blaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 8
8 erlent
m,
miðvikudagur, 29. júní 2005 I blaðið
Sýknudómi í hópnauðgunar-
máli hnekkt
bjornbragi@vbl.is
Hæstiréttur í Pakistan afturkallaði í
gær sýknudóm áírýjunardómstóls yf-
ir fimm mönnum og skipaði að þeir
yrðu handteknir á ný. Mennimir eru
sakaðir um að hafa átt aðild að hóp-
nauðgun á konunni Mukhtar Mai,
árið 2002. Mai, sem hafði áfrýjað
sýknudóminum, kvaðst hæstánægð
með úrskurð Hæstaréttar, sem fyr-
irskipaði að mennirnir yrðu í haldi
lögreglu uns réttað yrði yfir þeim á
ný. Mennirnir höfðu verið sýknaðir á
þeirri forsendu að skortur væri á sönn-
unargögnum og vakti það mikla reiði
um alla heimsbyggðina, en málið hef-
ur verið í kastljósi fjölmiðla að und-
anfórnu. Hæstiréttur mun því rétta
núna yfir 14 mönnum, en til viðbótar
við mennina fimm hafði einn verið
dæmdur í lífstíðarfangelsi og átta aðr-
ir sýknaðir í upphaflegu réttarhöldun-
um. Ekki hefur verið ákveðið hvenær
nýju réttarhöldin fara fram.
Deilt á mannréttindamál í Pak-
istan
Nauðgunin var upphaflega fyrirskip-
uð af þorpsráði í heimahéraði Mai,
vegna meintra hjúskaparbrota bróð-
ur hennar. Átti hann að hafa sést
með konu af valdameiri ættflokki.
Síðan Mukhtar Mai var nauðgað hef-
ur hún barist fyrir kvenréttindum og
aukinni menntun stúlkna í heimabæ
sínum. Nýlega hugði hún á ferð til
Bandaríkjanna til að ræða mál sitt en
forseti Pakistans, Pervez Musharraf,
meinaði henni að fara úr landi af ótta
við að hún myndi skaða ímynd Pak-
istans. Hún fékk þó vegabréf sitt á ný
á mánudag og er frjáls ferða sinna.
Musharraf forseti hefur ítrekað að
mál Mai sé ekki einkennandi fyrir
Pakistan og landið sé „ekkert verra
en önnur þróunarlönd." Gagnrýnend-
ur á félags- og réttarkerfi Pakistans
segja mál Mukhtar Mai hins vegar
dæmigert fyrir skelfilega meðferð á
konum í Pakistan, sérstaklega í af-
skekktum héruðum landsins.
Sláandi tölur yfir nauðganir
Mukhtar Mai segist hafa hugleitt þná
kosti eftir að henni var nauðgað. „E:
QUELLE
BuxurI
kr. 9901
Bolir f
kv. 690J
Peysur.
kr. 1A90\ Kjolar
kr. 1.490
g>t6* cq
nút"**!
Yfirhafnirf
kr. 2.290 I *
'víVÆS
Draktir f
kr. Z.2901
Verslua Balvegí 2 • Kópavagi • Sími 564 2600 • wm. quelle.is
hefði getað framið sjálfsmorð með því
að hoppa ofan í brunn, eða grátið það
sem ég ætti eftir ólifað eins og hvert
annað fórnarlamb í svona málum. Ég
gat líka barist gegn hinu miskunn-
arlausa þorps- og ættflokkakerfi og
hinu óvægna viðhorfi samfélagsins."
Fátítt er að konur í Pakistan kæri
til lögreglu kynferðislegt ofbeldi og
annað misrétti sem þær gjarnan
verða fyrir. Fyrstu níu mánuði árs-
ins 2004 voru 320 nauðganir kærðar
í Pakistan en á sama tíma voru 350
hópnauðganir kærðar. Aðeins þriðj-
ungur þeirra nauðgana sem kærðar
voru varð lögreglumál og aðeins 39
manns voru handteknir.
Erfingi
Wal-Mart deyr
í flugslysi
John Walton, sonur Sams Waltons,
stofnanda verslunarkeðjunnar Wal-
Mart, lést á mánudagskvöld í flug-
slysi í Wyoming-fylki í Bandaríkjun-
um.
í marsútgáfu Forbes-tímaritsins
var Walton sagður 11. ríkasti mað-
ur Bandaríkjanna og eignir hans
metnar á 18,2 milljarða bandaríkja-
dala (tæpa 1.200 milljarða íslenskra
króna).
Walton var sjálfur að fljúga vélinni,
en hann ku hafa verið mikill flug-
áhugamaður. Þar sem flugvél hans
var óskráð, heimasmíðuð einka-
flugvél er óvíst að tildrög slyssins
verði rannsökuð til hlítar þar sem
ekki leikur grunur á að um annað
en slys hafi verið að ræða. Vitað er
að flugvélin brotlenti skömmu eftir
flugtak. John Walton var 58 ára og
lætur eftir sig eiginkonu og uppkom-
inn son.
'g
Prinsessan hlaut nafnið fllexia
Nýfæddri dóttur hollenska krónprins-
ins, Vilhjálms Alexanders, og konu
hans, Maximu, hefur verið gefið
nafnið Alexía Júhanna Marcella Lár-
entína. Krónprinsinn faðir hennar
sagði tilviljun hafa ráðið nafngiftinni
og neitaði því að hún væri nefnd eftir
hálfsystur hans, sem faðir hans eign-
aðist utan hjónabands.
Onnur hákarlaárás á Flórída
16 ára drengur var á mánudag bit-
inn illa af hákarli með þeim afleið-
ingum að læknar þurftu að fjarlægja
hægri fót hans. Drengurinn varð
fyrir miklu blóðtapi eftir árásina og
liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi,
en er ekki talinn í lífshættu. Hann
hafði verið ásamt félögum sínum að
veiða úti fyrir ströndinni í mittisdýpi
þegar hákarlinn gerði atlögu að hon-
um. Aðeins eru tveir dagar síðan 14
ára stúlka lét lífið á Flórída eftir að
hákarl réðst á hana. Átti sú árás sér
stað tæpa 130 kílómetra frá staðnum
þar sem árásin á mánudag varð. Há-
karlaárásir eru tíðari á sumrin en á
öðrum árstímum þar sem hákarlar
synda þá mun nær landi en ella í leit
að fæði. Ákveðið hefur verið að auka
allt eftirlit á ströndum Flórída og
fjölga gæslumönnum í kjölfar atburð-
anna.
200 ár frá sjó-
orrustunni við Trafalgar
Bretar héldu upp það í gær að 200 ár
eru liðin frá sjóorrustunni við Trafalg-
ar, sem háð var 21. október 1805. Af
því tilefni settu þeir á svið mikla og
glæsilega sjóorrustu, en 230 skip frá
35 löndum tóku þátt í henni. Orrust-
an við Trafalgar markaði upphafið
að endalokum veldis Napóleons en
í henni sigruðu Bretar sameinaðan
flota Frakka og Spánverja.
Skipuleggjendur hátíðahaldanna
vildu forðast alla þjóðrembu og létu
því „rauða liðið" mæta „bláa liðinu"
í stað þess að tala um raunverulegu
löndin. Telja margir að varkárni
Breta hafi stafað af því að þeir vilji
ekki hreyfa frekar við Frökkum vegna
yfirstandandi deilna milli ríkjanna
um framtíð Evrópusambandsins.
Útsalan hefst á morgun kl: 10
Opnunartími
mán - föst. 10-18
laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi
Sími 55í ííii