blaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 11

blaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 11
blaðið I fimmtudagur, 23. júní 2005 Vísbendingar í verðlaunagátu Frekari vísbend- ingar er að finna á www.nat.is og ef þú veist svarið við gátu vikunnar, sendu það þá á netfangið ernak@vbl.is, eða í pósti á Blaðið, Bæj- arlind 14-16, 201 Kópavogur. í næstu viku verður fjallað um þrjá staði og umhverfi þeirra í sama lands- hluta. 1. Hótelrekstur hófst þar árið 1947 en elsti hluti gamla hússins var frá 1836. 2. Umboðsmenn konungsjarða sátu þar frá árinu 1565 og oft sýslu- menn og aðrir höfðingjar. Á 19. öld sátu þar einnig amtsmenn. 3. Þar er Gvendarbrunnur, einnig kallaður Maríulind á síðustu árum, bergvatnslind sem sprettur undan hraunjaðrinum í túni Skjaldartrað- ar. Þar hafa sumir, sem sjá fleira en almennt gerist, séð heilagri guðsmóð- ur bregða fyrir. Þennan glæsilega Sony Ericsson síma, T630, hlýtur heppinn lesandi í verðlaun fyrir rétt svar við ferðagetraun okkar. Síminn er I boði Sony Ericsson um- boðsaðila á íslandi en hann er bæði einfaldur og þægilegur og auðveldar notandanum að vera I sambandi við fjölskyldu og vini, líka þegar land er lagt undir fót. Sony Ericsson T630 er ný og endurbætt útgáfa af T610, sem var valinn besti farsími í heimi á GSM- ráðstefnunni I Cannes 2004. Síminn mynda- vél og hægt er að tengja Ijósmynd og hringitón við símanúmer I símaskránni og þegar viðkomandi hringir birtist myndin og viðeigandi hringitónn heyrist. Einnig má senda og taka við myndskilaboð- um og smassa. T630 getur tengst öllum blátannarbúnaði en getur einnig tengst tölvu með kapli. Víðimýri var það, heillin Vignir Már Lýðsson hefur ferðast mik- ið um landið en hann átti kollgátuna þessa vikuna því svarið við gátunni frá því í síðustu viku er Varmahlíð og kirkjustaðurinn Víðimýri. Vignir var að vonum ánægður með nýja Sony Ericsson símann sem hann hlaut í verðlaun en hann hyggst nota símann á ferðalögum sínum um landið í sumar. ,J>etta kom sér ákaf- lega vel því nú get ég skipt út símanum sem ég átti.“ Vigni þykir ákaflega gam- an að ferðast um landið og hann hefur farið hringinn oflar en einu sinni. „Ég hef nú ekki ákveð- ið hvert á land ég stefni í sumar en ég á engan sérstakan uppáhaldsstað, enda erfitt að gera upp á milli fallegra staða. Mér finnst skemmti- legt að vera alls stað- ar. Ég ferðast mikið innanlands og finnst það alltaf skemmtilegt. Eitt sinn fór ég upp að Drangjökli og gisti þar í bústað og það var mjög skemmti- legt. Annars er ég svo heppinn að eiga ættingja um allt land svo ég á víða samastað." Meira á www.kirkjan.is/kirkjudagar KIRK]UDAGAR 24.-25. júní 2005 á Skólavörðuholti Á Kirkjudögum gefst tækifæri til að gleðjast og njóta þeirrar fjölbreytni sem kirkjan öll hefur upp á að bjóða og taka þátt í 160 dagskráratriðum Glæsileg opnunarhátíð kl. 20:00 á föstudagskvöldinu Á laugardag kl. 12:00-18:00 Bama- og unglingadagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, m.a. ævintýraskógur, hoppukastalar, risafótboltaspil og Ólympíuleikar undarlegra. Um 40 aðilar kynna starf sitt, m.a. Lúthersk hjóna- helgi, Leikmannaskólinn, Vinir í bata, ALFA, Skálholts- útgáfan, Landsmót æskulýðsfélaga og Hópslysanefnd. 40 málstofur um trú, tilfinningar, lífið, kirkjuna og þjóðmálin: Hverju trúa íslendingar? Trúarbrögðin framlag til friðar! Hvers vegna er betra að búa út á landi? Tónlist og söngur úrýmsum áttum, einsöngvarar, tónleikar, fjöldasöngur og litríkt listalíf. Útimessa við Hallgrímskirkju kl. 18:00 á laugardag. Fjölbreytt kvölddagskrá til miðnættis. Aðgangur ókeypis - allir velkomnir! Tónleikar Sýningar Unglingadagskrá Ævintýraskógur Söngleikir KFUM og KFUK rútan Málstofur Útimessa Barnadagskrá Barnagæsla Bænastundir Kvöldvaka Pílagrímaganga ÞJÓÐKIRKJAN

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.