætu haft misvísandi áhrif á aðdá- endur. „Stundum var ég áberandi kynþokkafull, bara til að sýna mig þótt ég þyrfti þess ekki. Ég held ég hafi sært sjálfa mig.“ Madonna segir að vitanlega vilji engin vera dæmd, viðurkennd eða elskuð vegna þess hvemig hún líti út eða hve kynþokka- full hún er en hún hafi látið þetta allt ýta undir sjálfsálitið og: „Éghugs- aði: Er ég ekki fróbær? Þeir era að skrifa um mig, mínar myndir eru á forsíðum tímarita. Ég er svo frábær.“ Madonna segir að hún hafi sent mis- vísandi skilaboð til aðdáenda, annað- hvort sagt „trúðu á sjálfan þig“ eða „vertu ögrandi og kynþokkafull". Þessi yfirlýsing Madonnu kemur í kjölfar útgáfu fimmtu bamabókar hennar. Spurlock á kreik á ný íslandsvinurinn Morgan Spurlock hefur enn á ný fund- ið verkefni sem vekur mikla athygli, og eins og áður snýst verkefnið um að kvelja hann og hans nánustu. Eins og margir muna borðaði Spurlock einung- is McDonalds-máltíðir í mánuð í heimildarmynd sinni Super Size Me og hafði það töluverð áhrif á heilsu hans, sem og samlíf hans og unnustunnar. í nýrri sjón- varpsseríu notar hann svipaða aðferðafræði til að taka á alvarleg- um málefnum í Banda- ríkjunum. í hveijum þætti mun einhver lifa gjörólíku lífi í mánuð. Sem dæmi má nefna að dreifbýlismamma mun verða dagdrykkjumanheskja í mán- uð, íhaldssamur ráðherra býr með samkynhneigðum herbergisfélaga og sannkristinn einstakhngur mun verða múslími. í fyrsta þættinum munu Spurlock og unnusta hans flytja af vel búnu heimili sínu og freista þess að lifa af lágmarkslaun- um í Ohio. Eftir mánaðardvöl bjuggu þau fyrir ofan dópbæli og vora orðin skuldug. „Þetta lífgar við vandamál sem mörg okkar heyra bara um,“ seg- ir Spurlock. „Við höfðum enga hug- mynd um hve erfitt þetta yrði fyrir okkur. í lok dagsins gátum við farið heim en það era milljónir manns sem búa svona allt árið um kring.“ Það má því segja að Spurlock rannsaki mannlega eymd með votti af kímni og hæðni. Viðfangsefnið verður því hvorki þungt né í fyrirlestraformi. Hvað segja stjörnurnar? Vatnsberi yjjP (20. janúar-18. febrúar) Tvíburar (21. maí-21. júnQ |S|Vog (23. september-23. október) $ Þeir sem sýna þér óvenju mikinn áhuga í dag gætu ætlað að hafa not af þér. Kíktu undir yfirborðið og vertu vakandi. V Stattu fastur á væntingum þínum og þú munt fá þess konar ást sem þú átt skilið. Vertu þolinmóður. Ef þú flýtir þér þá gætirðu misst af einhverju mikilfenglequ. S Það verður fjölbreytilegur dagur í vinnunni í dag. Ekki fresta ákveðnum verkefnum, þú hef- ur alveg tíma til að Ijúka þeim. V Það eru of marglr að skiþta sér af ástarlífi þínu. Þeir meina vel en afskiptasemi einkennir tal þeirra. S Ekki hafa áhyggjur af mistökum sem þú gerir I vinnunni. Það er fullkomlega eðlilegt og enginn er að pæla I því, fyrir utan þig. 1F Samkennd þln er óvenjusterk þessa dag- ana og marair sem leita til þín. Þú munt hjálpa einhverjum i vanda. Fiskar (19. febrúar-20. mars) Krabbi (22. júnl-22. júlQ Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Þú hefur sýnt einhverjum á vinnustað þ(n- um ómetanlega góðsemi. Jafnvel þótt þig langi til að láta í þér heyra þá er góðsemi þín það sem persónan þarfnast. V Einstaka sinnum, eins og í dag, ættirðu að hvila heilann og leyfa hjartanu að stjórna. Ekki hafa áhyggjur af smáatriðunum, þú leysir úr öllum vanda síðar. S Ekki bíða með að leysa úr litlu málunum því án athugunar geta litil mál orðið ansi stór. V I dag er dagur viðræðna. Vertu óhræddur við að taka og ræða um hvað svo sem pirrar Þig. S Það er rólegur og góður dagur í dag. Ein- hver vinnufélagi þarfnast greiða, vertu opinn fyr- ir hverju sem er. V Það er góður dagur I dag fyrir elskendur. Engin vandamál heldur skemmtilegur og róman- tískur dagur. Q Hrútur (21.mars-19. apríl) #31Ljón ^•7 (23. júlf- 22. ágúst) Bogmaður (22. nóvember-21. desember) S Það er óhollt að sitja við skrifborð allan daginn. Farðu í stuttan göngutúr á hverjum degi. Bæði er það hollt og svo gætirðu kynnst einhverjum skemmtilegum. V Gerðu eitthvað fallegt fyrir ástvin í dag. Jafnvel minnsti verknaður getur gert gæfumun- inn. S Vinnupartí eru ekkert spennandi lengur. Þú þarft ekki að vera vinur allra og þaðan af síð- ur að mæta ef þú vilt það ekki. V Vertu sáttur fyrir hvar þú stendur 1 llfinu. Klapþaðu þér á bakiö fyrir þann árangur sem þú hefur náð. Ef þú átt aukapening þá skaltu eyða honum i sjálfan þiq. S Það er margt að gerast í vinnunni þessa dagana. Þótt þú vildir helst rjúka áfram og klára allt þá er betra að hafa sig hægan. V Ást er yndisleg tilfinning en vertu viss um að þú hugsir skýrt þegar þú tekur ákvarðanir. Naut (20. apríl-20. maí) Mewa (23. ágúst-22. september) Steingeit (22. desember-19. janúar) S Leyfðu þínum sanna persónuleika að koma í Ijós í dag. Vinnustaðurinn er frábær staður til að sýna þokka þinn. V Astin er skær í llfi þínu um þessar mundir, hvort sem þú veist af því eða ekki. Sýndu nær- gætni í að hafna óliklegum elskhugum. S Vinnufélagi I vandræðum þarfnast hjálpar þinnar. Þú munt uppgötva að hann þýr yfir hæfi- leikurp sem þú þarft að þróa betur. V Það er rólegt tímabil að hefjast um þessar mundir og I dag er frábær dagur til endurmlnn- inga. Þegar þú leitar að leiðum til áframhaldandi þroska, hugsaðu um hvernig þú getur hjálþað öðrum. S Taktu þér tíma til að senda gömlum vinnu- félögum stuttan tölvuþóst. Vinaleg kveðja getur haldið mikilvægu viðskiptasambandi á llri. V Þetta er frábær dagur til að hrista upþ I gömlum samböndum. Gefðu öllum tækifæri, hver veit nema þeir hafi breyst rétt eins og þú.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.