blaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 24
m
mánudagur, 4. júlí 2005 I blaðið
Melkorka Óskarsdóttir og Hannes Óli Ágústsson. Hverfa frá Stúdentaleikhúsinu til að læra leiklist og langar til að leika Shakespeare.
Draumurinn
um Shakespeare
Ellefu leikarar Stúdentaleikhússins
hverfa þetta árið frá leikhúsinu og
halda í nám í leiklist. Fjórir af átta ný-
nemum í leiklistamámi Listaháskóla
íslands koma frá Stúdentaleikhús-
inu, tveir fara á nýja braut skólans
sem nefnist Fræði og framkvæmd,
tveir verða nemendur í Royal Scott-
ish Academy of Music and Drama í
Skotlandi, einn fer í Academy of Live
and Recorded Arts í London og tveir
verða í London Academy of Music
and Dramatic Arts (LAMDA).
Samheldinn hópur
Þetta er sennilega ein mesta blóðtaka
sem áhugaleikhús hefur orðið fyrir
hér á landi en tveir leikarar þess, Mel-
korka Óskarsdóttir og Hannes Óli Ág-
ústsson, segja að engin ástæða sé til
að hafa áhyggjur af framtíð Stúdenta-
leikhússins. „Það er eðli
leikhóps eins og þessa að
þar sé mikil endumýjun,“
segja þau. „Þegar við hófum
að leika þar fyrir fjórum ár-
um vom margir leikarar að
kveðja og þeir vom sjálfsagt
sannfærðir um að leikhús-
ið myndi deyja. Það gerðist
ekki,“ segja þau.
Spurð hvort þarna sé um
að ræða samantekin ráð hjá
leikuram Stúdentaleikhúss-
ins segja þau: „Þetta er sam-
heldinn hópur og innan hans margir
sem vildu læra leiklist. Hér heima er
takmarkað pláss í Listaháskólanum
svo við tókum okkur saman og höfð-
um samband við erlenda skóla en aðr-
ir sóttu um hér heima. Við stöndum
saman, hittumst reglulega og styðj-
um við bakið hvert á
öðm.“
LAMDA og Lista-
háskólinn
Melkorka fer í haust
til náms í LAMDA
en einungis 2-3%
umsækjenda fá inn-
göngu í skólann.
,A«ðvitað var ég í
skýjunum þegar ég
frétti að ég kæmist
inn. Ég fór fyrst í
prufu hér heima og síðan út til Lond-
on og þá fór heill dagur í próf. Ég
þurfti að fara með mónólóga, lesa á
móti annarri manneskju, syngja og
gera líkamsæfingar. Það var svo mik-
ið adrenalín í gangi að maður var
bara hress og fann ekki fyrir þreytu.
Það er svo
gaman að fá
að setja sig
í alls konar
spor og prófa
marga hluti.
Þetta var óskaplega gaman,“ segir
hún.
Hannes Óli er í hópi þeirra átta um-
sækjenda sem komust inn í leikara-
nám í Listaháskóla íslands. „Maður
þarf að fara í gegnum þrjár síur áður
en maður kemst í lokahópinn. Síðasti
áfanginn tekur tvo og hálfan dag og
þar em æfingar, söngur og spuni.
Einnig ritgerðarsmíð, einkafundur
með inntökunefnd og einstaklings-
verkefni."
Draumahlutverkin
Þegar þau em spurð hvort þau eigi sér
draumahlutverk segjast þau vilja prófa
sem flest. „Mig langar til að leika í ,3eð-
ið eftir Godot“, Estragon eða Vladimir,
og auðvitað langar mann til að leika
Shakespeare, það væri gaman að tak-
ast á við Ríkharð 3,“ segir Hannes Óh.
Ág vil fá að prófa sem flest," segir
Melkorka. „Um tíma lék ég aðallega
litlu sætu stelpuna en síðast fékk ég að
vera þunglyndur pönkari sem var mjög
skemmtilegt. Það er svo gaman að fá
að setja sig í alls konar spor og prófa
marga hluti. Mig langar til að leika
Shakespeare. Enskan er svo fallegt og
tjáningarríkt mál. Draumurinn er að
standa á sviði og fara með Shakespe-
are á ensku.“
I sviðsljósið á ný
Susan Glaspell var önnur konan til að
vinna Pulitzer-verðlaunin íyrir leikrita-
smíð. Hún stofhaði leikhús, átti þátt í
því að uppgötva Eugene O’Neill og var
metsöluhöfundur. Síðan féllu verk henn-
ar í gleymsku. Nú fær hún uppreisn
æm í nýrri ævisögu sem heitir 3usan
Glaspell: Her Life and Times“ og er eftir
Lindu Ben-Zvi. Ág var reið,“ sagði Linda
sem er prófessor í leikhstarsögu við Tel
Aviv háskólann. ,Árum saman kenndi
ég sögu bandarískrar leikhstarsögu og
það var saga karlmanna. Loks uppgötv-
aði ég Susan Glaspell en ég hafði ekkert
vitað um hana áður.“
Mikilvægur kvenrithöfundur
Glaspell fæddist í Iowa árið 1876. Hún
vann fyrir sér sem blaðamaður en sneri
sér síðan að ritstörfum. Linda segir að
Glaspeh hafi verið ein af fyrstu mikil-
vægu kvenrithcíúndum til að fjalla um
vandamál kvenna. Leikrit hennar, „Trif-
les“, fiallar um glæp. Bóndakona er sök-
uð um morð á eiginmanni sínum. Karl-
mennimir sem rannsaka máhð njóta
aðstoðar tveggja kvenna sem finna sönn-
unargögn sem fara fram hjá mönnunum.
