blaðið - 21.07.2005, Page 25

blaðið - 21.07.2005, Page 25
blaðiö FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 Ipróttir i 25 Bolton og Taíland í úrslit Asíubikarinn i fótbolta hófst í gær i Bankok i Taílandi og þar taka þrjú ensk félagslið þátt. Bolton Wanderes, Everton og Manchester City auk landsliðs Taílendinga sem er blanda af leikmönnum 23 ára og yngri og A-landsliðinu. Leildrnir eru sýndir í beinni útsendingu á nýju fótboltastöðinni, Enski boltinn, og í gær sáu menn Everton gera í-x jafntefli við Taíland í venjulegum leiktíma en í vítaspyrnukeppninni vann Tafland 4-2. Manchester City og Bolton mættust síðan og þar var einnig jafnt eftir venju- legan leiktíma og því fór fram vítaspyrnukeppni þar sem Bolton vann 5-4. Það verða því Bolton og Taíland sem leika til úrslita á laugardag klukkan 14.00 og verður leikurinn í beinni útsendingu á sjónvarps- stöðinni Enski boltinn sem og leikur Manchester City og Everton sem verður sýndur klukkan 10.45 á laugardag. ÍÞRÓTTIR Valtýr Björn Enska knattspyrnuliðið Derby County var í heimsókn hér á landi í nokkra daga í vikunni og á þriðjudagskvöld mættu þeir ensku, liði lA. Leikið var á Akranesi í blíðskaparveðri og eftir 21 mínútu var lA komið í 1-0 með ágætu marki frá Andra Júlíussyni. Um 15 mínút- um síðar jöfnuðu Derby-mennþegar Pólverjinn Gregorz Raziak skoraði. Það voru ekki liðnar nema 30 sek- úndur af seinni hálfleik þegar Andri var búinn að skora öðru sinni og þar við sat. Lokatölur 2-1 fyrir lA sem verða að teljast nokkuð óvænt úrslit. Skagamenn voru að leika ágætlega í leiknum en liðsmenn Derby virk- uðu nokkuð þungir enda eru þeir í miðju æfingatímibili. Keppnin á Englandi hefst í næsta mánuði og nýi framkvæmdastjórinn hjá Derby, Phillip Brown, er fyrrum aðstoðar- maður Sam Allardyce hjá Bolton og var hann hjá Bolton í 10 ár. „Jú það er rétt, þetta er frumraun mín sem framkvæmdastjóri og ég er mjög spenntur fyrir vetrinum“, sagði Phil Brown í samtali við Blaðið eftir leikinn aðspurður um framkvæmda- stjórastöðuna hjá Derby. Það verð- ur erfitt fyrir hann að gera jafnvel og Derby gerði á síðustu leiktíð en hann er þó bjartsýnn. ÍA kom Phil Brown á óvart. „Derby var mjög nálægt því að komast upp síðast og Champions- hip-deildin er mjög erfið. Það þarf allt að ganga upp til að við verðum í toppbaráttunni. Þar verða lið eins og Crystal Palace, Norwich, Southamp- ton, Ipswich og Leicester og vonandi við. Þetta er langt og strangt mót og það gengur á ýmsu. Vonandi slepp- um við þokkalega frá meiðslum en það skiptir miklu máli í svo harðri keppni”, sagði Brown. Aðspurður um lið í A sagði Brown. ,Þeir komu mér verulega á óvart. Við lékum að vísu illa og frammistaða okkar í dag endurspeglar ekki getu okkar en lið Akraness (lA) lék vel. Ég var ekki að velta neinum leik- manna þeirra fyrir mér, það voru aðrir í því og ég fæ skýrslu um það á eftir.” Brown spáir Chelsea meist- aratitlinum á Englandi. Þegar Phillip Brown var spurður um ensku úrvalsdeildina næsta vet- ur sagði hann: „Ég held að Chelsea verði mjög líklega enskur meistari á ný. Þeir eru búnir að styrkja sig veru- lega og ég sé ekki neinn stoppa þá. Manchester United verður í toppbar- áttunni og ég vona að Bolton blandi sér í þessa baráttu. Þeir eru með mjög gott lið og eiga væntanlega eft- ir að styrkja sig aðeins meira. Ég veit ekki alveg með Arsenal eftir að Vi- eira er farinn en Liverpool verður án efa í toppbaráttunni á næstu leiktíð,’ sagði þessi geðþekki framkvæmda- stjóri en Derby var hér á vegum ÍT- ferða, Iceland Express og fleiri aðila. Hið besta mál og vonandi að við sjá- um fleiri ensk lið koma í æfingaferð- ir til íslands í framtíðinni. ■ klakavelar Verð ^ 28.000 kr. <#j w i ÍS-hÚSÍÖ 566 6000 Phil Brown Framkvæmdastjóri Derby. mynd.HöriurHilmarsson Bikarinn í kvðld 8-liða úrslitum VISA-bikarkeppni KSÍ lýkur i kvöld með tveimur leikj- um. Þeir fara báðir fram í höfuðborg- inni. Fram og ÍBV mætast á Laugar- dalsvelli og KR tekur á móti Val á KR-vellinum. