blaðið - 04.07.2005, Síða 2

blaðið - 04.07.2005, Síða 2
2 innlent mánudagur, 4. júlí 2005 I blaðið Karlmaður lést í fjallgöngu Sextugur maður fannst látinn á Ketillaugarfjalli í Homafirði um miðjan dag á laugardaginn. Björg- unarsveit Homafiarðar var kölluð út til að leita að manninum sem ætlaði að ganga á tind Ketillaugar- fjalls í Nesjum. Haft var samband við björgunarsveitina um kl. 14 og hún beðin um að leita mannsins þeg- ar hann hafði ekki skilað sér heim á tilteknum tíma. Björgunarsveitar- menn fundu manninn látinn efst í fjallinu þar sem hann hafði hrapað. Ekki er ljóst hvort maðurinn hafi fengið aðsvif og fallið af þeim sökum. Um tveggja og hálfs tíma ferð er upp að slysstaðnum. Hinn látni var bú- settur á Höfn. Tvær nauðganir og nokkur fíkni- efnamál Kona á þrítugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar á Höfn að morgni laugardags. Maður var handtekinn í kjölfarið, en eftir yfirheyrslu var honum sleppt. Ennfremur kærði 15 ára stúlka nauðgun á færeyskum dögum í Ólafsvík um helgina. Taldi hún að sér hefði verið byrlað ólyfjan og henni síðan nauðgað. Tvær aðrar stúlkur tilkynntu lögreglu líka að þær teldu að þeim hafi verið byrlað einhveiju álíka. í gær hafði enginn verið haldtekinn vegna málsins. N okkuð fannst af fíkniefnum á fær- eyskum dögum í Ólafsvík enda virkt eftirlit alla helgina. ■ Aurskriða rauf Ijósleiðara Ljósleiðari Símans á Austurlandi rofnaði um hádegið í gær að því er talið er vegna aurskriðu á milli Reyð- arfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Bilunin hafði engin áhrif á talsímasamband Símans á þessu svæði en aftur á móti lá útsending Ríkisjónvarpsins niðri á Fáskrúðsfirði,Stöðvarfirði,Breiðdals- vík og Djúpavogi vegna þessa. Þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi var enn leitað leiða til að tengja sambönd um aðrar leiðir enda lá fyrir að við- gerð á ljósleiðaranum myndi dragast vegna gífurlegra rigninga. ■ Breskir fjölmiðlar: Mikið fjallað um vandræði Baugs Breskir fiölmiðlar hafa sýnt ákærum á hendur núverandi og fyrrverandi forsvarsmönnum og eigendum Baugs mikinn áhuga. Sunday Telegraph greinir ítarlega frá málinu og nefn- ir sérstaklega að einn ákæruliður snúist um kaupin á 10-11, sem Jón Ásgeir Jóhannesson er sagður hafa keypt á eigin vegum og síðan selt Baugi með hagnaði. Fjölmargir fjölmiðlar hafa fjallað um málið, þar á meðal Financial Tim- es, The Times, Daily Mail og fleiri. Er greint frá eðli yfirvofandi ákæra og alvarleika þeirra en um leið hinu að sakborningarnir neiti allri sök og að Baugur standi að baki þeim. Um leið er sagt frá því að málið setji flest viðskipti Baugs að minnsta kosti í bið- stöðu. Baugur hefur undanfarna daga fengið fjölda fyrirspurna frá ýmsum samstarfsaðilum á Englandi og er fundarhald fyrirhugað allra næstu daga til þess að upplýsa menn um stöðu mála og framhaldið eftir því sem kostur er. í breskum fjölmiðlum hafa fáir viljað láta hafa nokkuð eftir sér um málið, en milljónamæringur- inn Tom Hunter, sem hefur ýmislegt sýslað með Baugi, kvaðst aldrei hafa kynnst neinu misjöfnu í viðskiptum sínum við Jón Ásgeir og vildi engu slæmu upp á hann trúa. Forsvarsmenn Baugs undirstrika í viðtölum að rannsókn Ríkislögreglu- stjóra hafi ekki beinst að fyrirtækinu sjálfu og eigi ekki að hafa áhrif á starfsemi þess né stöðu. Somerfield-tilboðið úr sögunni? Bresku fjölmiðlarnir greina frá því að vegna þessara vandræða hafi Jón Ásgeir Jóhannesson boðist til að draga Baug út úr tilboðsgerð í bresku verslunarkeðjuna Somerfield og er salan sögð í uppnámi vegna yfirvof- andi ákæru á hendur Baugsmönn- um. Baugur og þrjú önnur fyrirtæki gera nú sameiginlega tilraun til þess að kaupa keðjuna. Annar hópur, Li- vingstone-bræður og japanski bank- inn Nomura hefur einnig augastað á Somerfield. í viðtali við Ríkisútvarpið í gær bar Hreinn Loftsson stjómarformaður Baugs, þessar fullyrðingar til baka, Baugur hygðist halda sínu striki hvað tilboðið í Sonmerfield áhrærði. Reynist grunur breskra fjölmiðla réttur væri það í annað sinn sem rannsóknin truflaði fjárfestingar Baugs þar ytra. Yfirtaka Arcadia var komin á lokastig í ágúst 2002 þegar rannsóknin hófst, en viðsemjandinn Philip Green sleit umræðunum þar sem hann taldi Jón Ásgeir hafa reynt að leyna sig því að lögregla hefði far- ið inn í fyrirtækið. Baugsmenn segja að slit viðræðnanna hafa kostað fyrir- tækið