Konumar áh'ta að bóndakonan sé sek en
h'ta svo á að gjörð hennar sé réttlætanleg
þar sem eiginmaður hennar
beitti hana ofbeldi. Þær
fela því sönnunargögnin
þar sem þær hafa skiln-
ing á glæpnum. „Trifles"
er frægasta verk Glaspeh
og er lesið í bandarískum
skólum. Leikritið er mjög
stutt, sem kann að vera ein
skýring þess af hveiju Gla-
speU nýtur ekki fullrar við-
urkenningar í leiklistarsögu
Bandaríkjanna.
GlaspeU stofnaði leikhús-
ið JVovincetown Players“, og
þar var fyrsta sviðsetta leikrit Eugenes
O’NeiU. jBound East for CardifPj frum-
sýnt. Arið 1931 fékk GlaspeU Puhtzer-
verðlaunin fyrir „Ahson’s House", leikrit
sem var byggt á ævi skáldkonunnar Em-
ilyDickmson.
Susan Glaspell. Hún naut mikilla vin-
sælda á sínum tíma en síðan féllu verk
hennar í gleymsku. Nú fær hún uppreisn
æru í nýrri ævisögu.
Á undan sinni samtið
GlaspeU var kona sem var á undan sam-
tíma sínum, í einkalífi ekki síður en í
ritstörfúm. Hún vakti hneykslan þegar
hún hóf ástarsamband við kvæntan
mann. Hann skildi loks við konu sína
og þau GlaspeU gengu í hjóna-
ssslgl band. Eftir dauða hans skrif-
aði hún ævisögu hans, sem
varð ein af vinsælustu bókum
hennar. Hún hneykslaði enn
þegar hún átti í átta ára ást-
arsambandi við mann sem
var sautján árum yngri en
hún. Þegar hann yfirgaf
hana tók hún að drekka
ótæpilega en náði sér
aftur á strik og skrifaði
skáldsögur sem hlutu
góðar móttökur.
Hún lést árið 1948 og
verk hennar féUu úr tísku. Ævisagna-
höfundur hennar, Linda Ben-Zvi, segir
verk hennar hafa sérstaka þýðingu fyrir
samtímann. Hún segir leikritið Jnheri-
tors“ frá árinu 1921, um öld í lífi banda-
rískrar fjölskyldu, vera fyrsta nútíma
bandaríska sögulega leikritið.
Golfáhugamenn athugið
Nú er rétti tímin til að setja niður púttholu í garðinn
Upplagt í sumarbústaðinn eða garðinn heima
Tilboð 1
1 stk stöng með áföstu númeri og bolla kr 4.900
Tilboð 2
1 stk stöng með flaggi og bolla kr 7.900
Leigjum út holuskera
v tn* .
Islensk tröll
og vöðlungar
á faraldsfæti
Bók Brians Pilkington, Allt um
tröll, hefur verið seld til Eistlands
og bók Aðalsteins Ásbergs Sigurðs-
sonar, Brúin yfir Dimmu, hefur
verið seld til Finnlands.
Það var eistneska bókaforlagið Ilo
sem tryggði sér réttinn á bók Brians
en áður hefur útgáfurétturinn ver-
ið seldur til Ítalíu og Danmerkur.
Finnska bókaforlagið Idun tryggði
sér réttinn á bók Aðalsteins Ásbergs
og er það fyrsta landið sem rétturinn
er seldur til.
Fyrir stuttu kom út í Rússlandi,
hjá bókaforlaginu Azbooka, safn nor-
rænna smásagna fyrir börn. Tveir ís-
lenskir höfundar eiga þar sögur, þeir
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, með
Töfrataflið, og Andri Snær Magna-
son, með Eina sorglega sögu af
Medíasi konungi.
Ungversk og
þýsk tónlist
I Sigurjóns-
safni
Á sumartónleikum Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar þriðjudagskvöldið 5.
júlí leikur Tríó Trix, sem skipað er
þeim Sigríði Bjameyju Baldvinsdótt-
ur fiðluleikara, Vigdísi Másdóttur
víóluleikara og Helgu Björgu Ágústs-
dóttur sellóleikara, verk eftir Emö
Dohnányi og Max Reger.Tríó Trix
var stofnað haustið 2003, eftir að
hljóðfæraleikararnir fluttu allir aft-
ur til íslands að loknu námi erlendis
og hefur starfað óslitið síðan.
Serenaðan fyrir strengjatríó eft-
ir ungverska tónskáldið Ernö Do-
hnányi var samin árið 1902 og frurn-
flutt í Vín tveimur árum síðar, sama
ár og þýska tónskáldið Max Reger
samdi strengjatríóið op. 77b. í báðum
verkunum má greina mikil áhrif frá
Brahms og inn í serenöðuna fléttar
Dohnányi ungverska alþýðutónlist.
Tónleikamir hefiast klukkan
20.30. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.