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15. Framarar og Vestmannaeyingar mættust fyrir nokkrum dögum í deildinni í roki og rigningu i Eyj- um og þar höfðu heimamenn betur 2-0. Steingrímur Jóhannesson, sem skoraði seinna mark iBV i leiknum gegn Fram, verður ekki með í kvöld þar sem hann varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Keflavík. Framarar hafa ekki verið að gera góða hluti að undanförnu en iBV hefur aftur á móti verið á uppleið. En það er deild- in en ekki bikarinn. Við höfum oftar en ekki séð óvænt úrslit i bikarnum og nægir i því sambandi að nefna HK sem fór i undanúrslit í fyrra en Hk leikur í í.deild. Fram sló út Þór á Akureyri í 16-liða úrslitum mjög sannfærandi 0-3 á meðan ÍBV lenti í smá erfiðelikum með Njarðvík og vann í Eyjum 3-2. Spá Blaðsins er sú BrynjarBjörn tilReading Landsliðsmaðurinn okkar í knatt- spyrnu, Byrnjar Björn Gunnarsson, er farinn frá enska liðinu Watford til Reading. Bæði þessi lið leika í Championship deildinni og Brynjar Björn á aðeins eftir að fara í læknis- skoðun til að uppfylla skilyrði Read- ing. Samingsupphæð hefur ekki ver- ið gefin upp en Brynjar Björn sem er 29 ára hittir fyrir Islendinginn ívar Ingimarsson sem leikið hefur við góðan orðstír í vörn Reading. Brynjar Björn er reynslumikill í enska boltanum en hann á yfir 150 leiki fyrir Stoke City á árunum 1999- 2003 en þá fór hann til Nottingham Forest. Brynjar Björn fór síðan á frjálsri sölu til Watford í júlí í fyrra og lék 36 leiki með þeim. ■ að Fram hefni ófaranna í Eyjum í deildinni og fari I undanúrslit. KR og Valur mætast á KR-vellin- um. Þegar liðin mættust í sumar í deildinni á Valsvellinum var um ein- stefnu að ræða þar sem Valsmenn BIKARINN með Gumma Ben fremstan í flokki fóru á kostum og unnu 3-0. Enn og aftur er sagt, það var í deildinni en nú er það bikarinn. Það má búast við hörkuleik í kvöld þar sem KR-ingar fundu loksins sigurbragðið í síðasta leik sinum sem var 0-4 stórsigur á Fram. Ekki er vitað annað en að þjálfarar liðanna geti teflt fram sín- um bestu mönnum en spá Blaðsins er að rauðir og hvítir Valsmenn með Willum Þór Þórsson og Guðmund Benediktsson slái út KR í kvöld. ■ HeimirRík- harðstilVals Einn reyndasti handknattleiksþjálf- ari landsins, Heimir Ríkharðsson, hefur skrifað undir tveggja ára samn- ing við handknattleiksdeild Vals. Mun Heimir verða aðstoðarmaður Óskars Bjarna Óskarssonar þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Auk þess mun Heimir þjálfa 2. flokk og 3. flokk félagsins. Heimir er marg- reyndur og stýrði karlalandsliði okk- ar, 19 ára og yngri, til sigurs í Evrópu- keppninni fyrir tveimur árum sællar minningar. Hann er í dag þjálfari landsliða Islands skipað leikmönn- um 19 ára og yngri og 17 ára og yngri. Framarar sögðu Heimi óvænt upp á vordögum og réðu Guðmund Guð- mundsson og margur Framarinn er enn ekki sáttur við brotthvarf Heim- is frá félaginu. Það er þó ljóst að feng- ur Vals er mikill í þessum snjalla þjálfara. ■ Kíktu á nýju heimasíðunal Nú fer hver aö verda sídastur að Mlkll og góð blrtaTíonJaldl Pöddufrft t tjdld, þar sem <|úkur og svefnáltr^g Veru saunfuð föstyld tjald. Samanbrotin hjól Elgum nokkur hjól á frábæru verðl Svefnpokar Aztec fíberpokar Vcrð frá kr. 4.995 HÖFUÐKLÚTAR kr. 1.195 NOSrfHLAND Mjúk ste/ m/öndún kr. 19.953 f/gum einnig mikld, úrval af I öndunarfatnaði I frakr. 9.995 1 CASrSUPíRUTE göngustafir. Prístœkkaglcglr med hertum o^d/, ; svamphan'dfangi og svampfódrun niður á staf. Par frá kr. 3.995 Mikið úrval af göngubuxum, fljótþornandi cða með öndun. Margir litir. Verð fró kr. 4.995 irrimor oá Áztcc Sokkar Proféet sokkar, miklð úrval GÖNCUSKÓR CÖNGUSKÓR Sterðlf 36-43 Stærðir 42-4.8.^. SKATABUÐIIM MIKIÐ URVAL AF DYNUM OG ÖÐRUM FYLCIHLUTUM í FERÐALAGIÐ Faxafeni 8 • 108 Reykjavik • simi 534 2727 www.skatabudin.com

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.