blaðið - 29.06.2005, Síða 24

blaðið - 29.06.2005, Síða 24
miðvikudagur, 29. júní 2005 I blaðið KK og Ellen. Eru á tónleikaferð um landið. Ellen og KK ferðast um landið Svartir englar til Hollands „Þetta er óneitanlega gaman. Ég er alveg rólegur, svo sér maður bara til með framhaldið," segir Ævar Örn Jósepsson, en hollenskir útgefendur börðust nýlega um útgáfuréttinn á glæpasögu hans, „Svörtum englum“. Eftir níu daga uppboð hreppti Signat- ure hnossið en það forlag gefur meðal annars út verk Amaldar Indriðason- ar og Kristínar Maiju Baldursdóttur. í Þýskalandi hefur hið þekkta forlag, Random House, tryggt sér réttinn að „Svörtum englum“. Ævar Örn segir útgáfu erlendis skipta máli: „Slíkt gefur peninga í budduria og flýtir fyr- ir að ég geti skipt um vinnu og helgað mig ritstörfum." Hann er að skrifa nýja sakamálasögu sem mun væntan- lega koma út fyrir jólin. Hún gerist á Kárahnjúkum þar sem morð er fram- ið. Meira vill Ævar Örn ekki gefa upp að svo komnu máli. Þegar Ævar er spurður af hveiju hann hafi byijað að skrifa glæpasögur segir hann: „Þegar ég var gutti var ég að rembast við að skrifa en svo kom að því að ég hafði vit á að skrifa eitt- hvað sem ég vildi sjálfur lesa. Þannig varð „Skítadjobb", fyrsta glæpasaga Ævar Örn Jósepsson. „Svo kom að þvi að ég hafði vit á að skrifa eitthvað sem ég vildi sjálfur lesa.“ mín tO.“ Hann segir velgengni Arnald- ar Indriðasonar á engan hátt virka truflandi. „Við erum ólíkir höfundar og það er frekar að hann geri manni gagn en hitt,“ segir Ævar Órn. ■ „Þetta er í fyrsta skipti sem við Ellen fórum saman í tónleikaferð en áður höfum spilað nokkur lög saman. Þetta er því vissulega tilhlökkunarefni,“ segir tónlistamaðurinn KK en hann mun ásamt systur sinni Ellen Kristjánsdóttur ferðast um landið þessa vikuna. í kvöld verða þau í Borgamesi þar sem þau leika í Borgameskirkju og hefjast tónleikamir klukkan 20. 30. Síðan liggur leiðin til Akureyrar, Siglufjarðar, Miðfjarðar, Hólmavíkur og síðasta ferðin er til Hóla þar sem þau skemmta í Hólakirkju næstkomandi mánudag. „EUen gaf út sálmaplötu í fyrra sem fékk metsölu og við flytjum lög af henni. Einnig flytjum við lög eftir mig og lög sem ég er nýbúinn að semja og hafa ekki enn komið út á plötu. Svo lög sem okkur þykir vænt um og gaman að flytja, eins og til dæmis Moon River,“ segir KK. Aðspurður hvort munur sé á því að leika í Reykjavík eða úti á landi segir hann: „Það er öðmvísi að spila alls staðar, það fer eftir samsetningu fólks á hveijum stað og það er ekki á hendi neins að ráða því. Engir tónleikar era eins.“ Á slóðum Don Kíkóta Meistaraverk Cervantes, Don Kíkóti, kom út fyrir 400 árum og sannkallað Don Kíkóta æði hefur gripið um sig á Spáni. í tilefni afmælisins hefur verið gerð sérstök ferðamannaleið sem fylg- ir ævintýram Don Kíkóta. Leiðin er um 2.500 kilómetrar og liggur frá Tol- edo til Cuenca. Borgir á þessu svæði eru 146 og margar þeirra koma fyrir í skáldsögunni. A þessu svæði era fjöl- margar vindmyllur, en einn frægasti kafli bókarinnar segir einmitt frá bar- daga Don Kíkóta við þær. klakavelar Verð 28.000 kr. 0 ÍS-hÚSÍð 566 6000 Útilistaverk í Kvosinni Fimmtudagskvöldgöngumar sem menningarstofnanir borgarinnar hafa staðið fyrir í sumar hafa mælst mjög vel fyrir og verið vel sóttar af fólki á öllum aldri. Næsta ganga verður fimmtudags- kvöldið 30. júní og ber hún yfirskrift- ina „Útilistaverk - augljós og falin“. Skoðuð verða útilistaverk í Kvosinni og næsta nágrenni, bæði þau sem setja sterkan svip á miðborgina og þau sem vart era sýnileg, en hafa áhrif á það hvemig við upplifum um- hverfi okkar og skerpa athygli okkar og sýn á umhverfið. Leiðsögumað- ur er Ólöf