blaðið - 15.07.2005, Side 25
blaðid I föstudagur, 15. júlí 2005
A/Íðtöl 25
Baráttan við Bakkus
Áfengið var hluti af fortíð þinni,
hversu mikið vandamál var það og er
það ennþá vandamál?
„Áfengi truflaði líf mitt en truflar það
ekki í dag. Ég hef alkohólísk gen en
áttaði mig ekki á því í mörg ár. Ég
hef farið í tvær meðferðir og er stolt-
ur af því. Án þeirra hefði ég sennilega
drukkið mig í hel, þróunin er einfald-
lega þannig hjá alkohólista ef hann
gerir ekkert í sínum málum.
Ég hef aldrei gefist upp á því að ná
frelsi frá Bakkusi. Stundum hef ég
ofmetið stöðu mína og boðið Bakkusi
kinnina og þá hefur hann slegið mig
fast. En slíkt er undantekning. Ég
veit að áfengi er ekkert fyrir mig, það
er ekkert flóknara en það.“
Hvað segirðu um allar kjaftasögurnar
sem stinga alltaföðru hvoru upp koll-
inum þegar þú átt í hlut. Á dögunum
heyrði maður því haldið fram að þú
hefðir verið drukkinn þegar þú varst
á ferðalagi í Taílandi fyrir skömmu.
„Já, sei sei já, hugsaðu þér, ég í
sumarffíi með góðum vinum, sem
ekki drekka, í annarri heimsálfu og
fólk veltir sér upp úr því hér heima,
hvort ég hafi verið að drekka bjór eða
þaðan af eitthvað sterkara. Hvflík
umhyggja eða hitt þó heldur, varla
er þetta náungakærleikur. Þegar ég
bjó í Taflandi komst tvisvar á kreik
sú saga að ég væri dauður og í ann-
að skiptið áttu hákarlar að hafa étið
mig. Þetta gekk svo langt að tveir að-
ilar hringdu í taflenska konsúlinn og
spurðu hvemig best væri að koma lík-
inu heim. Sögurnar verða illkvittnari
með árunum því fólki finnst ekki nóg
að heyra að Hemmi Gunn hafi dottið
í það, því verður að fylgja krassandi
saga. Ég gæti skilið þetta ef ég hefði
verið að útata þjóðina með leiðindum
og viðbjóði en ég hef ekki gert nokkr-
um manni nokkurn skapaðan hlut.
En fólk sem á í vandræðum með sjálft
sig lítur ekki í eigin barm heldur tal-
ar um aðra.
Ég hef tekið út mikinn þroska. Ég
stjórna lífi mínu. Áður kunni ég það
ekki og lét aðra stjóma mér. Ég sveifl-
aðist til og ffá tilfinningalega eftir því
hvort fólk baktalaði mig eða hrósaði
mér. Ég vissi ekkert hvert ég stefndi
eða hver ég var. Kynni mínum af Ta-
ílandi breyttu mér og ég breyttist enn
meir eftir að hafa dáið og verið Kfgað-
ur við. Ég er sáttur við sjálfan mig og
ekki ósáttur við nokkurn mann. Ég
treysti öllum þangað til annað kemur
í ljós. Áður fyrr vantreysti ég öllum og
það er erfitt að vera á ferli við slíkar
aðstæður.
Mér þykir enn vænna en áður um böm-
in mín, aldraðan fóður minn og ekki
síður vini mína. Þessi sambönd vil ég
rækta. Þegar ég vann sem atvinnu-
maður í íþróttum hafði ég ekki tíma til
að rækta bömin mín og foreldra mína
- það er að segja ég taldi mér trú um að
það væri enginn tími til þess sem var
Ég dó og endurfæddist og öðlaðist loks
þá innri ró sem ég leitaði að áratugum
saman
mikill misskilningur því auðvitað get-
ur maður alltaf ræktað sambönd við
fólk sem manni þykir verulega vænt
um. í dag veit ég að sönn vinátta er
miklu meira virði en 20 jeppar eða 400
fermetra hús í Amarnesi.”
Dregið út á mánudögum
Ath. Taka má þátt eins oft og og þú viit, því fleiri innsendir seðlar, þeim mun meiri vinningslikur
Fyrirsögn:
Fullt nafn:
Kennitala:
Sími:
Þátttökuseðill
Sendist á - Blaðið, Baejarlind 14-16 201 Kópavogur I. i L L 2L J j
blaóió =
Vinningar
Ferð fyrir 2 til Spánar með Sumarferðum
Ipod frá Apple búðinni • Veiðigræjur frá
ABU • Fjallahjól frá Húsasmiðjunni • Allt á
grillið frá Goða • U'nuskauta frá Everest
Skartgripir frá Gullsmiðju Óla
Hægindastólafrá Rúm.is • Út að borðaá
TGI Fridays • Dekurdag í Baðhúsinu
Kvöldverð og Gistingu á Hótel Valhöll
Bensín á bílinn frá Atiantsolíu og margt
imrai
0€)
VM.HÖU.
þ Abu '
Garcta.
FOR UFE.“
margtfleira...
Taktu þátt og sumarið verður ógleymanlegt
Næstu vikurnar ætiar blaðið að gera sumarfríið þitt ógleymanlegt
Sendu okkur einhverja fyrirsögn úr Blaðinu og þú kemst í pott sem dregið verður úr einu sinni íviku og þú
gætir komist til Spánar í boði Sumarferða eða unnið einhvern af glæsilegum vinningum sumarleiks Blaðsins...
Klipptu út seðilinn hér að neðan og sendu okkur hann (Blaðið, Bæjarlind 14 -16, 201 Kópavogur) eða sendu okkur
tölvupóst (með nafni kennitölu og símanúmeri) á netfangið sumar@vbl.is
sumA