blaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 30
Fátækir námsmenn
Sumarið er hálfnað. Námsmenn
eru í fríi frá ströngu námi og
eru út um allar trissur að vinna
ýmis störf. Samt þurfa þeir að
passa sig á því að vinna ekki of
mikið því annars verða þeir fá-
tækir næsta vetur - ef þú vinn-
ur nefnilega of mikið skerðast
námslánin.
Tekjutenging námslána er
eitthvað sem hindrar marga í að
geta einbeitt sér að fullu að skól-
anum og gerir þá tilneydda til að
vinna meðfram ströngu námi.
Þetta verður að vítahring.
Námsmaðurinn vinnur með skól-
anum til þess að eiga fyrir leigu,
mat, bókum og öðru slíku þar
sem námslánin eru of lág. Það
veldur því að á næstu önn skerð-
ast námslánin ennþá meira. Þá
verður námsmaðurinn að vinna
ennþá meira. Dæmi eru um það
að fólk hrekist úr skóla vegna
þess að það hefur hreinlega ekki
efni á að stunda hann af heilum
hug.
Eru námsmenn þess lands
ekki of dýrmætir til þess að við
látum þá sleppa úr skólanum?
Viljum við ekki að fólk hugsi
með ánægju til þess tíma sem
það var að mennta sig, að það
þurfi ekki að rifja upp þegar það
þurfti að betla af fjölskyldunni
sinni eða herða ólina með hveiju
árinu? Allir hafa gott af því
að finna fyrir lífinu en er bara
ekki nóg að finna fyrir því þeg-
ar vinnumarkaðurinn tekur við
og borga þarf upp lánin - og yfir-
drátt - frá námsárunum.
Leiga er himinhá um þessar
mundir, matvælaverð á Islandi
er nú eins og það er og bensín-
verðið rokið upp úr öllu valdi.
Það segir sig sjálft að það er rán-
dýrt að lifa og ekki fá námsmenn
neinn afslátt.
Hvað er það sem segir að sá
sem hefur þénað mikið árið áður
en nám hefst eigi meiri pening
en sá sem hefur þénað lítið? Ef
sá hinn sami hefur lagt allan
þann pening til hliðar sem hann
hefur þénað umfiram það mark
sem lánsskerðing hefst þá þyrfti
hann væntanlega ekki að taka
lán. Enginn vill stinga sér til
sunds í skuldahaf ótilneyddur.
Þetta er jú lán en ekki styrkur
sem námsmenn fá til að eyða
í vitleysu á meðan á náminu
stendur. Lánasjóðurinn fær á
endanum hverja krónu til baka
og gott betur.
Eva Longoria ekki tilnefnd
Það er búið að tilkynna hverjir eru
tilnefndir til 57. Emmy verðlaun-
anna og það kemur varla á óvart
að Aðþrengdar eiginkonur eru ofar-
lega á lista. Teri Hatcher, Marcia
Cross og Felicity Hoffman voru all-
ar tilnefndar sem besta leikkonan
í sjónvarpsseríu en Eva Longoria
fékk enga tilnefningu. Þátturinn Að-
þrengdar eiginkonur var tilnefndur
sem besti gamanþáttur í sjónvarpi
ásamt Scrubs, Will & Grace, Every-
one Loves Raymond og Arrested De-
velopment. Sigurvegaramir verða
tilkynntir 27. ágúst.
SU DOKU
Su Doku _ 9. gáta
9 4 5
6
5 2 1 3 8 7
9 3 1
3 8 1
4 6 2
7 5 2 8 1 9
3
8 6 1
Su Dok j- i ausn við 8. gátu Laus
1 5 7 4 6 9 3 2 8
9 8 6 1 2 3 7 5 4
4 2 3 5 8 7 1 9 6
3 9 2 8 5 1 4 6 7
7 6 8 2 9 4 5 3 1
5 1 4 7 3 6 9 8 2
2 7 5 9 1 8 6 4 3
6 4 9 3 7 2 8 1 5
8 A. 1 6 4 5 2 7 9
Lausná10.
gátu verður
að finna í
blaðinu á
mánudag.
