blaðið - 28.07.2005, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 blaöiö
HELLUSTEYPA JVJ
VAGNHÖFÐA 17 SÍMI 587 2222
Kynnisferðir:
Nota erlendar rútur
Ýmsir hafa tekið eftir því að nokkrar
rútur á vegum Kynnisferða bera er-
lend skráningarnúmer. Að sögn Þrá-
ins Vigfússonar, framkvæmdastjóra
Kynnisferða, hefur fyrirtækið brugð-
ið á það ráð yfir háönnina á sumrin
að leigja rútur að utan, en íslenska
ferðavertíðin stendur nú sem hæst.
„Við höfum einfaldlega lent í vand-
ræðum með að fá rútur, sem full-
nægja kröfum okkar, nýlegar og með
þeirri tækni, sem við viljum bjóða
farþegum okkar,“ segir Þráinn, en
nú eru fimm erlendar leigurútur á
vegum Kynnisferða hér, en alls rek-
ur fyrirtækið hátt í 70 rútur.
KAUPMANNAHÖFN - EKKI BARA STRIKIÐ
Guðlaugur Arason er frábær sagnameistari og
leiósögumaóur. í Gömlu góöu Kaupmannahöfn
segir hann óborganlegar sögur af fólki og atburóum
og leiöir lesandann um allar helstu götur okkar
fornu höfuóborgar.
Glæný, persónuleg og bráðskemmtileg
bók, ómissandi feröafélagi sem segir
sögur á hverju götuhorni.
%
Salka
www.salkaforlag.is
„Við höfum áður verið spurðir út
í þessar erlendu rútur, en þetta höf-
um við nú gert áður. Málið er ein-
faldlega að það er svo mikill munur
á því hvað við þurfum af bílum milli
sumarsins og dimmustu daganna.
En ef við ættum allar þær rútur sem
við þurfum á háönninni myndi ansi
mikið af þeim standa verkefnalaus-
ar um veturinn. Það væri ekkert vit,“
segir Þráinn.
Rauðu vagnarnir fara vel af stað
Að sögn Þráins hafa þeir hjá Kynn-
isferðum orðið varir við samdrátt
í fjölda erlendra ferðamanna hér
á landi. „En við höfum reynt að
bregðast við þeirri þróun með því
að bjóða fjölbreyttari þjónustu. Þar
munar sjálfsagt mest um aukningu
í hópferðunum hjá okkur, en þá er
farið í hringferð um landið með far-
þega á vegum ferðaskrifstofa."
Þeir vagnar Kynnisferða, sem
mesta athygli vekja þó sjálfsagt, eru
rauðu, tveggja hæða vagnarnir, sem
sinna svonefndum hoppferðum í
borginni. Að sögn Þráins hefur sú
nýjung gengið ágætlega. „Við bjugg-
umst svo sem ekki við neinni spreng-
ingu fyrsta kastið, en þetta er allt
á áætlun." Hann segir að vitaskuld
myndu þeir ávallt óska sér fleiri far-
þega, en ástæðulaust sé að kvarta.
íslendingar
eyddu um 4
milljörðum
erlendis í júní
íslendingar voru duglegir við að
strauja kredidkortin sín erlendis
í síðasta mánuði. Þá keyptu þeir
vörur og þjónustu fyrir rúma þrjá
milljarða króna með kreditkortum,
sem er tæpum 40% meiri eyðsla en
í sama mánuði á síðasta ári. íslend-
ingar voru einnig á ferðinni með de-
betkortin sín og straujuðu þau kort
erlendis fyrir rúmar 900 milljónir
króna í júní síðastliðnum, sem er um
35% aukning milli ára. Þetta kemur
fram í morgunkorni Islandsbanka,
en þar segir ennfremur að færslum
í greiðslukortaviðskiptum erlendis
hafi á sama tíma aðeins fjölgað um
21% á milli júní í ár og í fyrra, og að
það bendi til að nú séu keyptar dýr-
ari vörur eða meira í einu. Á fyrri
hluta ársins nam greiðslukortavelta
Islendinga erlendis samtals tæpum
18 milljörðum.
Rómantískir
hamborgarar
STEF krefst þess að stefgjöld verði greidd vegna orlofshúsa
Orlofshús jafngild hótelum
STEF, Samband tónskálda og eig-
enda flutningsréttar, hafa sent Or-
lofssjóði Bandalags Háskólamanna
(BHM) bréf þar sem krafist er þess
að sjóðurinn greiði stefgjöld vegna
tónlistarflutnings í útvörpum
og sjónvörpum orlofshúsa sjóðs-
ins. „Það sem þetta mál snýst um
er hvort sé um að ræða opinberan
flutning á tónlist í skilningi höf-
undalaganna þegar menn hlusta á
tónlist í orlofshúsum. Okkar mark-
aðs- og innheimtustjóri sendi bréf
til Bandalags Háskólamanna og
fleiri samtaka þar sem hann taldi
að sú starfsemi sé sambærileg hótel-
starfsemi. Við munum skoða þetta
mál og athuga hvort þessi gjaldtaka
standist lög,“ segir Eiríkur Tómas-
son, framkvæmdastjóri STEF.
Eins og á hótelum og
veitingahúsum
„Það hefur verið talið að þegar tónlist
er flutt á stöðum sem almenningur
hefur aðgang að, eins og til dæmis
á hótelum og veitingastöðum, að
sá flutningur sé opinber. Ef gestir
geta hlýtt á tónlist á herbergjum eða
annars staðar á hótelum þá eiga hót-
elin að greiða stefgjöld. Þá skiptir
engu máli hvort menn eru með sin
eigin tæki vegna þess að menn eru
að hlusta á tónlistina á opinberum
stöðum."