tugi miljarða króna. Sunday Times segir óvissu ríkja um hvort bankar séu fúsir til lánveit- inga vegna kaupanna á meðan óljóst sé hvernig dómsmáli yfir Jóni Ásgeiri lykti. Talið er að Baugur leggi fjórð- ung tilboðsfjárins í Somerfield fram, en hún er fimmta stærsta matvæla- keðja Bretlands og rekur ríflega 1.200 verslanir. Ræktun á erfðabreyttu byggi hafin hér á landi Gæti komið niður á sölu íslenskrar náttúruvöru Samkvæmt skoðanakönnun Gallup er mikill meirihluti íslendinga eða um 65%, andvígir framleiðslu og ræktun á erfðabættum matvælum. Hugmyndir eru uppi hér á landi um ræktun á erfðabættu byggi þó ekki til manneldis heldur til lyfjaframleiðslu. Þingmenn Vinstri Grænna telja að frekari umræðu sé þörf um málið, og benda á að framleiðsla á erfðabreyttu korni hér á landi gæti komið niður á sölu á því sem Vinstri Grænir kalla náttúruvörur svo sem íslensku lamba- kjöti. Gagnrýna kornræktun utan- húss í maí síðastliðnum fékk fyrirtækið ORF-h'ftækni leyfi til ræktunar á erfðabættu byggi hér á landi. Að sögn þingmanna VG mun sú framleiðsla fara fram utanhúss og eru þingmenn mjög gagnrýnir á þessar hugmynd- ir. Að sögn Þuríðar Bachman þarf mun meiri umræðu um málið hér á landi og áður en farið er af stað með umfangsmikla framleiðslu á erfða- breyttu komi hér á landi þarf að kom- ast að niðurstöðu um það hvaða áhrif slík framleiðsla mun hafa. Að sögn Kolbrúnar Halldórsdóttur liggja held- ur ekki frammi nógu umfangsmiklar rannsóknir um það hvort hið erfða- bætta kom geti blandast hefðbundn- um tegundum hér á landi, svo sem melgresi. Vill enga erfðabreytta ræktun á íslandi Kolbrún lýsti því yfir í samtali við Blaðið í gær að hún vildi helst að því væri lýst yfir að landið væri allt frítt við erfðabætta ræktun. Hún bendir á með Þuríði að rætkun á erfðabreytt- um matvælum og þar á meðal ræktun á erfðabreyttu byggi gæti haft vera- leg áhrif á ímynd íslenskrar vöra. Sem dæmi benda þær á að mikið af kindakjöti væri nú selt í lúxusversl- anir í Bandaríkjunum. Þær segja að ef kaupendur að lambakjöti myndu tengja rætkun á erfiðabættu komi hér á landi við sauðfjárræktun gæti það endað illa. Ennfremur segja þær að ræktun á hreinum náttúruvörum væri vaxandi grein innan landbúnað- arins hér á landi, og að íslendingar ættu frekar að sækja í auknum mæli inn þær brautir. g Á batavegi Starfsmaður Landspítala Háskóla- sjúkrahúss er veiktist af hermanna- veiki í lok maí hefur nú verið útskrif- aður af sjúkrahúsinu. Maðurinn sem talið er að hafa smitast af veikinni á ferðalagi um Ítalíu lá á Landsspítal- anum í rúman mánuð. Lengi vel var hann talinn í lífshættu og sem dæmi um það var honum haldið sofandi í rúmar þrjár vikur. Hann er nú í end- urhæfingu og eru batahorfur mjög góðar. Einkenni hermannaveiki eru ekki ósvipuð lungnabólgu og er eldra fólk sérstaklega viðkvæmt. Blómleg menning á Akureyri Sumarsýning Listasafnsins á Akureyri ber yfirskriftina „Skrýmsl". Fjórar myndlistarsýningar voru opn- aðar á Akureyri síðastliðinn laug- ardag, og því hægt að fullyrða að menningarlífið hafi blómstrað þar um helgina. Á Listasafninu gaf að líta sýningu um Skrýmsl og Svein- björg Hallgrímsdóttir sýndi trérist- ur í gallerí „Svartfugl og hvítspói". Kristján Pétur var með „tónfræði fyrir að(fram)komna“ í Deiglunni og í Ketilhúsinu gaf að líta kínverska list. Loks opnuðu listakonur sýning- una „Undir Hannesi" í sýningarsal Jónasar Viðars, undir Listasafninu. Versladu við traustan adila! - íslensk gæðaframleiðsla • viðhaldsfrítt efni • endalausir möguleikar • góð og traust þjónusta • stuttur afgreiðslufrestur OPID: virlca daga kl. 9-18 laugardaga kl. 12-16 SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJARSLÓÐ7 • SÍMI 51 I 2203 • www.segiagerdin.is O Heiðskírt (3 Lóttskýjað skýjað ^AIskýjað /Y Rigning, lítilsháttar //, Rlgnlng Súld Snjókoma Slydda Snjóél skúr Amsterdam 17 Barcelona 26 Berlín 24 Chicago 22 Frankfurt 26 Hamborg 28 Helsinki 20 Kaupmannahöfn 22 London 16 Madrid 32 Mallorka 30 Montreal 22 New York 22 Orlando 26 Osló 21 Parls 20 Stokkhólmur 19 Þórshöfn 12 Vín 27 Algarve 26 Dublin 16 Glasgow 13 9° //A % Lxt M/A / // m 1 9 /// 13ZJ •K5 Veöurhorfur í dag Veðursíminn 102 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands «€> É 11 “4© / ///,.- 12° // 'W" í 3 Á morgun 1Z°(3 15° fy 13° 12°® x / / y 10**

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.