Lausn á 9. gátu
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða tölunum
ffá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð
box sem innihalda 9 reiti. Sama talan
má ekki koma fyrir tvisvar í hverri
línu og innan hvers box. Allar gátur
er hægt að ráða út fr á þeim tölum sem
gefnar eru upp í upphafi. Leitað er að
talnapörum og reynt að koma þeirri
þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7
er í efsta boxinu vinstra megin og því
neðsta lfka, ætti ekki að vera erfitt
að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-
boxinu. Ef möguleikamir em tveir
er ágætt að skrá þá hjá sér og halda
áffam.
Lauryn Hill
of sein
á eigin
tónleika
Söngkonan Lauryn Hill
reyndi á þolinmæði
margra aðdáenda sem
biðu í ofvæni eftir að
hitta stjömuna í Col-
iseum í Lundúnum um
daginn. Aðdáendumir
þurftu að bíða í 3 klukku-
stundir eftir að sjá hana,
en ástæðan fyrir þessari
seinkun var að Lauryn
átti eitthvað erfitt með
að ákveða hveiju hún
ætti að klæðast. Eftir
að áhorfendur höfðu
beðið í klukkustund,
kom maður á sviðið og
tilkynnti að frú Hill
hefði seinkað vegna
mikillar umferðar
en yrði mætt eftir
40 mínútur. Breskt
dagblað segir hins veg-
ar að söngkonan hafi
verið allan tímann á
hóteli sem hafi verið í fimm
mínútna fjarlægð.
Þegar að Lauryn kom
loksins á svið hentu áhorf-
endur í hana poppkomi,
en þá tilkynnti hún: „Ég
þarf alltaf mjög mikinn tíma
til að taka mig til. Ég
mjög erfitt með að
ákveða mig í hveiju
ég á að vera - þetta
er konumál".
Lauryn baðst ekki
afsökunar á að
hafa komið svona
seint, og fullt af
fólki fór óónægt
af leikvanginum
hrópandi ókvæðis-
orðum að söngkon-
Beyonce kærð
Það er búið að kæra poppstjöm-
una Beyonce fyrir
lagaþjófnað, en
lagasmiðurinn
og söngkon-
an Jennifer
Armourseg-
ir Beyonce
hafa stolið
laginu Ba-
by
frá sér,
en lagið
hafi verið
samið nokkmm
mánuðum áð-
ur.Jenniferseg-
ir að myndband
við lag hennar,
Got a Little Bit
of Love for You
hafi komist í
hendur Bey-
once í mars
2 0 0 3
Málið verður tekin fyrir 28.október í
Houston, Texas.
Lagið Baby Boy, sem var
mjög vinsælt á sínum tíma,
Destiny's Child
söngvaranum Sean
Paul í október 2003,
og var lagið einnig á
plötu Beyonce, Dan-
gerously in Love,
sem var gefin út í
júní 2003. ■
föstudagur, 15. júlí 2005 I blaðið
Hvað segja
stjörnurnar?
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Þú ert fráhverf/ur viöskiptavinunum í dag,
sérstaklega ef þeir eru ekki fastakúnnar. Reyndu
að einbeita þér að þeim sem þú þekkir best.
V Þú ert að reyna að finna leið til að gera
allt sjálf/ur. Það er tími til að kalla á aðstoð.
Það þýðir þó ekki að þú sért ekki fær um það.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Viðhorf þitt til vinnustaðarins gæti breyst
snögglega. Hægðu á þér og athugaðu hvort þú
getir ekki hugsað skýrar.
V Það er ást í loftinu og hún er alls staðar.
Gríptu hana.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Sama hve mikilvægt þaö er þá áttu í erfiöleikum
með að taka ákvörðun. Reyndu að koma í veg fyrir að
aðrir nýtí sér hik þitt, þú hefur meira vald en þig gmnar.
V Ekki láta ganga yfir þig. Ef þú stendur
ekki upp fyrir sjálfa/n þig þá gerir það enginn.
Þú hefur styrkinn til að segja nei.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
$ Það er margt á seyði í hausnum á vinnufé-
lögunum og nú ætti að vera auðvelt að ná fram
ákvörðunum sem venjulega tækist ekki.