K. Sigurðardóttir, deild- arstjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur. Auglýsingadeild 510-3744 I ?! Þrjár íslenskar barna- bækur til Litháens Nýverið var samið við litháíska bókaforlagið Zara um útgáfu á þremur íslenskum verðlaunabók- um fyrir böm: „Sögunni af bláa hnettinum", eftir Andra Snæ Magnason með myndlýsingum Ás- laugar Jónsdóttur, „Jóni Oddi og Jóni Bjama“, eftir Guðrúnu Helgadóttur og „Engli í Vesturbænum“, eftir Kristínu Steinsdóttur með myndlýsingum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur. Bækumar era allar gefnar út hjá Eddu útgáfu. Andri Snær Magnason hlaut íslensku bókmennta- verðlaunin fyrir „Söguna af bláa hnettinum", auk fiölda annarra verðlauna. Aður hefur bókin verið seld til Frakklands, Dan- merkur. Svíþjóðar, Fære; Andri Snarr .Vlagnáson $0.00. n af í) bláa linettinum 'Tn''C ' (P g Jóntdóttir myndlýi Græn- reyja, u lands, Eistlands, Spánar, Ítalíu, Júgó- slavíu, Tælands, Kóreu, Grikklands, Ungveijalands og Rúmeníu. Wallander leitar morðingja Hjá Máli og menningu er komin út ný spennu- saga eftir Henning Mankell, „Fimmta kon- an“, í þýðingu Vigfusar Geirdal. Stjömubjarta nótt í september fer hæglát- ur gamall maður, fugla- skoðari og tómstunda- skáld, út á engi til að fylgjast með brottfór farfuglanna frá Skáni. Þegar Kurt Wallander lögregluforingi kem- ur á vettvang hangir maðurinn stjaksettur til dauðs á oddhvöss- um bambusstöngum og krákur hnita hringi ofan við hann. Skömmu seinna hverfur blómasali sporlaust. Hann finnst úti í skógi, einnig líflátinn. Hvers vegna hafa þessir rosknu hæglætismenn verið myrtir? Kurt Wallander og félögum hans í lögreglunni í Ystad verður fljót- lega ljóst að morðin tengjast og snúast um hefndir. En aldrei fyrr hefur Wallander átt í höggi við svo út- smoginn og kaldrifj- aðan morðingja sem veitist auðvelt að afvegaleiða lögregl- una... Henning Mankell er einn vinsælasti rithöfundur heims um þessar mundir. Hann hefur að auki hlotið margvísleg verðlaun fyrir bækur sínar og eftir þeim hafa verið gerðar íjölmargar kvikmyndir. „Fimmta konan" er sjötta bókin sem kemur út á íslensku í þeirri röð glæpasagna Mankells sem hafa Kurt Wallander lögregluforingja sem aðalpersónu. Sagan „Jón Oddur og Jón Bjarni" hefur komið út víða um lönd - í Dan- mörku, Finnlandi, Færeyjum, Nor- egi, Svíþjóð, Þýskalandi og Hollandi. Bókin er ein vinsælasta barnabók sem komið hefur út hér á landi og fyrir hana hlaut Guðrún Barnabóka- verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur en auk þess hefur Guðrúnu hlotnast margvíslegur heiður á ferli sínum. „Engill í Vesturbænum" er einnig margverðlaunuð bók og er skemmst að minnast þess að bókin hlaut á síð- asta ári Norrænu bamabókaverðlaun- in. Litháen er fjórða landið sem verk- ið ferðast til en áður hefur rétturinn verið seldur til Svíþjóðar, Færeyja og Grænlands. a Skáldsaga Saddams bönnuð í Jórdaníu Fjórða skáld- saga Sadd- ams Hussein hefur verið bönnuðíJórd- aníuenstjóm- völd þar í landi segja að útgáfa bókarinnar myndi skaða s a m b a n d Jórdaníu og íraks. Búið var að prenta 10.000 eintök af bókinni og dóttir Sadd- ams, Raghad, Saddam Hussein. Stjómvöld i Jórdaníu hafa bannað útgáfu á fjórðu skáldsögu hans. sem er búsett í Jórd- aníu ætlaði sér að hafa umsjón með kynningu á henni. Skáldsagan fjall- ar um hugrakkan mann sem kemur í veg fyrir að útlendingar hertaki bæ hans. Bókin kom út á sínum tíma undir dulnefni en í nýrri útgáfu stað- festir Raghad að faðir sinn sé höfund- urinn. Titill bókarinnar, í lauslegri þýðingu, er „Komið ykkur héðan, ver- ið þið bölvaðir!" Að sögn lauk Sadd- am við hana um það leyti sem Banda- ríkin réðust inn í írak.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.