blaðið - 04.07.2005, Side 17

blaðið - 04.07.2005, Side 17
blaðid I mánudagur, 4. júlí 2005 bílar 17 C andres.magnusson@vbl.is Þegar maður sest upp í Chrysler Se- bring hrýslast um mann einkennileg tilfinning sem er eiginlega ekki að finna í öðrum bílum en skilgetnum afiívæmum Detroit. Bandaríkjamenn hafa annan smekk á bílum en Evrópu- búar, en hann er síður en svo verri. Kannski það megi bera það saman við matargerðarlistina, en einhvers staðar las ég að Evrópubúar kynnu kannski að elda betur en Bandaríkja- menn, en Kanarnir væru miklu flink- ari í að borða. Sebring er einhversstað- ar mitt á milli þess að vera sportbíll og íjölskyldubíll, en hægindin minna að mörgu leyti meira á forstjórabíl. Akstureiginleikar Það er afar þægilegt að aka Sebring hann lætur mjög vel að stjórn og stýr- ið er næmt án þess að vera ofurvið- kvæmt. Maður finnur sæmilega fyrir hestöflunum undir húddinu en sjálf- skiptingin er næsta sportleg og vill helst ekki skipta fyrr en komið er vel yfir 5.000 snúninga. Þegar pinninn er kitlaður í kyrrstöðu er lagt af stað með töffaralegu dekkjavæli sem drif- ið lagfærir snarlega þannig að örygg- ið er í góðu lagi. 11 Kj | ■ f* I (i l f r o r * i L g" % 1 1 r-i HAs % i m Vél og drif Það er hægt að fá tvær vélargerðir í Sebring, hefðbundna 2 lítra vél eða 2,7 lítra V6. Það var hin síðarnefnda sem reynd var og hún olli engum vonbrigðum. Viðbragðið er ágætt af sjálfskiptum bíl að vera, en gæti verið betra. Skiptingin er eitt af því fáa, sem kvarta má undan. Líkt og tíðkast vestra eru gírarn- ir á einni braut en það er of lítið viðnám milli skiptinga og elckert við gírstöngina sem gefur til kynna í hvaða gír maður hefur ratað. Það sést í mælaborð- inu, en maður vill fá að sjá það við gír- stöngina líka því það er allt of auðvelt að setja í hlutlausan þegar á að bakka eða fara í beinskipt- ingu þegar á að setja í almennan áframgír. Útlit Sebring er ein- staklega vel hannaður að utan, rennileg- ur og fallegur. Rúðurnar eru stórar og skyggðar en póstarnir milli fram- og aftur- dyra eru svartir þannig að ásýndar er bfilinn enn sportlegri en ella. Fyrst og fremst er það þó framrúðan, sem setur mark sitt á bílinn. Hún er afar stór og gefur Sebring nánast ítalskt útlit. Að öðru leyti eru stuðaðar, hlið- arlistar og grill samlit bílnum sem gerir hann heilsteyptari og jafnvel á stæði sést langar leiðir að þessi bíll er hraðskreið lúxuskerra. Rými Innanrýmið er frábært, það er mjög rúmt um ökumann sem farþega og öll þau helstu þægindi sem nöfnum tjá- ir að nefna. Það er ekki ýkjamikið af aukabúnaði en það er aðallega vegna þess að staðalbúnaður er vel úti lát- inn. Sérstök á s t æ ð a er til þess að nefna hvað mæla- borðið er skýrt og fallegt, en skífurnar í því eru skjanna- hvítar en fá á sig fólgrænan blæ er rökkvar. Sebring stenst jafnréttis- próf Blaðsins, því hégómaspegil með ljósi er að finna á báðum skyggnum fram í. Innanrýmið er smekklegt við- arklætt að hluta og gleður augað án þess að vera áberandi. Aftursætin gætu e.t.v. verið aðeins þægilegri þau eru fín fyrir litla fólkið en fullorðnir kynnu að þreytast á langferð aftur í. Útsýnið er alveg skínandi gott. Farangur Farangursrýmið flennistórt og dugar til ríflegra jólainnkaupa. Það er raun- ar svo stórt að framleiðandinn virðist óttast að bíleigendur noti það til far- þegaflutninga því það er opnanlegt að innan. I farþegarýminu eru svo ýmis hólf og geymslur en þó verður að segjast eins og er að hanskahólfið mætti vera stærra. Öryggi Sebring er með ABS sem staðalbún- að, er með loftpúða og hefur fengið ágæta viðurkenningu í árekstrarpróf- unum. Chrysler Sebring Stúdíóbílar Verð: 2.990.000 Eldsneyti: Bensín Breidd: 1,79 Þyngd: 1.458 kg Vél: 2700 cc Fólksbíll Lengd: 4,84 m Hæð: 1,39 Dyr: 4 Hestöfl: 198 Kostir: Fallegur, sportlegur og þægilegur. Gallar: Skiptingin er klunnaleg og vi'ðbragðið mætti vera snarpara. Eldsneytiseyðsla er I hærra lagi.. Niðurstaða: Það er gaman að aka þessum fallega bíl, en maður borgar fyrir glæsileikann. Þetta er fjölskyldubíll I dulargervi sportbíls en ekki öfugt.sögu. Bíllinn er vel útbúinn og verðið ágætt. PÓSTURINN Bílstjórar óskast í útkeyrsludeild íslandspóstur hf. leitar að bílstjórum til starfa í útkeyrsludeild fyrirtækisins. Starfið felst í útkeyrslu sendinga á höfuðborgarsvæðinu á litlum og meðalstórum sendibílum. Um fullt starf er að ræða. Unnið er á tvískiptum vöktum frá kl. 07:30-16:55 og kl. 16:30-22:15. Einnig vantar bílstjóra í tímavinnu 2-5 kvöld íviku frá kl. 17:00-22:15. Hæfniskröfun • Bílpróf í gildi í minnst 2 ár • Hreint sakavottorð • Stundvísi og góð þjónustulund Fyrir fólk á öllum aldri og af báðum kynjum. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð í afgreiðslu póstmiðstöðvarinnar. Stórhöfða 32, 110 Reykjavík. Þar skal umsóknum einnig skilað, merktum útkeyrsludeild. Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu íslandspósts. www.postur.is.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.