blaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 29
blaðið I föstudagur, 15. júlí 2005
Fjölmiðlar
Fjölmiðlar og
fjölmiðlakannanir
siggi@vbl.is
Þegar Blaðinu var ýtt úr vör fyrir
sjötíu dögum birti það auglýsingar í
útvarpi og sjónvarpi. í auglýsingum
þessum var bent á að fréttir af sama
atviki eða atburði mætti segja á mjög
mismunandi hátt án þess að farið
væri með rangt mál.
Blaðið rifjar þetta upp nú vegna þess
að fjölmiðlar hafa í þessari viku birt
fréttir af niðurstöðu
fj ölmiðlakönnunar
Gallup, sem fram
fór dagana 3. - 9.
júní.
Blaðið kom fyrst út
fóstudaginn 6. maí
og höfðu því komið
út tuttugu og fimm
tölublöð af því þegar
Gallupkönnunni lauk.
Blaðið kom mjög vel út úr þessari
könnun, þar sem meðallestur hvers
tölublaðs reyndist vera 44,4% og upp-
safnaður lestur á viku 66,3% á dreif-
ingarsvæði þess.
Morgunblaðið greindi
frá Gallupkönnun-
inni í þriðjudagsblað-
inu undir fyrirsögn-
inni „Dagblaðalestur
minnkar". Þessi fyr-
irsögn Morgunblaðs-
ins og fréttin sem
fylgir er bæði rétt
og röng. Hún er rétt,
ef litið er á Morgunblaðið og DV, því
lestur beggja þessara blaða minnk-
aði. Morgunblaðið hefði því átt að
segja í fyrirsögn sinni, lestur Morg-
unblaðsins og DV minnkar, því ekki
dró úr lestri Fréttablaðsins og meðal-
lestur Blaðsins í fyrstu könnun þess
var 44,4%. Morgunblaðið kom lestri
Blaðsins reyndar niður í 28,7% með
því að miða við landið allt, en ekki
bara dreifmgarsvæði þess, sem er hið
rétta, því ekki er hægt að ætlast til
þess að þeir sem ekki fá Blaðið lesi
það.
Fréttablaðið gerði einnig grein fyrir
könnunni í þriðjudagsblaði sínu und-
ir fyrirsögninni „Fréttablaðið bætir
við sig“. Þetta gerir Fréttablaðið þó
svo að meðallestur þess hafi í raun
staðið í stað, þar sem aukning úr
66% í 67% er ekki marktæk aukning.
Síðan greinir Fréttablaðið frá því að
meðallestur Blaðsins sé 44% á dreif-
ingarsvæði þess en 29% á landsvísu.
Fréttablaðið segir þennan lestur
Blaðsins ívið minni en meðallestur
Fréttablaðsins hafi verið í fyrstu
könnun þess í október 2001. Frétta-
blaðið getur þess hins vegar ekki, að
útgáfa þess hafði staðið í sex mánuði
þegar lestur þess var fyrst mældur,
en ekki bara sjötíu daga, eins og
reyndin var með Blaðið.
Væntanlega er þetta vísbending um
að þessir fjölmiðlar gæti eigin hags-
muna og hagsmuna eigenda sinna
þegar að þeim er sótt.
verður ástfanginn af henni án þess
að átta sig á hver hún er. Leikstjóri er
Ron Howard og meðal leikenda eru
Tom Hanks, Daryl Hannah, Eugene
Levy og John Candy.
22.00 Moll Flanders
Leikstjóri er Pen Densham og meðal
leikenda eru Robin Wright Penn,
Morgan Freeman, Stockard Channing,
Brenda Fricker, Geraldine James, Jim
Sheridan og Jeremy Brett. Kvikmynda-
skoðun telur myndina ekki hæfa fólki
yngra en 12 ára.
00.00 Krókódíla-Dundee í Los Ange-
les
(Crocodile Dundee in LA)
Gamanmynd frá 2001 þar sem ástr-
alski harðjaxlinn Krókódfla-Dundee
bregður sér til Los Angeles og kemst
í hann krappan. Leikstjóri er Simon
Wincer og aðalhlutverk leika Paul Hog-
an og Linda Kozlowski. e.
