blaðið - 02.08.2005, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 blaöiö
Fer Owen
til ManUtd?
Michael Owen varafyrirliði enska
landsliðsins virðist vera á leiðinni
frá Real Madrid. Eftir að spænska
liðið tryggði sér Julio Baptista frá Se-
villa og Robinho frá Santos er staða
Owen nú orðin ansi erfið en hann er
orðinn aftastur í goggunarröðinni
hjá liðinu. Brasilíska draumatríó-
ið Baptista, Robinho og Ronaldo
ásamt gulldrengnum Raúl prýða
nú sóknarlínu Real Madrid sem er
ansi spennandi. En hvert á Owen að
fara? Rafael Benítez stjóri Liverpool
hefur gefið það út að hann hafi ekki
áhuga á því að fá Owen aftur á Anfi-
eld en hann leggur nú allt kapp á að
tryggja sér miðvörð og hægri kant-
mann fyrir komandi átök. Svipaða
sögu er að segja af Arsene Wenger
hjá Arsenal en hann gaf það út að
hann vildi styrkja miðjuna en ekki
sóknina og því eru aðeins tvö lið eft-
ir á Englandi sem koma til greina,
Chelsea og Manchester United.
Jose Mourinho ætlar að nota 4-3-
3 leikkerfið með þá Shaun-Wright
Phillips og Arjen Robben á könt-
unum fyrir aftan sóknarmanninn.
Sóknarlína Chelsea prýðir nú Hern-
an Crespo sem kemur til þeirra
nánast sem nýr leikmaður eftir að
hafa eytt síðasta tímabili hjá AC
Milan á lánssamningi. Enginn efast
um hæfileika Crespo sem skoraði
meðal annars tvö mörk í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar þar sem Li-
verpool varð reyndar Evrópumeist-
ari. Crespo leið þó illa á Englandi
eftir að hann kom þangað fyrir 16,8
milljónir punda frá Inter Milan á
Italíu. Hann gaf það út nýverið að
hann þjáðist af þunglyndi og hafi
nánast verið hættur knattspyrnu-
iðkun. Annar stórlax á sóknarlín-
unni er 24 milljón punda maður-
inn Didier Drogba. Hann skoraði
tíu mörk á sinni fyrstu leiktíð hjá
Chelsea, tveimur færri en Eiður
Smári. Ætla má að Mourinho noti
Eið Smára á miðjunni með þeim
Frank Lampard og Claude Makelele
en að sjálfsögðu getur Eiður spilað
í framlínunni og vel það. Þar fyrir
utan eru þeir Filipe Oliveira og Carl-
ton Cole hjá Chelsea. Cole var í láni
hjá Aston Villa á síðustu leiktíð og
gæti komið sprækur inn en Oliveira
■ Smurþjónusta •
á líklega enn nokkuð í land með að
komast í byrjunarlið Englandsmeist-
aranna. Spurningin er: Þarf Chels-
ea á Owen að halda? Líklega ekki
enda hefur liðið ekkert verið orðað
við strákinn annað en Manchester
Untied. Það er þegar staðfest að Sir
Alex Ferguson fær þær 11 milljónir
punda sem ættu að duga fyrir Ow-
en en Ferguson hefur ekki staðfest
áhuga sinn á leikmanninum. Það
gæti verið freistandi fyrir hann að
fá Owen, sérstaklega í ljósi þess að
hann hyggst færa Alan Smith aft-
ur á miðjuna og því yrðu aðeins
þrir sóknarmenn eftir, Ruud van
Nistelrooy, Louis Saha og Wayne
Rooney. Sá síðastnefndi og Owen
spila saman með enska landsliðinu
og mynda sérstaklega skætt sóknar-
par. Getur Owen hugsað sér að spila
í búningi United? Owen er fæddur
í Chester, Wales og byrjaði fljótt að
sýna mikla hæfileika með knöttinn.
Hann studdi Everton sem strákur
en skrifaði undir hjá Liverpool á
17 ára afmælisdegi sínum, þann 14.
desember árið 1996. Þaðan fór hann
svo síðasta sumar fyrir 8 milljónir
punda auk þess sem Antonio Nun-
ez gekk í raðir Evrópumeistaranna.
