blaðið - 28.09.2005, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Væntingavísitala Gallup
Neytendur
svartsýnni en
áður
Islendingar hafa minni trú
á efnahagslífinu og atvinnu-
ástandinu nú en fyrir mánuði
síðan samkvæmt væntingavisi-
tölu Gallup sem birt var í gær.
Dregið hefur úr væntingum
almennt og er samdrátturinn
óháður tekjum einstaklinga,
menntun og aldri. Þó eru þeir
einstaklingar sem eru bjartsýn-
ir fleiri þeir svartsýnu.
„Tiltrú neytenda minnkaði
þrátt fýrir lítið sem ekkert at-
vinnuleysi um þessar mundir
og mikinn hagvöxt. Skýringin
er að öllum líkindum verð-
bólguskotið sem átti sér stað
1 september og sú neikvæða
efnahagsumræða sem fylgdi í
kjölfarið í fjölmiðlum. Þá lækk-
aði hlutabréfaverð í Kauphöll
íslands í september og lækkun-
in hefur vafalítið jafnt kallað
fram frekari svartsýni hjá neyt-
endum og nærst á henni“ segir
f Morgunkorni íslandsbanka
um málið.
Þar kemur ennfremur fram
að færri einstaklingar huga
að húsnæðiskaupum nú en
fyrir ári en á móti kemur að
fleiri huga að utanlandsferð-
um og bílakaupum. „Þessar
niðurstöður styrkja þá skoðun
okkar að hækkunahrinan
á íbúðaverði hafi þegar
hjaðnað” segir ennfremur í
Morgunkorninu. H
Illræmt Evrópumet íslendinga
Vinnuvikan styttist hvarvetna erlendis meðan þróuninni er öfugtfarið hérlendis. Laun
margra hópa hérlendis hyggjast á því að vinnuvikan er lengri en œskilegt er. Verkalýðs-
hreyfingin kallar á breytingar.
Meðalvinnuvikan í flestum löndum
hefur verið að styttast allverulega
undanfarin misseri samkvæmt frétt
bandaríska ritsins The Economist.
Þar er vitnað í könnun efnahags- og
framfarastofnunarinnar, OECD, þar
sem fram kemur að um alla Evrópu
hefur vinnuvikan styst um u.þ.b.
io% og í Japan hefur hún styst um
12% á síðustu fimmtán árum. Hér
heima hefur þróunin gengið mun
hægar og samkvæmt síðustu könn-
un Hagstofunnar hefur meðalvinnu-
vika Islendinga lengst frá því sem
var fyrir tveimur árum.
Lítið Qölskyldulíf
Halldór Grönvold, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri AJþýðusambands fs-
lands, segir að um alllangan tíma
hafi íslendingar átt illræmt Evrópu-
met í lengd vinnuvikunnar. „Reynd-
ar hefur þetta verið að styttast
lítillega þó að svona fari vissulega
í sveiflum.“ Halldór segir að ástand-
ið sé komið langt út fyrir það sem
talist getur eðlilegt og ásættanlegt.
„Þetta kemur niður á okkur með ýms-
um hætti. Það getur verið heilsuspill-
andi og haft þannig áhrif á heilsu
fólks auk þess sem það lifir ekki lífi
utan vinnunnar. Þannig tekst ekki
að samræma atvinnuþátttöku og
fjölskyldulíf."
Endurskipulagning fyrirtækja
„Reyndar er okkar skoðun að fyrir
samfélagið sé þetta óæskilegt ástand
sem felur í sér margvíslegan kostn-
Hvergi í Evrópu er vinnuvikan lengri en hér á landi, úrbóta er þörf.
að. Til dæmis veldur þetta auknum
kostnaði á heilbrigðiskerfið", segir
Halldór. Hann bendir á að klárlega
sé samband milli vinnuslysa og
langs vinnutíma. Þá segir hann að
framleiðni og gæði vinnu oft vera í
öfugu hlutfalli við lengd vinnutíma.