30.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
21.30 Two and a Half Men (12:24)
(Tveir og hálfur maður)
21.55 Osbournes 3(a) (1:10)
(Osbourne-fjölskyldan)
Á næstu vikum gengur mikið á í lífi
fjölskyldunnar sem seint verður talin
til fyrirmyndar.
22.20 Juwanna Mann
Aðalhlutverk: Miguel A. Nunez Jr., Viv-
ica A. Fox, Kevin Pollack. Leikstjóri,
Jesse Vaughan. 2002. Leyfð öllum
aldurshópum.
21.00 Pimp My Ride - lokaþáttur
21.30 MTVCribs
22.00 Tremors
22.45 Sjáumst með Silvíu Nótt (e)
Silvía Nótt mun ferðast vítt og breitt,
hérlendis sem erlendis og spjalla við
vel valið fólk um allt milli himins og
jarðar á sinn óviðjafnanlega hátt.
20.00 Seinfeld 2 (10:13) (Statue)
Við fylgjumst nú með bráðfyndna ís-
landsvininum Seinfeld frá upphafi.
20.30 Friends (15:24) (Vinir)
21.00 Placebo á tónleikum
(Live in Paris)
22.00 Kvöldþáttur
23.50 Robin Hood Men in Tights
(Hrói höttur: Karlmenn í sokkum)
Gamanmynd um Hróa hött, verndara
Skírisskógar. Ásamt sínum kátu körl-
um barðist hann gegn yfirgangi prins-
ins vonda, sem með fulltingi fógetans
í Nottingham, tróð almúgann niður í
svaðið.
23.15 TheSwan(e)
Veruleikaþættir þar sem sérfræðingar
breyta nokkrum ósköp venjulegum
konum í sannkallaöar fegurðardísir.
Brot af því besta úr Kvöldþáttum
vikunnar.
22.45 David Letterman
Góðir gestir koma í heimsókn og
Paul Shaffer er á sínum stað.
23.30 David Letterman
01.30 Scream 3 (Öskur 3)
Stranglega bönnuð börnum.
03.25 Fréttir og ísland í dag
Fréttir og ísland í dag endursýnt frá því
fyrr í kvöld.
04.45 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí
00.00 Dead Like Me (e)
00.45 Tvöfaldur Jay Leno (e)
02.15 Óstöðvandi tónlist
00.15 Friends (15:24) (Vinir)
00.40 Kvöldþáttur
Brot af því besta úr Kvöldþáttum
vikunnar.
01.25 Seinfeld 2 (10:13) (Statue)
21.00 World Poker Tour 2 (HM í
póker)
22.30 K-1
22.00 Matchstick Men
(Svikahrappar)
Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Sam
Rockwell, Alison Lohman. Leikstjóri,
Ridley Scott. 2003. Bönnuð börnum.
00.00 Bandits (Bófar)
Joe Blake og Terry Lee Collins eru
á flótta undan réttvísinni. Þeir flúðu
úr fangelsi og eru enn á villigötum.
Flóttamennirnir ræna banka sem
óðir væru en þegar húsmóöirin Kate
Wheeler blandast óvart í leikinn þurfa
Joe og Terry að endurmeta stöðuna.
Myndin var tilnefnd til Golden Globe
verðlauna. Bönnuð börnum.
02.00 In the Bedroom
(í svefnherberginu)
Bönnuð bömum.
04.10 Matchstick Men
(Svikahrappar) Þrælfyndin og dram-
atísk glæpagamanmynd. Nicolas
Cage, Sam Rockwell, Alison Lohman.
Leikstjóri, Ridley Scott. 2003. Bönnuð
bömum.
Af netinu
Horfði einhver á One Tree Hill í gær?