Owen á hús ekki langt frá Manc-
hester og hann vill að sjálfsögðu
spila í Meistaradeildinni. Hann á
marga vini úr enska landsliðinu hjá
United og þrátt fyrir hatur Liverpo-
ol manna á United og öfugt gætu
þessi félagaskipti orðið þau stærstu
í sumar. Það væri ógnvænleg sókn-
arlína að hafa Wayne Rooney fyrir
aftan Michael Owen og Ruud van
Nistelrooy - Stuðningsmenn United
hljóta að fá vatn í munninn af til-
hugsuninni! ■
■ Peruskipti •
Bjart yfir íslenskum handbolta
íslenska landshðið í handknattleik
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
lagði Norðmenn að velli í lokaleiknum
á opna Skandinavíumótinu sem fram
fór í Svíþjóð um helgina. ísland gerði
jafntefli gegn Dönum á föstudaginn en
þeir eru með gríðarlega sterkt hð á að
sldpa og urðu meðal annars í öðru sæti
á Evrópumótinu í fýrra. Danir unnu
svo mótið um helgina þegar þeir lögðu
Svía í úrslitaleiknum í gær en Svíagrýl-
an virðist elta aha aldursflokka og þeim
tókst að leggja íslendinga að velli á laug-
ardaginn 23-20 þrátt fyrir stórleik Björg-
vins Gústafssonar sem varði 18 skot í
markinu. Leikurinn gegn Dönum var
æsispennandi en honum lauk með 29
mörkum gegn 29 þar sem Ásgeir Örn
Hahgrímsson var markahæsti maður
hðsins með 5 mörk. Arnór Atlason
leikmaður Magdeburg var aftur á móti
markahæstur í gær þegar Norðmenn
lágu í valnum 34-31 en hann skoraði 7
mörk. Þriðja sætið varð því niðurstaðan
á þessu sterka opna Norðurlandamóti
sem er hður í undirbúningi hðsins fyrir
Heimsmeistaramótið í Ungverjalandi
sem fer fram 15-28 ágúst en ísland er þar
í B riðh með Þýskalandi, Spáni, Chíle og
Kongó. Við tókum Viggó Sigurðsson
landshðsþjálfara tah og spurðum hann
hvort hann væri ánægður með árangur-
inn á mótinu: „Ég er svona þokkalega
sáttur. Við spiluðum ágæta leiki bæði á
móti Norðmönnum og Dönum en spil-
uðum síðan mjög illa á móti Svíum. 011
þessi lið eru frekar jöfn að getu en við
eigum kannski aðeins betra hð en Sví-
ar að mínu mati en svipað hð og Danir
sem eru með mjög öflugt hð. Þeir lentu
í öðru sæti á Evrópumótinu á síðasta ári
og spiluðu þar til úrslita við Þjóðveija
sem eru með okkur í riðh á HM. Við spil-
uðum mjög góðan leik í gær, komumst
í sjö marka forystu gegn Norðmönnum
en svo misstum við aðeins dampinn.
Við vorum mjög mikið útaf, samtals í
fjórtán mínútur en þeir aðeins í tvær.
Þeir náðu að jafna og komast yfir en svo
tókum við þetta í restina."
Misjöfn spilamennska
Islenska liðið spilaði mjög vel gegn
Dönum og Norðmönnum en illa
gegn Svíum. Viggó var mis ánægð-
ur með spilamennskuna á mótinu:
„Hún var svolítið köflótt. Við spiluð-
um mjög vel á milli en til dæmis í
Svíaleiknum þá spiluðum við mjög
■ Rafgeymar*
Hvað get ég gert
fyrir þig?
illa. Sóknarleikurinn var mjög slak-
ur, við skoruðum aðeins átta mörk í
fyrri hálfleik og tuttugu í heildina.“
Ljóst er að framtíðin er björt fýrir
íslenskan handbolta en fjöldamargir
ffambærilegir leikmenn eru í þessu
sterka landsliði. Margir eru farnir að
banka fast á dyrnar á aðahandsliðinu:
„Jájá það er alveg ljóst. Björgvin spUaði
mjög vel á mótinu. Arnór og Ásgeir
voru köflóttir. Ernir Hrafn Arnarsson
spUaði ff ábærlega vel í öUum leikjunum
og hann og Björgvin stóðu uppúr að
mínu mati.“
Framundan er svo sjálft Heimsmeist-
aramótið í Ungverjalandi og hvernig
leggst það í landsliðsþjálfarann? „Bara
mjög vel. Við vitum betur núna út í
hvað við erum að fara. Við sjáum það tíl
dæmis að Spánveijar slógu Norðmenn
út í leikjunum um að komast á mótið og
Þjóðverjarnir unnu Danina eins og vit-
að er. Það segir okkur það að við erum
að fara að spUa tvo mjög erfiða leiki sem
ráða úrshtum um það hvar við lendum
á mótinu. Síðan er mUliriðUlinn erfiður
líka, þar lendum við væntanlega á móti
Dönum og Svíum þannig að þetta verða
aUt saman mjög erfiðir leikir."