„Það mæla öll rök gegn þessu og eng-
um öðrum þjóðum dettur í hug að
láta svona viðgangast. í grundvall-
aratriðum snýst þetta um að taka
ákvörðun um að breyta þessu sem
svo þarf að fýlgja eftir. Það þarf að
gera með almennri samstöðu og með
endurskipulagningu fyrirtækja með
það að markmiði að draga úr vinnu-
BlaÖiÖ/SteinarHugi
tíma án þess að verðmætasköpun
minnki.“ Ennfremur segir Halldór
að skoða þurfi laun og launakerfi
í þessu tilliti. „Það er ljóst að fyrir
marga hópa í samfélaginu byggjast
laun á löngum vinnutíma.“ Halldór
segir að þessu þurfi að breyta. H
SOLUMENH
ÓSKAST
Vegna aukinna umsvifa óskar
Blaðið eftir sölumönnum í
fulla vinnu.
Um er að ræða skemmtilegt
starf hjá fyrirtæki í örum
vexti með skemmtilegu
fólki. Góðir tekjumögu-
leikar fyrir gott fólk.
Blaöiö
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
Ný lögreglustöð
í Mjóddinni
Lögreglan í Reykjavík ætlar í dag að
færa sig nær íbúum Breiðholts með
þvf að opna lögreglustöð í Mjódd-
inni. „Lögreglustöðin í Mjóddinni
verður í mikilli nálægð og í nánum
tengslum við Þjónustumiðstöð Breið-
holts. Með því móti er samstarf lög-
reglunnar í Reykjavík og Reykjavík-
urborgar aukið í Breiðholtinu og er
markmiðið að byggja á góðu starfi
lögreglunnar f Breiðholtinu og efla
það enn frekar“, segir í tilkynningu.
Gefist vel í Grafarvogi
Aðalvarðstjóri hefur þegar verið
skipaður til að veita stöðinni for-
stöðu og auglýst hefur verið eftir lög-
reglumönnum sem eingöngu munu
vinna í Breiðholti. Aukþess er hverf-
islögreglumaður áfram starfandi í
Breiðholti. Með þessu móti er tekið
upp sama fyrirkomulag á löggæslu
og verið hefur í Grafarvogi undan-
farin ár og gefist mjög vel. Stjórn-
andi og hverfislögreglumaður eru
starfandi á almennum dagvinnu-
tíma en lögreglumenn frá stöðinni
verða á vöktum frá hádegi og vel
fram yfir miðnætti. Auk þess mun
eftir sem áður almennri löggæslu og
umferðarlöggæslu verða sinnt af lög-
reglumönnum sem eru á vakt allan
sólarhringinn eins og verið hefur.
AftilefniopnunarinnargefstBreið-
hyltingum og öðrum áhugasömum
tækifæri á að skoða lögreglustöðina
og kynna sér starf lögreglunnar á
laugardaginn næstkomandi. Tæki-
færi gefst til að skoða lögreglubíl,
setjast á lögreglumótorhjól og heilsa
upp á lögregluhund. H
22 punda lax í Geirlandsá
Umsóknir sendist á atvinna@vbl.is
“Það var helvíti kalt og þetta var
eini fiskurinn sem við veiddum,”
sagði Árni I. Bjarnason sem veiddi
22 punda lax í Geirlandsá í Vest-
ur-Skaftafellssýslu fyrir nokkrum
dögum. Þó alltaf veiðist laxar í ánni
á hverju sumri er áin frægari fyrir
sjóbirtinga en laxa.
“Fiskurinn tók svo svakalega að
það var alls ekki hægt að sleppa hon-
um aftur í ána,” sagði Bjarni Árna-
son veitingamaður og faðir Árna,
sem var með honum að veiða i kuld-
anum ásamt Grimi Jónssyni. ■