blaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 12
SHOPL/SA.IS fimmtudagur, 23. júní 2005 I blaðið / eif xSHOPL/SA.IS/ Húsey - falin gersemi á Austurlandi Channel hefur til að mynda tekið upp heimildarmynd í Húsey. Mörg hundr- uð sela kæpa á bökkum hinnar um- lykjandi Jökulsár og synda kringum Húsey svo þá má skoða í návígi, auk þess sem Orn Þorleifsson bóndi er duglegur við að taka að sér munaðar- lausa kópa og bjarga þeim frá sulti. Náin kynni í Húsey er boðið upp á það sem nefnt er „Sumarleyfi með íslenska hestin- um“. Hver gestur hefur eigin hest í allt að viku, og getur riðið út hvenær sem hann vill, í lengri eða skemmri ferðir. Fyrir gesti sem vilja kynnast í Húsey er einstök náttúrufegurð, sem hrifið hefur jafnt erlenda sem innlenda ferðamenn. Þar býðst ferða- mönnum gisting í farfuglaheimili sem er í fallegu gömlu húsi sem gert hefur verið upp og því breytt í gistihús. Náttúruparadís í Húsey er ótrúlegt samspil birtu, dýra- og plöntulífs í paradís fyrir náttúruunnendur. Þar verpa um 30 tegundir fugla og þar er að finna um 175 gróðurtegundir en sjaldgæft er að finna fleiri en 90 tegundir á einum stað á íslandi. Margir heim- ildarmyndagerðarmenn hafa dvalið þar ásamt tökuliði og myndað fallega náttúruna, og National Geographic Staðsetning: í farfuglaheimilinu er vel búið eldhús, þvottavél og setustofa. Gestir ættu þó að hafa í huga að engin verslun er í nágrenninu. Fyrir þá ferðalanga sem ekki aka sjálfir má benda á að þeir geta beðið um að verða sóttir á Egils- staði. Húsey er utan við alfaraleið, um 30 km frá aðalveginum. Til að komast þangað er farið um þjóðveg 926, um 50 kílómetra frá Egilsstöð- um. Frá heimilinu liggja einnig þrjár merktar gönguleiðir; 6,5 km, 14 km og 17 km. Næstu farfuglaheimili eru á Borgarfirði eystri (70 km) og Seyðis- firði (83 km). íslenska hestinum ná- ið á skömmum tíma er Húsey því kjörinn gististaður - jafht fyrir byrjendur sem lengra komna. Gestir geta einnig tekið þátt í daglegu lífi á bænum og geta til að mynda gáð að netum með bóndanum eða gefið dýrunum, og myndað þannig órjúfan- leg tengsl við stórbrotna náttúruna. Svæðið í hættu í Húsey vakna ferðamenn við glað- væran fuglasöng og hreinan og fersk- an sumarblæ. Stóriðjuffamkvæmdir á Austurlandi munu þó að endingu grafa stóran hluta hinnar óspilltu náttúru undir svartan sand því sá aur og sandur, sem Jökulsá flytur með sér frá stórframkvæmdasvæð- um, dreifir sér við árbakkana með þeim afleiðingum að mold og sandur flyst hægt og bítandi inn á landið og gróðurfar er á undanhaldi. Árleg Pílagrímaganga verður farin ff á Þingvöllum að Skálholti dagana 16.- 17. júlí næstkomandi en gist verður á Laugarvatni. Það eru þeir Guðbrand- ur Magnússon framleiðslustjóri og Pétur Pétursson prófessor sem stýra göngunni sem hefst að morgni hins 16. með fararblessun staðarprests. Fyrsta pílagrímagangan var farin í fyrra og segir Pétur Pétusson prófess- or að hún hafi tekist með eindæmum vel. „Það voru um 30-40 manns sem fóru þá saman pílagrímagöngu. Svo var þetta bara eins og upp á mínútu skipulagið því við bara gengum inn í messuna í sól og sumri eftir tveggja daga göngu.“ Endurnæring og trúarstyrking Kristnir menn tóku snemma upp ferðalög til helgra staða sér til end- urnæringar og trúarstyrkingar og AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK DEKKJAHÓTEL VIÐ GEYWIUWl DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI GÚMMÍVINNUSTOFAN EHF. RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍIWI 587 5588 WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS 0TRULEGT VERÐ! FRÁ ÞINGVÖLLUM Á SKÁLHOLTSHÁTÍÐ alveg niður en ekki ausið yfir höfuðið. Þess í stað fóru menn hópum saman í þessa vígðu laug á Laugarvatni og létu skírast. Þar endum við göngu fyrsta daginn með tíðagjörð að forn- um sið og helgisöng. Við byrjum síð- an aftur við sömu laug klukkan sjö daginn eftir með morgunsöng og svo göngum svo sem leið liggur, fram hjá Apavatni og Mosfelli, yfir Brúará og beint inn í kirkju í messu.“ til að minnast ákveðinna atburða og einstaklinga sem gáfu öðrum gott fordæmi með lífi sínu. Pílagrímarn- ir eiga sér sameiginlegt markmið og áfangastað, þeir halda hópinn og aðstoða hver annan. Samfylgdin, lík- amleg áreynsla og hin beina snerting við náttúruna skap- ar heilbrigða samkennd og ánægjulega stemmningu í hópnum. Gangan er þó einnig innra ferðalag hvers og eins þar sem pílagrímur- inn hugleiðir lífsgöngu sína með sjálfum sér um leið og hann styrkist og endumær- ist í bæn og sameiginlegu helgihaldi. Pétur segir að pílagrímagangan frá Þing- völlum sé íhugun á ferð. „í hefðbundinni íhugun situr maður kyrr en við fórum út í náttúruna og göngum sam- an í þögn. Þama eru reglu- legar bænastundir en það er samt gleði og samkennd í hópnum og frjálsræði líka. Hver og einn gengur inn á við og íhugar líf sitt og tak- mark með lífinu." en þar er áð við Vígðu laug að kvöldi fyrra dags. „Þeir sem komu frá þingi árið 1000, eftir að kristnidómurinn var samþykktur, og vom ekki enn skírðir, vildu ekki láta skíra sig í köldu vatni því þá var mönnum dýft Von er á aukinni þátttöku í ár, enda hefur mikið verið spurt um göng- una. Frekari upplýsingar um hana og skráning fer fram í Skálholtsskóla. Þorláksmessa að sumri Gönguna ber upp á Skál- holtshátíð en hún er tengd Þorláksmessu á sumri, sem haldin er í minningu Þor- láks helga í Skálholti. „Þeg- ar var verið að byggja upp Skálholtsstað á sjötta ára- tugnum, sem var kominn í töluverða niðurníðslu, var farið að halda svokallaðar Skálholtshátíðir á Þorláks- messu á sumri, þann 20. júlí. Hátíðirnar voru haldn- ar til að afla stuðnings til að byggja Skálholt upp sem kirkjulega og menn- ingarlega miðstöð," segir Pétur. Gengið er svokallaða Biskupaleið en áður fyrr fóru biskupar þessa leið frá Skálholti niður að þingi og svo heim aftur. Pílagrím- arnir gista á Laugarvatni

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.