Dagsformið gildir
Undirbúningur hðsins hefúr verið
strangur í sumar: „Við erum búnir að
æfa mjög vel aUan júllmánuð, tvisvar á
dag og svo tókum við þátt í þessu móti.
Við hægjum aðeins á okkur núna, það
er frí hjá strákunum í dag og á morg-
un en við byrjum aftur á frUlum krafti
á miðvikudaginn og þá verður bara
keyrsla ff am að móti.“
ísland er þekkt fyrir skrautlegar kröf-
ur fil handboltalandshða okkar en nú er
mjög góð ástæða tU að vera bjartsýnn.
Hveijar eru því raunhæfar kröfúr tU
strákanna í Ungverjalandi? „Það má
segja að það sé dagsformið sem ráði
úrslitum þar. Ég held að Spánverjar og
Þjóðveijar séu ekki með síðra lið en okk-
ar og síðan koma Danir með mjög gott
hð. Þetta snýst því um að toppa á hár-
réttum tíma og það er ljóst að við erum
ekki að fara að rúha þessu upp. Þó svo
að við séum með gott lið þá eru hinir
það líka.“ ■
//
Raikkonen:
Þetta er ekki búið
Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen
segir að baráttan um heimsmeistara-
titil ökumanna sé langt frá því að
vera lokið eftir keppni helgarinnar
í Ungverjalandi. Raikkonen tryggði
sér sigur á mótinu á McLaren bíl
sínum en hann er nú 26 stigum á eft-
ir Fernando Alonso sem ekur fyrir
Renault. Alonso náði ekki að tryggja
sér stig um helgina en nú eru aðeins
sex mót eftir en næsta keppni fer
fram í Tyrklandi eftir þrjár vikur.
„Þetta lítur mun betur út núna en eft-
ir síðustu keppni“ sagði Raikkonen.
„Það lítur út fyrir að þegar við hend-
um tíu stigum gefur hann okkur þau
til baka en það eru enn sex mót eftir.
Ef við höldum áfram að ná svona úr-
slitum og eitthvað kemur kannski
fyrir hjá honum þá getum við enn
barist um titilinn. Það er það sem
við stefnum á að gera.“
Alonso er mjög bjartsýnn á tit-
ilmöguleika sína þrátt fyrir að ná
aðeins ellefta sæti í Ungverjalandi.
„Við hófum þennan mánuð með 22
stiga forskot og við ljúkum honum
með 26 stiga mun fjórum mótum
seinna“ sagði Alonso. „Núna var
komið að okkur að þjást. En næst á
dagskrá er bara að hvíla sig og safna
orku fyrir lokaátökin. Við erum
með mjög þægilegt forskot." Fram-
vængurinn á bíl Alonso skemmdist í
upphafi kappakstursins eftir árekst-
ur við Toyotabíl Ralf Schumacher
og þurfti Spánverjinn að skipta um
væng strax eftir fyrsta hring. Hann
kom þá sautjándi út en hélt áfram
að lenda í vandræðum út keppnina
vegna árekstursins og því náði hann
aðeins ellefta sætinu. Ljóst er að
lokabaráttan í formúlunni verður
æsispennandi þar sem greinilegt er
að allt getur gerst!
BIUKO
bilkoUs
afsláttur
af vinnu við smur
Þú gerir góð kaup með þvi að láta okkur
(Bílkó sjá um að smyrja bdinn.
r Vaxtalausar léttgreiðslur!
- Betri verd!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110
UEFA Super Cup • Mónakó • 26. ágúst 2005
Sækjum og sendum báðar leiðir. Verð frá kr. 8S0
>■ -20% afsláttur ý Polar-rafgeymar
af sendibíladekkjum á tilboðsverði
Bón og alþrlfá tilboöl
^ -20% afsláttur
af sumardekkjum
^ -20% afsláttur
af low-profile
Skráðu þig I Fótboltaklúbb MasterCard á
www.kreditkort.is, notaðu MasterCard® kortiö þitt til
11. ágúst og þú gætir veriö á leiöinni á stórleik i
Mónakó: UEFA Champlons League meistararnir I
Liverpool mæta UEFA Cup meisturunum f CSKA
Moskvu.
«**
htklttbbur Maxteri
Í ótboliakltibbur Mn’tterCard
Meira á www.kraditkort.is