blaðið - 29.06.2005, Page 1

blaðið - 29.06.2005, Page 1
Hive.is Þjónustusími 414 1616 Hive Lite Þráðlaust internet 4GB niðurhal 8Mb tenging Ellen og KK ferðast um landið 3.990 ÁMÁNUÐI* Duran Duran - bls. 24 / Uppáhalds Mturinn á heimilinu - bls. 20 Skýrari, mýkri og kyssiiegri varir -bls.14 wL - aðdáendur spenntir fyrir morgundeginum -bh.26 Ritstjórnar- og auglýsingasimi: 510 3700 • bladid@vbl.is 37. TBL. 1. ARG, ÓKEYPIS Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur Sími S10-3700 bladid(g)vbl.is ISSN 1670-5947 FRJALST OC OHAÐ MIÐVIKUDAGUR, 29. JUNI. 2005 Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun - bls. 2 í< Samstarf verði hag- kvæmara - bls. 2 niu isienaingar ætla að fylgjast með tilraunum NASA - bls. 6 Sýknudómi í hópnauðgunarmáli hnekkt - bls. 8 Stoke - bls. 22 heimila og fyrirtækja alla virka daga blaðið= Lögreglunni hefur áskotnast nýtt vopn gegn ökuþórum landsins en það gengur undir nafninu „Eyewitness". Tækið tekur hreyfi- myndir af ökumönnum þegar þeir eru stöðvaðir við umferðareftiriit, auk þess sem hljóðupptaka næst af vettvangi. Með þessu auðveldast mjög að sanna glæpinn á ökumenn, sem sjá sér ekki fært að fara eftir þeim lögum og reglum sem gilda, svo lítils virði er að malda í móinn. Þeir Stefán og Arnar lögreglumenn segja að einnig eigi „Eyewitness" eftir að auðvelda umferðareftirlit í minni embættum þar sem tækið virkar sem vitni. Nánar á blaðsíðu 4. Kaup á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar: Kaupþing sagt að baki kauptilboðum í SPH - Rætt um að 60% stofnfjárhluta í SPRON séu þegar seld Heimildarmenn Blaðsins í fjármála- heiminum telja að það sé KB banki sem standi að baki kauptilboðum í stofnfjárhluti í Sparisjóði Hafnar- fjarðar (SPH). Miklar vangaveltur hafa verið um fréttir þess efnis að kaupsamningar hafi verið gerðir um kaup á 30 stofnfjárhlutum í SPH, en þeir eru alls 47 talsins. Er sagt að hlutimir, sem eru á 200.000 krónur að nafnvirði, hafi verið keyptir á 48 milljónir hver. Fjórmálaeftirlitið hefur grennslast fyrir um það undanfarna daga hvort fregnir þessar eigi við rök að styðjast og hver standi þar að baki, ef rétt reynist. Hefur deila staðið við hina nýju stjórn SPH vegna þess, en stjóm- in efast um heimildir eftirlitsins til slíkrar rannsóknar hjá einstökum stofnfj áreigendum. Uppkaup á hlutum í SPH leiða hug- ann að átökunum um SPRON árið 2002, en nú er um það hvíslað að þeg- ar sé búið að selja um 60% stofnfjár- hluta í SPRON. Því má enn vænta verulegra umskipta á vettvangi fjár- málastofnana á næstunni. Blaðinu hefur ekki gengið betur en Fjármálaeftirlitinu að fá nokkuð stað- fest um hin meintu kaup í SPH. Á hinn bóginn er mikið um málið rætt í fjármálalífinu og nefna flestir KB banka til sögunnar sem sennilegasta kaupandann. Blaðið reyndi að ná tali af stjórnendum KB banka vegna þessa en hafði ekki órangur sem erf- iði. Einn heimildarmannanna orðaði það sem svo að ef menn beittu útilok- unaraðferðinni sæti KB banki eftir. „Þetta er ekki Landsbankinn, ekki íslandsbanki, ekki Burðarós, ekki Straumur, ekki Sparisjóður vélstjóra og ekki SPRON, þannig að það er afar auðvelt að álykta að KB banki standi hér að baki.“ í þessu samhengi nefna menn til sögunnar Sparisjóð Kaupþings og telja beinast liggja við að honum sé beitt í þessum uppkaup- um. Við sameiningu þriggja sparisjóða á Vestjjörðum á sínum tíma losnuðu tvö sparisjóðsleyfi. Annað keypti SPRON og notar fyrir Nb.is, en hitt keypti Kaupþing á sínum tíma og nýtti til þess að hafa beinan aðgang að Reiknistofu bankanna. Það var um- deilt og var kært en óður en sú kæra var til lykta leidd var KB banki kom- inn til sögunnar og málið því dautt. Með tilkomu viðbótarlaganna um sparisjóði var sparisjóðum leyft að sameinast, en lögin torvelduðu jafn- framt yfirtöku annarra fjórmálafyr- irtækja á sparisjóðum. Sparisjóður Kaupþings getur því „sameinast" sparisjóðum nær hindrunarlaust, án þess að um formlega yfirtöku sé að ræða. Hér og nú: Eiríkur enn að störfum Orðrómur gekk um það í gær að Eiríki Jónssyni hefði verið sagt upp störfum ó vikuritinu Hér og nú vegna umdeildrar um- fjöllunar þess um tónlistarmanninn Bubba Morthens og fleiri. Að sögn Eiríks er þessi saga úr lausu lofti gripin. Hann hafi verið fenginn til þess að fylgja hinu nýja vikuriti 365 prentmiðla úr hlaði og muni ljúka því starfi sem honum hafi verið falið. Á spjallþráðum netsins fóru menn mikinn í umræðu um efnistök Hér og nú af þessu máli, sem og þætti DV í því. Þar var mjög hvatt til þess að neytendur sniðgengju miðlana tvo og segðu jafnframt upp viðskiptum við móðurfyrirtæki 365, Og fjarskipti. Sams konar skilaboð bárust í veruleg- um mæli í SMS-skilaboðum manna ó milli. Blaðið veit dæmi þess að viðskipta- vinir Og Vodafone hafi slitið samning- um við það af þessu tilefni en Gísli Þorsteinsson, talsmaður Og Vodaf- one, segir að þar á bæ hafi menn ekki orðið varir við neinn kipp í uppsögn samninga við fyrirtækið. Sala Búnaðar- banka enn gagnrýnd Gagnrýni háskólamanna á sölu Bún- aðarbankans og þátt þýska bank- ans, Hauck und Aufháuser, í henni minnkar ekki þrátt fyrir að hann hafi svarað athugasemdum Vilhjálms Bjamasonar aðjúnkts um hana. Þar sagði að viðskiptin hafi verið bókuð í ársreikningi bankans, en í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi sagði Guðmundur Ólafsson hagfræðingur að svör bankans væru vægast sagt óljós. Hann kallaði eftir skýrari svör- um, enda ættu allir samningar að vera uppi á borðinu í viðskiptum sem þessum. KodakRAFHLÖÐUR fyrir ALLAR myndavélar... ...og margt fleira Ha\í Peteríen

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.