Ó gollý! Við erum sko að tala um
raðgæsahúð þegar Sunny road með
Emilíönu Torrini var spilað! Vá hvað
hjartað mitt fylltist mikilli þjóðernis-
kennd og stolti
http://www.blog.central.is/oski
En að öðrum merkilegri hlutum,
hvað haldiði að kallinn hafi ekki gert
í gær? Já mikið rétt! Ég horfði loks-
ins á lokaþáttinn af Lost. Spennan
var gífurleg allan þáttinn, mikið að
gerast og „crazy“ endir! Já, ég segi
það enn og aftur, þetta eru endalaust
magnaðir þættir. Ef þú, lesandi góð-
ur, ert ekki byijaður að horfa á þá, þá
myndi ég bara skella mér fyrir fram-
an sjónvarpið og byrja að glápa! Því
þú verður alls ekki fyrir vonbrigðum.
http://blog.central.is/jensi
Dagurinn hjá mér hefur snúist um
eitt. Sjónvarp. Ég vaknaði meira að
segja til að horfa á sjónvarpið. Það
eina sem hefur dregið mig frá sjón-
varpinu var matur og drykkur, að
fara út með Pjakk og ekkert annað.
Ástæðan er Live 8, stærstu tónleik-
ar sögunnar. Þeir ná til 85% heimila
heimsins, bara í Hyde Park í London
eru um 250.000 manns og í Berlín
eru um 150.000 manns. Þvílíkar stór-
hljómsveitir hef ég ekki séð saman
komnar á „einum" stað en í London
eru flestar stærstu sveitimar, U2
og Paul McCartney, Coldplay, Pink
Floyd, REM, Elton John, Travis,
Madonna, The Who og fleiri. Þeir
sem mættu líka vera þarna eru The
Darkness, Placebo, The White Strip-
es, Radiohead, The Thrills og Eric
Clapton, þá væri það fullkomið. Fyr-
ir þá sem ekki vita eru tónleikarnir
haldnir til að þrýsta á 8 fremstu iðn-
aðarríkin til að fella niður skuldir
fátækustu Afríkuríkjanna og hvet ég ^
alla til að skrifa í undirskriftarlist-
ann á http://www.live81ive.com/list
en hann verður afhentur á ráðstefnu
þjóðanna á miðvikudag. Ég er núna
búinn að horfa á sjónvarpið, nánast,
samfleytt í 7 og hálfan tíma og enn
eru nokkrir eftir.
http://www.blog.central.is/clear
Allt í steik. Er þetta ég eða Kvöldþátt-
urinn stór mistök? Það eru allir að
reyna svo mikið að vera eins og am-
erískur „talkshow" þáttur og allir að
reyna að vera fyndnir. En „so sorry
senorita" það er bara ekki að virka.
Og þessar tilraunir til að draga upp
fyndna mynd af atburðum samtím-
ans er svo svaðalega léleg að ég finn
til vorkunnar gagnvart þeim sem birt-
ast á skjánum. Aðalhóstinn, Gummi
Steingríms, er alveg drullu sniðug-
ur gæi og alveg gaman að honum.
Ef hann er „tjillaður" og ekki með
þennan „reyna að vera fyndinn eins
og Jay Leno“ fíling í gangi. Hann á
bara að vera hann sjálfur og draga
fram brandarana á stikkorðum og
koma með „spontant“ takta inn í
þetta. Og þetta á líka við alla hina, *
vera bara „tjillaður", henda þessum
tilbúna kreista karakter sem er bú-
inn að koma sér fyrir í stúdíóinu og
búa til meira „spontant" brandara út
frá lausu handriti. Þá held ég að við
séum að tala saman. Þarf rejmdar að
skipta út nokkrum einstaklingum en
annars er þetta held ég bara létt byij-
unarræpa sem er að frussast upp á
bak á aðstandendum.
http://blog.central.is/burger/
RENAULT
Vönduö frönsk hönnun
Einstök þægindi
Fallegir litir
5 stjörnu NCAP öryggi
Einstaklega sparneytinn
Hlaöinn staöalbúnaði
3 ára ábyrgö
B&L Grjóthálsi 1 575 1 200 www.bl.is
Þú eignast hann fyrir
kr. 2.170.000
Bilasamningur / Bílalán
kr. 22.590 á mánuði*
*
McÖ bdinn h*nda þér I