BHMneitaraðgreiða
Fráfarandi framkvæmdastjóri Or-
lofssjóðsins telur tilraun STEF til
innheimtu gjaldanna ekki standast
lagalega. I skriflegum svörum sjóðs-
ins, þar sem gjöldunum er alíarið
hafnað, segir m.a. að sjóðurinn sé
stofnaður á félagslegum grunni
með kjarasamningum aðila vinnu-
markaðarins og sé lokaður öðrum.
Hann starfi því ekki á almennum
markaði og orlofshús hans geti ekki
talist gististaðir, fremur séu þeir
ígildi heimila sjóðfélaga. Orlofshús-
in geti ekki heldur talist vinnustaðir
og almenningur hafi ekki aðgang að
þeim, þannig að ekki sé um opinber-
an flutning á útvarpsefni að ræða.
dal, sem er skammt frá Egilsstöðum.
Helgi segir að áfram verði þó öflug
löggæsla á svæðinu.
Impregilo sendi í gær sýslumanni
kæru vegna eignaspjalla mótmæl-
enda að undanförnu. Ennfremur
hefur einn yfirmaður fyrirtækis-
ins lagt fram kæru um líkamsárás
sem hann varð fyrir þegar hann tók
myndir af mótmælendum. ■
Tjöldin tekin niður
Lögregla hafði talsverðan viðbún- lögreglumanna frá Ríkislögreglu-
að á Austurlandi í gær vegna lok- stjóra var sendur austur.
unar tjaldbúða mótmælenda við
Kárahnjúka. Eins og kunnugt er Alltfórfriðsamlegafram
afturkallaði kirkjan leyfi mótmæl- Að sögn Helga Jenssonar, fulltrúa
enda til að dvelja á landi hennar sýslumannsins á Seyðisfirði, urðu
með tjaldbúðir, og þurftu mótmæl- engin læti vegna þessa í gær. Tjöld
endur að vera búnir að fella tjöld voru felld í rólegheitum fram eftir
fyrir hádegi í gær. Meðal þeirra degi í gær, og samkvæmt heimild-
ráðstafana sem gripið var til var um Blaðsins munu búðirnar verða
að níu manna hópur sérútbúinna reistar að nýju í landi Vaðs í Skrið-
cafe Kldda Rót
Hveragerði S: 552-8002
365 ljósvaka-
miðlar fá 136
milljónir frá
skattinum
Ríkið þarf að endurgreiða 365
ljósvakamiðlum (áður Islenska
útvarpsfélaginu) rúmar 136
milljónir króna. Um er að ræða
endurgreiðslu skatta sem 1Ú
greiddi vegna áranna 1997 og
1998. Forsaga málsins er að
umrædd ár hugðist Islenska
útvarpsfélagið nýta sér tap
á fyrirtækjunum íslenskri
margmiðlun og Sjónvarpsmark-
aðnum til að lækka skattstofn
fyrirtækisins, og þannig greiða
lægri skatta þessi ár en ella.
Ríkisskattstjóri komst hinsveg-
ar að þeirri niðurstöðu að þessi
gjörningur væri óheimill, þ.e.
að tap umræddra fyrirtækja
mætti ekki nota til lækkun-
ar skattstofns, og sendi því
endurálagningu á Islenska
Útvarpsfélagið í takt við það.
Yfirskattanefnd komst
hinsvegar að þeirri niðurstöðu
fyrir skemmstu að endur-
álagning Ríkisskattsstjóra á
Islenska Útvarpsfélagið hafi
verið ólögleg og því þurfi að
endurgreiða fyrirtækinu hana.
Að sögn Gunnars Smára
Egilssonar, framkvæmdastjóra
365 ljósvakamiðla ehf. var þetta
niðurstaða sem fyrirtækið
hafði búist við. Hann segir að
auðvitað komi 136 milljónir sér
vel, en rekstur fyrirtækisins
gangi vel um þessar mundir og
því hafi þessa íjármuni í raun
ekki vantað inn i reksturinn.
Karlmenn
segja nei við
nauðgunum
Átak karlahóps femínistafélags
Islands var kynnt í gær með
grillveislu. „Við vildum gera
þetta á léttan og skemmtilegan
hátt og þannig minna fólk á
að verslunarmannahelgin á
að vera skemmtileg en ekki
einhver ofbeldishátíð", segir
Gísli Hrafn Atlason meðlimur
hópsins.„Okkar áhersla er fyrst
og fremst að reyna að fá karla
til þess að velta fyrir sér eðli
og alvarleika nauðgana og til
þess að taka skýra afstöðu gegn
þeim. Við vitum að það eru
allir á móti nauðgunum en það
eru alls konar réttlætingar og
„mýtur“ í gangi i samfélaginu
varðandi nauðganir“, segir Gísli.
Hann tekur sem dæmi að talað
sé um að stelpur skuli passa
sig á strákunum og eigi ekki að
drekka sig of fullar. Jafnvel sé
talað um að þær þurfi að passa
upp á klæðnaðinn. „Okkur þyk-
ir þetta vera algjörlega út í hött
enda nauðgun af þeirri stærðar-
gráðu að hana sé ekki hægt að
réttiæta með noklcrum hætti.“