V Gleymdu sjálfri/sjálfum þér í dag. Með því
að hjálþa óðrum að fá það sem þeir vilja gætirðu
í raun verið að hjálþa sjálfum þer.
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Það er mikið tilfinningarót vegna nýrra fram-
kvæmda og breytlnga á vinnulagi. Þær eru ekki all-
ar neikvæðar en það þarf að taka á neikvæðninni.
V Ástríða er ekki bara fyrir sápuóper-
ur, heldur líka fyrir þig og ástvininn. Hrist-
ið upp í ástarlífinu og góða skemmtun.
©Tvíburar
(21. maí-21. júnQ
S Þú ert umhyggjusöm/samur um viðskipta-
vini og vinnufélaga og þeirra þarfir. Ekki hunsa
vinnu þína algerlega en grafðu dýþra en venju-
lega.
V I dag er hentugur dagur til að kanna
ókönnuð lönd, sérstaklega í ástarlífinu. Taktu
áhættu, þar liggur mesta fjörið.
©Krabbi
(22. júní-22. júlí)
S Það virðist sem þú hafir marga kosti til að
velja um en ef þú fjarlægir þig frá verkefninu þá
sérðu að þeir erg allir svipaðir.
V Ef þú finnur ekki leið til að vekja athygli á
málstað þínum, haltu áfram að reyna. Að hafa
samskipti á góðan hátt þarfnast æfingar en ef
þú gefst upp þá kemstu ekkert.
o
Ljón
(23. júlf- 22. ágúst)
Diaz kærir
IJósmyndara
Réttarhöld eru hafin yfir Ijósmyndara sem að tók myndir af Cameron Diaz í
engu að ofan, áður en hún varð fræg. Hann er sagður hafa reynt að beita fjár-
kúgun og vildi hann
að Diaz greiddi hon-
um sem samsvarar
um 200 milljónum
króna gegn því að
hann birti ekki
myndimar opinber-
lega. Sjálfur tók
hann myndimar af
Diaz þegar hún var
aðeins 19 ára ogfals-
aði síðan undirskrift
hennar á samning
um að hann mætti
selja myndimar
áfram. Fjárkúgunin
kom í kjölfarið og
var leikkonunni þá
nóg boðið og kærði
hinn 42 ára gamla
ljósmyndara, John
Rutter.
$ Það er góður tími til beinna aðgerða.
Láttu álit þitt í Ijos og gefðu ekki eftir. Þú hefur á
réttu að standa.
V Ef þér finnst eins og eitthvað sé ekki rétt,
þá er það vel athugað hjá þér. Innsæi þitt er
gott, hlustaðu á það. Þér líður betur á eftir.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Þú munt finna áhugaverðar upplýsingar
en ekki láta það trufla þig frá vinnunni.
V Ef þú ert forvitin/n þá er tími til að komast
til botns í málinu og finna út hvað þú virkilega
vilt.
Vog
(23. september-23. október)
S Þaö er góður tími til að gera þessar afr-
drifaríku breytingar sem þú hefur hugsað um.
Ef þú ert ánægð/ur með hlutina eins og þeir eru,
þá er kominn tími til að endurskoða stóðu þina.
V Hættu þessum peningaáhyggjum.
Þetta er ólíkt þér, en það er þó ekki vitlaust
að koma með heildræna áætlun um fjármál.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Vald þitt er geislandi og fólk safnast sam-
an í kringum þig til að fá leiðbeiningar. Það er
kominn tími á þig.
V Þú ert skapslygg/ur í dag og tilfinningamar eru
út um allt. Það er allt í lagi að liða svona, |5að hendir
alla öðru hvooi. En ekki láta það bitna á öðaim.
■ Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Þú ert eitthvað illa fyrirkölluð/kallaður en
þó ekki svo að þú qetir ekki lokið verkefnunum.
Hægðu á þér og haltu fast í hefðina.
V Þú vilt halda i frelsið og að maki þinn geri
það sama. Það þýðir þá ekkert að vera afbrýois-
söm/samur þegar hann er úti á lífinu.